Ég held að maður hljóti að vera búinn að meika það þegar kemur mynd af manni í dagblaði ásamt Matthew Perry, Matt LeBlanc og Jóni Gnarr. Eða hvað ;)
Ég held að maður hljóti að vera búinn að meika það þegar kemur mynd af manni í dagblaði ásamt Matthew Perry, Matt LeBlanc og Jóni Gnarr. Eða hvað ;)
Hvað er jólalegra en laxamyndir? Næstum allt. Bubbi ætti að tala sem minnst.
Til hamingju með afmælið hans Míþrasar!
Sverrir tekur upp hanskann fyrir Míþras hinn gleymda. Alltaf gott að minna á Míþras, áhrif hans ná víða.
Survivor kláraðist í gær. Chris vann. Ekkert of sanngjarnt. Ég hélt varla með neinum. Twyla (eða Twila?) var skömmuð fyrir lygar. Chris laug um lygarnar og græddi á óheiðarleikanum.
Ég var að fá jólakort sem ég opnaði (ég opna þau yfirleitt ekki fyrren aðfangadagskvöld). Þetta var kveðja frá manni sem ég hef hitt einu sinni og það var fyrr á þessu ári. Hann þakkaði mér fyrir samverustundir á liðnum árum. Þegar ég fór að skoða kortið þá sá ég að textinn sem við fyrstu sýn leit út fyrir að vera handskrifaður var í raun prentaður á kortið. Ég veit að kallinn þarf að senda mörgum kort en svona gervi-persónulegt er eiginlega verra en ekta ópersónulegt. Ég held að ég sendi ekkert kort til hans.
Það er mjög rólegt í vinnunni. Ég hef grun um að þetta verði orðið mjög dapurt um klukkan 21:30. Ég læri þá bara einsog ég get. Það er fátt skemmtilegra heldur en að vera í síðasta prófinu síðasta prófdaginn.
Björn Bjarnason er í Mogganum í dag að tala um það sé tímaskekkja að tala gegn innrásinni í Írak. Mér þykir þetta nú koma úr hörðustu átt, maðurinn er ennþá að berjast í Kalda Stríðinu.
Maður vill ekki byrja vinnudaginn sinn á því að bíða í korter fyrir utan vinnustaðinn á meðan maður bíður eftir húsverðinum. Það er ekki gaman að vera að koma öllu af stað þegar fólk er að koma inn. Síðan er niðurdrepandi að geta ekki komið tölvukerfinu í gang. Einnig er slæmt að finna ekki símanúmerið sem maður á að hringja í þegar kerfið liggur niðri. Sú hugmynd sem einhver fékk um að taka símann sem öll símanúmerin voru límd á var ekki góð. En þetta reddaðist.
Ástæðan fyrir því að ég mæti snemma er sú að ég vill taka á svona vandamálum áður en fólk kemur inn í húsið. Pirrpirr.
Herra Ísland er slæmt sjónvarpsefni. Herra tjokkó vann. Reyndar sá ég bara allra síðustu mínúturnar. Kynnarnir voru hræðilegir. Það var mjög erfitt að horfa á sjálflýsandi tennurnar í öðrum þeirra.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « nóv. | jan. » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)