Gærdagurinn byrjaði snemma hjá mér, fór í vinnuna fyrir klukkan 8. Eftir hádegi fór ég að leita að afmælisgjöf handa Eygló og eftir þann leiðangur var komið að deildarfundi. Það er óþolandi ósiður hjá kennurum í Félagsvísindadeild að mæta alltaf seint á þessa fundi, þeir komast ekki af stað fyrren seint og síðar meir.

Deildarfundurinn var eiginlega framboðsfundur rektorsefna. Kristín Ingólfsdóttir var fyrst og var svo sem ágæt en ekki sannfærandi. Næst kom Ágúst Einarsson og hann kom mjög á óvart, hann var bara nokkuð sannfærandi. Jón Torfi var síðastur og ég hallast satt best að segja ennþá að honum. Ég fór reyndar af fundi áður en hann náði að svara öllum fyrirspurnum.

Ástæðan fyrir brotthvarfi mínu af fundi var að ég var búinn að bóka mig í skoðunarferð um Alþingishúsið með vinnunni. Reyndar var skoðunarferðin ekkert of spennandi, ég hefði haft gaman að fá að skoða meira af kompum þarna inni en þetta var alveg ágætt. Það vakti sérstaka lukku að í herbergjum þingflokkana var búið að setja upp rakamæli og nálægt þeim voru miðar sem stóð á “Vinsamlegast snertið rakamælana”. Áhugaverðast þótti mér að frétta að Alþingisgarðurinn er víst opin almenningi og að í honum er gröf eins þingmanns.

Til að drepa tímann fram að kvöldmat þá skrapp í Pennann Austurstræti og fann þar bók um Douglas Adams á góðum afslætti. Ég keypti bókina og rölti síðan inn á Borgarbókasafnið til að sjá hvort eitthvað áhugavert væri þar inni en svo var ekki. Ég spjallaði hins vegar aðeins við Finn um daginn og veginn.

Næst fór ég á Apótekið að hitta Vantrúarseggi. Ég pantaði mér lasagna en eftir smá tíma var mér tilkynnt að það væri týnt. Ég vissi ekki alveg hvað þetta þýddi en ég ákvað að fá mér bara pizzu í staðinn, gott að ég vildi ekki fá papriku á hana því hún var víst búin. Ég hefði haldið að einfaldast væri að kaupa papriku í búðinni sem er hinum megin við götuna en þeim virtist ekki hafa dottið það í hug. Ég veit að þegar ég vann á veitingastað þá var oft hlaupið út í búð til að redda einhverju svona smávægilegu.

Pizzan var samt góð og samræðurnar skemmtilegar en ég gafst upp snemma af því að ég fékk höfuðverk af reykingunum sem fór fram þarna inni (ekki á mínu borði). Voðalega verður gaman þegar maður þarf ekki að hafa áhyggjur af sígarettureyk. Ég gleymdi reyndar bókinni minni þarna en ég held að Matti hafi tekið hana.

Blöðungur kom víst út í gær, við getum þá farið að dreifa honum bráðum. Ég komst reyndar að því að ef við hefðum borgað fyrir umbrot þá hefði það aukið kostnaðinn svona tvö til þrefalt. Þetta þýðir að ég er sáttur við að uppsetningin á honum sé ekkert rosalega fín. Ef við gefum út annað eintak þá mun ég væntanlega fá mér betra forrit til verksins heldur en fokkings Word.

Eftir að hafa losnað við höfuðverkinn með því að leggja mig í svona tvo tíma þá skrifaði ég tvær greinar, þá fyrri tileinkaða Agli Helgasyni. Þetta var bara ágætur dagur.