Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 31. júlí 2005 klukkan 21:16

Gljástigi og skyldleiki

Í gær fórum við enn og aftur í búðaferðir. Skoða ljós, málningu, ísskápa og allt sem fylgir. Borðuðum kjötbollur og grænmetisbuff í IKEA. Fórum síðan í Húsasmiðjuna þar sem við hittum Þórð. Hann sagði okkur frá gljástigi og sálfræði litana. Ég sagði honum að ég hefði séð að hann væri kominn inn í fjölskylduna í gegnum konuna (heitir meiraðsegja Steinunn Anna) og barnið. Gat reyndar ekki sagt honum hvernig tengslin voru en kíkti áðan, konan hans er barnabarnabarn Önnu systur afa. Minnir mig á að Anna verður 95 ára 12. ágúst.

Laugardagur, 30. júlí 2005 klukkan 21:42

Svoltið nöts

Eygló langar að fara til New York í október að sjá U2 í Madison Square Garden. Hægt væri að komast líka á tónleika með Queen+Paul Rodgers í New Jersey tveim kvöldum seinna. Hún er svoltið nöts.

Föstudagur, 29. júlí 2005 klukkan 15:49

Gneistaflug 2005

Lengur en nokkur man þá hefur hátíðin Gneistaflug verið haldin um Verslunarmannahelgina. Gleði manna er óumdeild. Hvað verður um að vera á Gneistaflugi? Það fer eftir aðstæðum. Væntanlega verður byrjað í Skipholti þar sem hátíðargestir fá hamborgara og síðan verður haldið í Kringluna þar sem gestir byrgja sig fyrir helgina. Síðan förum við heim og ég skríð upp í rúm.

Föstudagur, 29. júlí 2005 klukkan 12:34

Löggiltir umhverfisverndarsinnar

Alltaf gaman þegar fólk talar um aðra sem sjálfskipaða hitt og þetta. Geir Ágústsson frjálshyggjupostuli (sjálfskipaður væntanlega) gerir þetta þegar hann skrifar um hóp sjálfskipaðra umhverfisverndarsinna.

Ég spyr: Hver á að skipa umhverfisverndarsinna?

Eigum við að stofna eitthvað batterí sem löggildir svoleiðis fólk? Stofna námsbraut umhverfisverndarsinna við Háskóla Íslands? Hvernig getum við komið í veg fyrir að sjálfskipaðir umhverfisverndarsinnar séu út um allt og komið opinberum umhverfisverndarsinnum að í staðinn?

Föstudagur, 29. júlí 2005 klukkan 9:23

Ekkert

Það verður indælt að gera ekkert um helgina, kannski skreppa aðeins búðir en annars bara hanga. Ahh.

Fimmtudagur, 28. júlí 2005 klukkan 13:12

Guð elskar mig væntanlega…

Einhver skyldi eftir miða á borðinu mínu hérna í vinnunni þar sem stendur Guð elskar þig! Mig grunaði strax ákveðinn aðila en hann neitaði. Spurning hvort það sé hjálparkokkur hans. Mér líka sagt að það hefðu verið haldnar bænastundir hérna til að reyna að koma mér aftur á lappir.

Miðvikudagur, 27. júlí 2005 klukkan 19:56

Kastljóspakk

Voðalega hata ég þetta Kastljóspakk. Hvernig umber þjóðin að aðalumræðuþáttur Ríkissjónvarpsins sé meira og minna áróður fyrir Sjálfsstæðisflokkinn? Hvað er stórt hlutfall þeirra sem hafa verið í þessum þætti sem ekki hafa verið félagar í Sjálfsstæðisflokknum? Ég bara spyr.

Núna er verið að ræða um Kárahnjúka og áróðursfulltrúi Landsvirkjunnar fær að þvæla að vild meðan fulltrúi mótmælenda fær ekki að koma orði að, ekki vegna þess að Landsvirkjunarkallinn sé að trufla hana heldur af því að helvítis þáttastjórnendurnir eru að grípa fram í fyrir henni. Ömurlegt fólk.

Miðvikudagur, 27. júlí 2005 klukkan 17:53

Blóðhor (lesið á eigin ábyrgð)

Þegar ég var að snýta mér áðan þá var horið full blóðblandað fyrir minn smekk. Mér lýst ekkert á þetta. Fyrirbænirnar virðast allavega ekki vera að virka.

Miðvikudagur, 27. júlí 2005 klukkan 15:07

Stutt saga vantrúar

Var að klára að horfa á *A Brief History of Disbelief* með Jonathan Miller. Áhugaverð þáttaröð. Reyndar verð ég að segja að *The Atheism Tapes*, sem er hálfgerð fylgiþáttaröð, hafi verið miklu meira heillandi. Í þeim þáttum voru löng viðtöl, eða samtöl, sem Miller átti við nokkra guðleysingja. Þátturinn með Arthur Miller var eiginlega sá allra mest heillandi en hinir, til dæmis Richard Dawkins, voru líka góðir.

Vona að BBC taka sig til og gefi þetta út á dvd svo maður geti átt þetta í almennilegri útgáfu.

Miðvikudagur, 27. júlí 2005 klukkan 13:19

Bjórflöskutjaldhælar

Jæja, ennþá veikur heima. Pirrandi og ömurlegt.

En ég ætla að segja svoltið sem gleymdist í löngu og ítarlegu ferðasögunni.

Næsta tjald við mig var lágreist tjald, í þessu klassíska þríhyrningslaga formi. Það var frekar illa statt þegar við komum en þegar eigandinn kom á svæðið þá sagði ég við Árna að þó tjaldið væri í vondu ásigkomulagi þá væri eigandinn nú verr staddur. Árni hélt að eigandinn væri nú bara að leita að einhverju á jörðinni en ég benti á að náunginn hefði verið svona í um tíu mínútur. Hann skreið loksins inn í tjaldið og var hressari þegar við hittum hann daginn eftir.

Það var sérstakt að sjá hvernig hann tjaldaði, í stað klassískra tjaldhæla þá hafði hann notað bjórflöskur. Hann útskýrði þetta þegar hann vaknaði. Þegar hann kom kvöldið áður þá fattaði hann að hælarnir höfðu gleymst. Hann pældi mikið í því hvað hann ætti að gera og áttaði sig á að bjórflöskur gætu fúnkerað sem tjaldhælar. Hann tók sig þá til við að tæma/drekka nógu margar flöskur til að halda tjaldinu stöðugu, það voru tíu flöskur sem hann drakk eins hratt og hann gat. Það útskýrði ástandið á honum þegar við sáum hann.

Eldri færslur »