Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 28. febrúar 2005 klukkan 20:10

Queen + Paul Rodgers í Stokkhólmi?

Ég hef núna beðið í mánuð eftir próftöflunni og nú er komið á hreint að þau þvælast ekki fyrir ef ég ætla að skreppa út. Hvers vegna er ég að pæla í að fara til útlanda? Nú, til að sjá Queen + Paul Rodgers. Nú er mér fyllilega ljóst að þetta er ekki Queen einsog hljómsveitin var með Freddie en …

Ég hefði hiklaust farið ef Roger eða Brian hefðu verið með sólótónleika, ég hefði rokið út til þess, og því er fáránlegt að ætla að sleppa þessu tækifæri.

Tónleikarnir verða 30. apríl og ég er eiginlega að hugsa um að fara bara eldsnöggt út, koma 30. og fara 1. maí. Já, þetta kostar en hvað um það. Maður er ekki aðdáandi meiripart ævi sinnar til þess eins að missa af svona tækifæri.

Spurning hvernig ég á að hafa þetta. Ætli fleiri Queenaðdáendur vilji fara? Ætli ég geti hitt einhverja þarna úti? Það væri samt ekkert að því að fara einn. Ég verð að fara að ákveða mig.

Mánudagur, 28. febrúar 2005 klukkan 12:49

Gata getraunar svar

Það kom loks svar við gata getrauninni minni, það var Anna systir sem hafði það. Við Eygló höfum samanlagt eitt gat og það er í mínu eyra. Ég viðheld gatinu þó það sé ekki notað fyrir neinskonar lokk. Og það er í vinstra eyra.

Sunnudagur, 27. febrúar 2005 klukkan 13:30

Fékk ekki fundarboð

Það var víst annars fundur í deildarráði Félagsvísindadeildar á föstudag án þess að við fulltrúar nemenda höfum fengið um það tilkynningu. Ég er satt best að segja fúll, það voru atriði sem mig langaði að koma fram með en þarf núna að bíða með það í allavega viku. Síðan veit maður ekkert um hvað var rætt á fundinum. Mig langar eiginlega að rengja það að fundurinn hafi verið löglegur þar sem við fengum ekki fundarboð en allavega mun ég krefjast þess að fá að gera athugasemdir við fundargerð. Jafnvel að taka aftur upp einhver mál sem þarna komu fram.

Sunnudagur, 27. febrúar 2005 klukkan 12:57

Námskynning og Blöðungur

Núna er námskynning í gangi í Háskólanum, ég var áðan að kynna skorina en var reyndar voðalega lítið að hafa mig í frammi, gaf reyndar Hannesi Hólmsteini smá nammi.

Í morgun fékk ég Blöðung í hendurnar, þar erum við Eygló skráð sem ritstjórar og ég fyrir umbrotinu. Það er margt sem ég hefði getað gert betur þegar ég var að setja blaðið upp. Ég sé til dæmis núna að ég hugsaði ekki nóg um þetta sem opnur, bara sem blaðsíður. Uppsetningin á myndasyrpunum er svoltið klúðursleg en hvað um það, miðað við hvað það hefði kostað að fá fagmann í þetta þá verð ég að vera sáttur. Geri þetta bara betur næst.

Ég er ánægður um forsíðuna, hún er mjög einföld en samt svo lýsandi.

Laugardagur, 26. febrúar 2005 klukkan 16:09

Salernisvandræði á Alþingi

Ég fór á salernið í nýbyggingu Alþingis í gær. Þetta var voða fínt og fallegt. Mér sýndist hurðirnar vera sérstaklega þægilegar fyrir þá sem eru í hjólastólum. Mjög glæsilegt. En ég gat ekki læst hurðinni. Ég reyndi og reyndi en fattaði ekki hvernig þetta átti að virka. Að lokum gafst ég upp. Til þess að koma í veg fyrir að einhver samstarfsfélagi minn yrði fyrir varanlegum skaða af því að í salernisbrasi þá passaði ég mig á því snúa bakinu að hurðinni.

Á meðan ég var að nýta mér aðstöðuna þá sá ég að það var spegill þarna, væntanlega til að maður geti skoðað sig á meðan maður er að. Þarna voru líka lítil handklæði svo maður þyrfti ekki taka niður fyrir sig með því að nota pappírinn. Litlu handklæðin voru rauð og hvít, mér finnst að þau hefðu líka átt að vera blá.

En enginn ruddist inn á mig.

Laugardagur, 26. febrúar 2005 klukkan 12:17

Leiðinlegu nágrannarnir

Mér sýnist að leiðinlegu nágrannar mínir séu að flytja í sama hús og Biggi, ég samhryggist honum ef þetta er rétt hjá mér en ég samgleðst mér hins vegar innilega.

Laugardagur, 26. febrúar 2005 klukkan 9:58

Gærdagurinn í stórri hnotskurn

Gærdagurinn byrjaði snemma hjá mér, fór í vinnuna fyrir klukkan 8. Eftir hádegi fór ég að leita að afmælisgjöf handa Eygló og eftir þann leiðangur var komið að deildarfundi. Það er óþolandi ósiður hjá kennurum í Félagsvísindadeild að mæta alltaf seint á þessa fundi, þeir komast ekki af stað fyrren seint og síðar meir.

Deildarfundurinn var eiginlega framboðsfundur rektorsefna. Kristín Ingólfsdóttir var fyrst og var svo sem ágæt en ekki sannfærandi. Næst kom Ágúst Einarsson og hann kom mjög á óvart, hann var bara nokkuð sannfærandi. Jón Torfi var síðastur og ég hallast satt best að segja ennþá að honum. Ég fór reyndar af fundi áður en hann náði að svara öllum fyrirspurnum.

Ástæðan fyrir brotthvarfi mínu af fundi var að ég var búinn að bóka mig í skoðunarferð um Alþingishúsið með vinnunni. Reyndar var skoðunarferðin ekkert of spennandi, ég hefði haft gaman að fá að skoða meira af kompum þarna inni en þetta var alveg ágætt. Það vakti sérstaka lukku að í herbergjum þingflokkana var búið að setja upp rakamæli og nálægt þeim voru miðar sem stóð á “Vinsamlegast snertið rakamælana”. Áhugaverðast þótti mér að frétta að Alþingisgarðurinn er víst opin almenningi og að í honum er gröf eins þingmanns.

Til að drepa tímann fram að kvöldmat þá skrapp í Pennann Austurstræti og fann þar bók um Douglas Adams á góðum afslætti. Ég keypti bókina og rölti síðan inn á Borgarbókasafnið til að sjá hvort eitthvað áhugavert væri þar inni en svo var ekki. Ég spjallaði hins vegar aðeins við Finn um daginn og veginn.

Næst fór ég á Apótekið að hitta Vantrúarseggi. Ég pantaði mér lasagna en eftir smá tíma var mér tilkynnt að það væri týnt. Ég vissi ekki alveg hvað þetta þýddi en ég ákvað að fá mér bara pizzu í staðinn, gott að ég vildi ekki fá papriku á hana því hún var víst búin. Ég hefði haldið að einfaldast væri að kaupa papriku í búðinni sem er hinum megin við götuna en þeim virtist ekki hafa dottið það í hug. Ég veit að þegar ég vann á veitingastað þá var oft hlaupið út í búð til að redda einhverju svona smávægilegu.

Pizzan var samt góð og samræðurnar skemmtilegar en ég gafst upp snemma af því að ég fékk höfuðverk af reykingunum sem fór fram þarna inni (ekki á mínu borði). Voðalega verður gaman þegar maður þarf ekki að hafa áhyggjur af sígarettureyk. Ég gleymdi reyndar bókinni minni þarna en ég held að Matti hafi tekið hana.

Blöðungur kom víst út í gær, við getum þá farið að dreifa honum bráðum. Ég komst reyndar að því að ef við hefðum borgað fyrir umbrot þá hefði það aukið kostnaðinn svona tvö til þrefalt. Þetta þýðir að ég er sáttur við að uppsetningin á honum sé ekkert rosalega fín. Ef við gefum út annað eintak þá mun ég væntanlega fá mér betra forrit til verksins heldur en fokkings Word.

Eftir að hafa losnað við höfuðverkinn með því að leggja mig í svona tvo tíma þá skrifaði ég tvær greinar, þá fyrri tileinkaða Agli Helgasyni. Þetta var bara ágætur dagur.

Föstudagur, 25. febrúar 2005 klukkan 9:37

Hetjan okkar?

Mogginn greinir frá því að þessi Íslendingur sem særðist um daginn í Írak hafi fengið heiðursorðu, vá frábært. Það kom ekki fram í Netmogganum en mig minnir að þetta sé orðan sem hermenn fá sjálfvirkt fyrir að særast í bardaga þannig að þetta er nú ekki sérstaklega merkilegt. Í raun er þetta bara svona staðfesting á því að hann hafi særst.

Föstudagur, 25. febrúar 2005 klukkan 8:37

Gata getraun

Það er langt síðan að ég hef haft getraun hérna og í þetta skipti ætla ég að hafa hana persónulega.

Það er alltaf vinsælt að láta gata einhverja líkamsparta og af því tilefni spyr ég: Hve of höfum við Eygló verið götuð samanlagt og hvernig skiptast þessi göt á milli okkar?

Eitt gisk á mann í athugasemdakerfinu.

Föstudagur, 25. febrúar 2005 klukkan 8:29

Lokaverkefnisraunir

Ég get ekki byrjað BA-verkefnið mitt einsog er. Það eru of fáir kennarar í skorinni til að þeir geti leiðbeint öllum og það eru erfiðleikar að fá meðleiðbeinendur. Erfiðleikarnir við að fá meðleiðbeinendur eru aðallega vegna þess að sérfræðingarnir á okkar sviði vinna flestir á Bókhlöðunni og vegna kjarasamninga þá kostar það mikið meira að fá það fólk til að vera yfir verkefnum. Ég hef ákveðið hvað BA-verkefnið mitt verður og sú sem er sérfræðingur á því sviði vinnur einmitt á Hlöðunni. Þetta er pirrandi ástand en vonandi reddast það.

Eldri færslur »