Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 30. apríl 2005 klukkan 15:35

Grundvöllur fréttaflutnings

Það er morðfrétt á mbl. Mér þykir hún áhugaverð að einu leyti. Staðsetningin kemur hvergi fram. Við vitum að þetta gerðist í útlöndum og við vitum að fórnarlambið var kallað “Rich” sem gefur til kynna að maðurinn hafi . Er ekki til einhver leiðarvísir fyrir fréttamenn? Svona: Hver? Hvar? Hvers vegna?

Laugardagur, 30. apríl 2005 klukkan 13:42

Síðasti séns á Ólapróf

Þið eruð á síðasta séns að kíkja á Ólaprófið. Ég fer yfir niðurstöðurnar á næstunni, hugsanlega strax í kvöld.

Laugardagur, 30. apríl 2005 klukkan 1:02

Vantrúarhittingur

Jæja, kvöldið var líka gott. Vantrúarseggir hittust í kvöld á Horninu. Það var löng bið eftir matnum sem var reyndar allt í lagi enda ég nýkomin úr hófi og líka til að gefa okkur betra færi á að spjalla. Einn nýr seggur hafði bæst í hópinn og einn gamall seggur lét sjá sig í fyrsta skiptið í langan tíma. Maturinn var bara mjög góður, ég var reyndar orðinn mjög svangur þegar hann kom og skóflaði honum í mig.

Spjallið var mjög gott, að vandi var farið um víðan völl og margar hugmyndir komu upp. Á köflum vorum við með áhorfendur á næstu borðum en við lifum það af, dömurnar virtust afar hrifnar af Matta en hann hafði lítinn áhuga á þeim.

Ég ákvað að fara ekki með hópnum á rölt og fór þess í stað heim enda vinna á morgun.

Þetta var nú góður dagur.

Föstudagur, 29. apríl 2005 klukkan 19:33

Góður eftirmiðdagur

Þetta var voðalega góður eftirmiðdagur. Rölti út í aðalbyggingu og rakst á leiðinni á Véstein, hann var reyndar upptekinn við eitthvað annað en ég fékk hann með á doktorsvörnina.

Það er alltaf erfið ákvörðun hvar maður á að sitja á svona stöðum. Að vanda voru fáir framarlega, fæstir líta nógu stórt á sig til að setja sig í heiðurssæti. Ég sá síðan Marvin í þriðju röð og ákvað að setjast hjá honum. Tveim röðum fyrir framan okkur var familían hans Sverris.

Ég hef aldrei verið við doktorsvörn áður. Gunnar Karlsson og Vésteinn Ólason voru andmælendur. Þetta var áhugavert en reyndar missti ég þráðinn svona tvisvar sinnum vegna þess að þetta fór á fræðilegu brautirnar. Mér þótti reyndar sérstaklega gaman að fylgjast með Sverri þegar andmælendurnir voru að tala.

Í hléinu fór ég hálf óvart að spjalla við konu sem kom í ljós að var eldri systir Sverris. Heimurinn er reyndar það lítill að hún kenndi Eygló í grunnskóla á Vopnafirði. Ég hitti síðan fjölmarga mæta menn frammi, þar á meðal Valdimar þjóðfræðikennara og Jakob Háskólalistamann.

Eftir vörnina fórum við Jakob út á Stúdentaheimili að hitta Elías, sá var hress og kátur að vanda. Eftir að hafa lokað skrifstofunni fóru þeir félagar saman á Kjallarann en ég fór aftur út í Aðalbyggingu til að leita að týndu batteríi.

Fyrir utan hitti ég Ármann og Sverri, spjallaði aðeins við þá áður en ég fór inn að finna týndu rafhlöðuna. Hún hafði fundist og það endaði því vel. Ég fór aftur út og spjallaði við bræður á meðan einkabílstjórinn var að ná í bílinn. Mér var þá boðið í hóf í Norræna húsinu og þáði það.

Ég rölti heim og hitti Annas við Odda, spjallaði við hann örstutt. Fór síðan heim en fljótt aftur út í Norræna húsið. Þar spjallaði ég við ótalmarga en þó aðallega við Marvin. Á svæðinu voru ótalmargir vinnufélagar. Ármann hélt skemmtilega ræðu um bróður sinn. Ég var hins vegar ekki lengi þarna enda er ég að fara út að borða á eftir (þó borðaði ég aðeins í hófinu líka).

Föstudagur, 29. apríl 2005 klukkan 12:20

Ahhhhhhhhhhhh

Ég kláraði verkefnið mitt í nótt og skilaði því í morgun áður en ég fór á deildarráðsfund. Voðalega notaleg tilfinning. Reyndar dreymdi mig leitir í rafrænum gagnasöfnum í nótt en það hafði ekki neitt hrikaleg áhrif á hvíldina.

Á deildarráðsfundi kláraðist málið sem virtist ætla að vera endalaust, mjög gott. Síðan minntist ég á skráningar og kennsluskrármál og almenn óánægja skorarformanna með þau mál vakti gleði hjá mér.

Núna get ég verið frekar áhyggjulaus, reyndar er eitt símtal sem ég þarf að hringja í dag eða mánudag sem ég er ekki spenntur fyrir en peningagræðgi mín knýr mig til þess.

Vinna á morgun en frí á sunnudag. Þetta er hið besta mál.

Föstudagur, 29. apríl 2005 klukkan 1:51

Lokaspretturinn með síðasta verkefnið

Ég er á lokasprettinum með síðasta verkefnið. Ef ég næ að klára í nótt þá ætti ég að geta skilað því inn þegar ég fer á deildarráðsfund á morgun. Ég er eiginlega að verða sáttur við það. Ég ætti þá líka að ná doktorsvörninni á morgun. Síðan er lífleg kvöldstund vonandi framundan. Síðan vona ég að ég skrifa einhverja Vantrúarpistla á næstunni, of mikil leti á þeim vígstöðvum.

Fimmtudagur, 28. apríl 2005 klukkan 13:18

Nánar um doktorinn

Doktorsvörn á morgun, skrepp ef verkefnavinna verður ekki komin langt eftir á. Á vef Háskólans er frétt um vörnina en síðan er vísað á heimasíðu doktorsefnisins fyrir þá sem vilja frekari upplýsingar. Þar kemur í ljós að doktorinn tilvonandi á grein í bók sem er væntanlega ca. árið 2002. Ekkert nýrra efni er til eftir hann. Ef maður vill frekari upplýsingar þá er allavega heimilisfangið hans þarna þannig að maður getur rölt út á Rekagranda og spjallað við hann… Upplýsingar eru auðlind.

Fimmtudagur, 28. apríl 2005 klukkan 11:11

Sumarvinnan ákveðin

Þið öll sem ætluðuð að bjóða mér vinnu í sumar megið gera ykkur viðbúin vonbrigðum, ég er kominn með vinnu. Fæ 9 daga sumarfrí eftir seinna prófið, fer líklega til Akureyrar. Þetta er ágætt.

Fimmtudagur, 28. apríl 2005 klukkan 0:18

Antírokkpáfinn

Nýji páfinn er víst sérstaklega mikið á móti Beatles, the Rolling Stones, Pink Floyd, Led Zeppelin, Queen og the Eagles. Það er því ljóst að hann hefur nákvæmlega sama tónlistarsmekk og Raskatið.

Miðvikudagur, 27. apríl 2005 klukkan 20:40

Prófið um Óla

Ennþá er hægt að taka þátt í prófinu um Óla. Þegar hafa rúmlega 30 manns gert það en nokkra vantar enn. Eygló er á toppnum með 90 stig en fjölmargir í öðru með 60. Þeir sem grunaðir eru um græsku eru ekki taldir með.

Ég býst við að birta yfirlit um prófið á föstudag eða laugardag.

Eldri færslur »