Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 31. október 2004 klukkan 19:03

Myndagetraun

Hvað var John Deacon að gera augnabliki áður en þessi mynd var tekin? Þetta er annars mynd frá síðustu tónleikum Queen.

Sunnudagur, 31. október 2004 klukkan 2:27

Appelsín takk

Í dag fékk ég í annað skipti á stuttum tíma veitingar í boði rektors, verst með Egils Kristalinn. Það er leiðindasiður að bjóða bara upp á glæra gosdrykki á formlegum viðburðum, held að það sé bara upp á útlitið. Mér þætti gaman að fá bara Appelsín, það er erfitt að drekka ekki áfengi, lítið hugsað um mann.

Föstudagur, 29. október 2004 klukkan 21:44

Fölsun

Þessi frétt öskrar á mig **Fölsun!**

Ef að bin Laden vildi fá John Kerry sem forseta þá kæmi hann ekki fram með svona stuðningsyfirlýsingu, ef þetta er yfirhöfuð bin Laden þá verð ég að túlka það þannig að hann vilji Bush sem forseta. Þetta er ótrúlega gruggugt.

Föstudagur, 29. október 2004 klukkan 10:10

Tannburstun

Dr. Gunni minnist á tannburstun í dag og ég get svarað spurningunni, það er vissulega mun betra að tannbursta sig uppúr volgu vatni heldur en köldu, held að tannlæknar séu almennt sammála um það og ég hef gert það í svona 13 ár sjálfur.

Fimmtudagur, 28. október 2004 klukkan 21:37

Skeptíkus af stað

Fundurinn hjá Skeptíkusi gekk ágætlega, nokkrir sem ætluðu að mæta komu ekki en þeir koma væntanlega í félagið samt, þrír sem ég vissi ekkert um komu og þar að auki einn forvitinn guðfræðinemi. Nú ættum við að fara að klára grunnatriði einsog að setja upp heimasíðu og síðan að gera okkur áberandi.

Fimmtudagur, 28. október 2004 klukkan 10:21

Gott verkfall

Þetta kennaraverkfall hefur haft stórkostleg áhrif á grunnskólabörnin, þau virðast sakna skólans og játa að þeim finnst gaman þar. Hvað ætli þau verði fljót að gleyma þessu?

Miðvikudagur, 27. október 2004 klukkan 0:01

Klavier

Ég dýrka Klavier með Rammstein, það er svo óendanlega krípí, síðan er svo stórkostlegt þegar viðlagið byrjar og allt fer á fullt.

Þriðjudagur, 26. október 2004 klukkan 22:43

Vondur við Bigga

Ég var ákaflega vondur við Bigga áðan, hafði reddað mér myndbandsspólunni *Garg* með Sálinni og var að horfa á þegar hann leit inn (reyndar var það ekki sérstaklega planað). Biggi lauk erindinu og kom sér fljótt aftur út, ég skyldi það þegar ég sá næsta atriði, hann að útskýra notkun gamalla áburðapoka í trommuhúðir. Síðan kom Birgir að spila á gítar og að lokum Biggi að syngja. Hinir hápunktarnir voru Stefán Hilmarsson að væla yfir því að húfunni hans var stolið og einnig þegar Stefán fékk bassa á kjaftinn.

Þriðjudagur, 26. október 2004 klukkan 14:39

Skeptíkus kynningarfundur

Eftir langa fæðingu þá er félag trúlausra og efahyggjumanna í Háskóla Íslands að komast á legg. Ég held að þessi hugmynd hafi kviknað um miðja síðustu önn en það var svo óhentugur tími eitthvað, við höfum síðan verið að rembast við þetta undanfarið, vorum nærri því tilbúnir þegar skyrdagurinn kom upp, þá fékk Skeptíkus aðeins að bíða. Nú er þetta tilbúið, fundur á fimmtudag.


>**Skeptíkus**
>
>Ertu kominn með nóg af *kjaftæðinu*?
>Kominn með upp í háls af *biskupnum*? *Prestunum*?
>*Þórhalli* og öllum hinum *miðlunum*?
>*Skottulæknunum?*
>Fullorðnu fólk sem trúir á *álfa*?
>
>Ef svo er komdu þá á kynningarfund hjá Skeptíkusi, félagi efahyggjumanna og trúleysingja í Háskóla Íslands.
>
>Fundurinn fer fram í
>stofu 131 í Öskju
>klukkan 19:30

Þriðjudagur, 26. október 2004 klukkan 8:16

Satanisti ekki djöfladýrkandi

Fréttablaðið kallar satanista sem gekk í breska sjóherinn djöfladýrkanda, leiðindamistök hjá þeim enda er mikill munur þarna á.

Eldri færslur »