Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 30. júní 2005 klukkan 12:57

Lánin að smella saman

Íbúðalánin eru að verða tilbúin, ég er að stefna að því að vera með skuld upp á 12.1 milljón. Reyndar á Eygló 50% af þessu með mér. Í næstu viku um við að geta undirritað kaupsamning og í leiðinni eyðum við nær öllu sparifé okkar. Hlakka til.

Miðvikudagur, 29. júní 2005 klukkan 15:45

Ekki það merkileg…

Mér fannst Batman færslan mín reyndar ekki það merkileg.

Miðvikudagur, 29. júní 2005 klukkan 12:04

Dance into the fire

Það er ekki laust við að manni hlakki til að fara á Duran Duran. Í gær var viðtal við Tóta í Kvöldþættinum þar sem hann talaði um ást sína á hljómsveitinni. Tóti virðist hrifnastur af *Union of the Snake* en ég verð að segja að *Rio* er í mun meira uppáhaldi hjá mér. Í raun þá er það tvennan *Save a prayer* og *The Chauffeur* sem gera útslagið með það. *Save a prayer* var uppáhalds Duranlagið mitt lengi en *The Chauffeur* tók síðan við.

*The Chauffeur* er fullkomið dæmi um það þegar hægt er að mála mynd, textinn er ekki beint saga heldur lýsing á aðstæðum. Það minnir mig líka nær alltaf á fyrsta kvöldið sem við Eygló eyddum saman.

*Is there something I should know* hefur líka alltaf verið í uppáhaldi hjá mér en því miður lítur það þannig út að Duran taki það ekki á tónleikunum. Ég hefði viljað kyrja “Please please tell me now!”.

Ég man þegar remix af *Save a prayer* var vinsælt á fyrri hluta tíunda áratugarins, þoldi það alls ekki en líklega átti það sinn þátt í að ég byrjaði að kaupa Durandiskana. Ég á reyndar ekki heildarsafn Duran, vantar *Pop Trash*, *Medezzaland* (veit ekki einu sinni hvernig það er skrifað) og *Thank you* (ofurflopp coverplatan þeirra).

Ég man að ég tók, mjög ungur, afstöðu með Duran í Wham! vs Duran Duran deilunni allri. Man eftir að hafa verið að krassa Duran Duran á einhverja miðja í Klettavíkinni á sínum tíma. Þessi deila er svosem ekki áhugaverð lengur. Sjálfur er ég alltaf nokkuð hrifinn af Wham!, á einn disk með þeim og síðan allavega einn með George Michael. Anna systir á síðan örugglega Son of Adam eða hvað hún hét aftur sólóplatan hans Andrew Ridgeley.

Það er svoltið magnað að vera á leiðinni á Durantónleika, hlakka til. Duran er náttúrulega hljómsveit níunda áratugarins, engin er þarna nálægt (Queen telst ekki með þó þeir hafi starfað á þessum árum, þeir eru áttunda áratugar band).

Sjálfur hefði ég ekki valið Leaves sem upphitunarband en þeir eru alveg þolanlegir.

En hvernig kemst maður að því hvernig veitingar verða seldar þarna? Ég nenni ekki að kaupa mér fokdýrt rusl einsog var á Planttónleikunum. Pínulitlir flögupokar á 250 krónur og síðan lítil kók dós á sama verði.

Auðveld spurning að lokum, úr hvaða lagi er titill færslunnar?

Þriðjudagur, 28. júní 2005 klukkan 12:45

Batman byrjar

Það var mjög góður dómur um *Batman Begins* í Grapevine. Súmmeraði þessu vel upp. Það hefði átt að sleppa ruglinu um “The Shadow League” (eða hvað það hét) og allri rassavasasálfræðinni. Katie Holmes dró myndina líka niður. Sjálfur ætla ég að gerast svo djarfur að segja að *Batman* með Michael Keaton sé afar vanmetin mynd (sérstaklega er Keaton sjálfur vanmetin).

Þriðjudagur, 28. júní 2005 klukkan 9:03

Arg

SPRON er að ergja mig. Virðast eiga erfitt með að halda í gögnin sem ég sendi þeim.

Mánudagur, 27. júní 2005 klukkan 12:24

Og ekki mér að kenna

Rétt áðan leystist vandamál í vinnunni. Ef þetta hefði ekki bjargast þá hefði mér líklega verið kennt um það þó sökin væri ekki mín.

Föstudagur, 24. júní 2005 klukkan 14:51

Hip og trendí fólk

Ef ég væri laus í kvöld þá gæti ég farið á samkomu með hip og trendí fólki en ég er það ekki þannig að ég fer ekki.

Föstudagur, 24. júní 2005 klukkan 12:08

Örstutt um íbúðina

Ég var víst búinn að lofa meiru um íbúðina. Hún er semsagt í Bökkunum. Hún er á jarðhæð í stórri blokk. Með henni er örlítill garður sem er bara fyrir okkur. Þarna er líka pallur sem snýr í suður. Blokkin sjálf er U-laga (en ekki beint heldur kassalagað U) og inn í þessu U-i er sameiginlegur garður. Það er 10-11 þarna rétt hjá.

Íbúðin sjálf er um 89 fermetrar, þar af rúmlega 8 fermetra geymsla í kjallara. Það eru tvö stór svefnherbergi og ein stór stofa. Eldhúsið er í norðurhlutanum en stofan í suðurhlutanum, enginn veggur er á milli heldur er bara opið rými. Herbergin eru í norðurhlutanum sitt hvorum megin við eldhúsið. Það er engin forstofa, útidyrahurðin er í miðri íbúðinni á milli stofunnar og eldhússins. Baðherbergið er með baðkari sem mér þykir voðalega notalegt eftir að hafa verið rúm sex ár án slíks.

Fyrir þetta borgum við 14.2 milljónir. Einhverjar spurningar?

Fimmtudagur, 23. júní 2005 klukkan 12:35

Tryggingar og atvinna

Við fórum að redda tryggingum fyrir nýju íbúðinni í morgun. Allir pappírar ættu að vera komnir þá í bili. Síðan þurfti ég að fórna bílnum áðan svo Eygló geti farið í atvinnuviðtal.

Þriðjudagur, 21. júní 2005 klukkan 22:27

Tíu lífeyrissjóðir

Ég hef greinilega borgað í tíu lífeyrissjóði í gegnum tíðina, þar á meðal Norðurlands, Vesturlands og Austurlands. Mig ætti ekki að skorta í ellinni.

Eldri færslur »