Alltaf gaman þegar fólk talar um aðra sem sjálfskipaða hitt og þetta. Geir Ágústsson frjálshyggjupostuli (sjálfskipaður væntanlega) gerir þetta þegar hann skrifar um hóp sjálfskipaðra umhverfisverndarsinna.
Ég spyr: Hver á að skipa umhverfisverndarsinna?
Eigum við að stofna eitthvað batterí sem löggildir svoleiðis fólk? Stofna námsbraut umhverfisverndarsinna við Háskóla Íslands? Hvernig getum við komið í veg fyrir að sjálfskipaðir umhverfisverndarsinnar séu út um allt og komið opinberum umhverfisverndarsinnum að í staðinn?
Þetta var nú virkilega klaufalega orðað hjá honum, kannski ætti maður að senda honum línum og spyrja hann út í þetta og sjá hver viðbrögðin yrðu.
Það er náttúrulega hægt að stofna sjálfskipaða nefnd sem sér um slíkt.
Ég fékk þessa línu aldrei, og í þessari færslu er heldur ekkert sagt það sem ég síðar skrifaði um sömu setningu (og samskonar gagnrýni við orðalaginu):
http://geiragustsson.blogspot.com/2005/08/drullupollinn-og-ofsalegt-vald.html
http://geiragustsson.blogspot.com/2005/08/drullupollinn-og-ofsalegt-vald.html
Flóknara er það sosem ekki.
Af hverju fékk ég aldrei þessa línu? geirag hjá gmail punktur com