Mér fannst þessi villuboð af Mikkavef áhugaverð:
>Microsoft OLE DB Service Components error ‘8000ffff’
>
>Catastrophic failure
>
>/rss/rss.asp, line 79
Það er ekki minna en það, katastrófa.
Mér fannst þessi villuboð af Mikkavef áhugaverð:
>Microsoft OLE DB Service Components error ‘8000ffff’
>
>Catastrophic failure
>
>/rss/rss.asp, line 79
Það er ekki minna en það, katastrófa.
Nú er ég enginn sérfræðingur en ég hefði haldið að það væri nú þegar ólöglegt að limlesta kynfæri kvenna og því sé óþarfi að setja um slíkt sérstök lög.
Ritgerðin mín er komin vel á leið, á raunar bara eftir að ganga frá minniháttar atriðum. Indælt. Merkilegt að ég næ alltaf að klára þessi verkefni.
Ég les um eitt sjéní í bók sem annað sjéní átti. Það er skrýtið að hugsa til þess að bók sem ég er búinn að vera að lesa núna var einu sinni í eigu Þórbergs Þórðarsonar. Kannski var það Þórbergur sem bætti við i-inu sem vantaði í orðið “andaðst” á fyrstu blaðsíðunni. Það er ekkert ólíklegt.
Þórbergur vildi ekki að það yrði búið til safn í kringum bækur hans. Þegar hann ánafnaði Háskólabókasafninu safn sitt var það til þess að bækurnar yrðu í notkun, ekki til þess að þær söfnuðu ryki í einhvers konar minnismerki um hann sjálfan. Virðingarvert.
Einsog mig grunaði þá var óþarfi að hafa áhyggjur af Miracle þó þeir væru ekki að dansa í morgunsjónvarpinu, þeir stóðu fyrir sínu á Nasa. Þeir tóku bæði þekkt lög og síðan uppáhaldslög Queenaðdáenda. Líklega var *Stone Cold Crazy* hápunkturinn. Þeir tóku nokkur lög sem er nær vonlaust að flytja á sviði einsog *Prophet Song* og *BoRhap*. Vel peningana virði að mínu, Eyglóar og Halla mati.
Annars þá hef ég ekki séð svona mikið af gömlu fólki á dansgólfinu síðan á Kringlukránni. Gamla fólkið dansaði einsog vitlaust. Náungi sem ég held að sé með mér í skjalastjórn var alveg afskaplega mislukkaður á gólfinu. Hann virtist hafa ákveðið að stíga dansinn einsog hann gerði á diskóárunum, mig grunar að hann hafi verið alveg asnalegur þá. Síðan dansaði ég í hléinu við konu sem minnti ákaflega á Ruth Reginalds, gæti jafnvel verið að þetta hafi verið hún. Hver sem þetta er þá komst hún að því að ég kann ekki að dansa, en hún var nokkuð góð að stjórna.
Mjög skemmtilegt kvöld.
Ritgerðin mín hefur loks fundið lendingarstað, Sigurður Guðmundsson málari og stofnun Þjóðminjasafnsins. Nú get ég komið mér almennilega af stað.
Jæja, Miracle stóð sig ekki vel í morgunsjónvarpinu, ég sá það reyndar ekki. Ég er nú þegar búinn að kaupa miða á tónleikana í kvöld þannig að ég fæ að sjá þetta með eigin augum (og heyri um leið). Annars þá er þetta held ég ekki ástæða til að panikka. Í fyrsta lagi var hljómsveitin að spila eldsnemma að morgni og alls ólíklegt að þeir hafi verið í stuði. Í öðru lagi þá hef ég heyrt það frá tónlistarmönnum sem hafa spilað á Stöð 2 að það engar hljóðprufur eða neitt slíkt áður en farið er í loftið, slíkt getur að sjálfssögðu eyðilagt fyrir hljómsveitum.
You are 47% Aquarius
|
Þetta próf er náttúrulega meingallað af því að það er upptalning á staðhæfingum og ef maður lætur TRUE við allt þá er maður 100% stjörnumerkið sitt. Prófið þyrfti að vera með jafnmargar staðhæfingar sem eiga ekki við stjörnumerkið.
Það er Queendagur í dag, 13 ár liðinn frá því Freddie dó. Í tilefni dagsins verður tónlist Freddie spiluð nonstop á heimilinu. Reyndar er þetta eiginlega Queenvika vegna þess að ég er að undirbúa mig undir tónleikana á föstudaginn með Miracle, mæli með þeim ef þið viljið sjá Queenlög læf.
Þráinn Bertelsson fær kannski ekki lengur að búa til lélegar kvikmyndir en hann getur huggað sig við það að hann fær að gera sig að fífli á baksíðu Fréttablaðsins.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « okt. | des. » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | ||||
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)