Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 31. ágúst 2005 klukkan 22:45

Bjargaðu mér frá leiðinlegum sjónvarpsþáttum

Voðalega er Rescue me leiðinlegur þáttur. Þetta karlrembu/hommafóbíu kjaftæði fer í taugarnar á mér. Á þetta að vera lexía um hvað sé frábært að vera ömurleg steríótýpa eða hvað það sé ömurlegt að vera léleg steríótýpa. Mér er sama. Þetta er jafnleiðinlegt hvor sem lexían á að vera. Síðan er spurning hvað málið sé með að annar hver þáttur þarna fjallar um fólk að tala við dautt fólk eða guði.

Miðvikudagur, 31. ágúst 2005 klukkan 21:42

Afmælisbarn

Afmælisbarn dagsins er Hafdís systir mín. Spurning hvort ég fari að hringja í hana.

Miðvikudagur, 31. ágúst 2005 klukkan 16:42

Óspennandi Árni…

Ég verð að játa að mér finnst Árni Þór ekkert spennandi kostur í toppsæti hjá VG í Reykjavík. Maðurinn höfðar voðalega lítið til mín. Ég hef líka einu sinni sent honum fyrirspurn í tölvupósti og fékk ekkert svar. Mínus þar. Hvaða spennandi fólk verður í prófkjörinu. Enginn sem nefndur hefur verið til þessa. Nema náttúrulega Dögg…

Miðvikudagur, 31. ágúst 2005 klukkan 12:37

South Park - Bara fyrir dánlódara

Undanfarið hafa nokkrir minnst á það á bloggsíðum sínum hve skrýtið rt að South Park sé ekki sýnt í íslensku sjónvarpi. Ég verð að taka undir það. Þetta var sýnt á Sýn hér áður fyrr, ekki var ég með þá stöð enda áhugi minn á íþróttum takmarkaður. Síðan var þetta sýnt á Popptíví sem ég missti alltaf af vegna þess að dagskráin þar var svo reikul. Nú er verið að sýna 9du seríu af South Park úti og engin sjónvarpsstöð hér hefur tekið við sér. Þetta er bara fáránlegt. South Park er klassískt efni. Hvenær munu íslenskar sjónvarpsstöðvar vakna og átta sig á að hér er gimsteinn sem myndi laða að ótal áhorfendur (einmitt á þessum gullaldri 16-35 sem allir vilja fá)?

Þeir sem geta horft á South Park eru þeir sem taka þetta inn af netinu og þeir sem kaupa sér þetta á dvd. Þetta er beinlínis hvatning frá sjónvarpsstöðvum til almennings að fara að stunda niðurhal á þessum þáttum. Engir Íslendingar með áhrif virðast sjá að þarna er efni sem er hægt að græða á. Furðulegt alveg.

Miðvikudagur, 31. ágúst 2005 klukkan 10:28

Umbreytingar

Í gær kláruðum við að ganga frá íbúðinni í Eggertsgötunni og kvöddum hana. Ég náði að brjóta eitt ljós í leiðinni. Í dag er síðasti vinnudagurinn minn en á morgun er fyrsti vinnudagurinn í vetrarvinnunni. Morgundagurinn er líka fyrsti skóladagurinn. Á föstudaginn mun ég hanga við borð að kynna Háskólalistann. Allt að gerast, allt að breytast.

Þriðjudagur, 30. ágúst 2005 klukkan 12:57

Óvænt launahækkun

Ég fékk launahækkun áðan, í vetrarvinnunni semsé. Eygló opnaði bréf til mín í gömlu íbúðinni og sagði mér frá því. Það er ágætt að fá launahækkun en það sem er skemmtilegra er að hún er afturvirk. Ég fæ þar af leiðandi útborgað núna á fimmtudaginn fyrir vinnu sem ég vann síðasta vetur (þó ég hafi í raun verið sáttur við launin mín þá). Mikið er ég glaður. Þetta dugar fyrir bölvuðum gólflistunum.

Þriðjudagur, 30. ágúst 2005 klukkan 9:02

Góð rafvirkjaráð

Jæja, í gær fékk ég rafvirkjaráð og það er víst í lagi að ganga frá vírunum á einfalda mátann með herpiádragi. Mikið er ég glaður. Ég hef verið hálfstopp í framkvæmdum útaf þessu. Í kvöld geng ég frá tenglum og vírum og þá get ég farið að ganga frá gólflistunum af fullum krafti.

Mánudagur, 29. ágúst 2005 klukkan 13:58

Guðleysingjakoma undirbúin

Um helgina var ég á fundi hjá undirbúningsnefnd um alþjóðlega guðleysingjaráðstefnu sem verður haldin hér á næsta ári. Ég er þar fyrir hönd Skeptíkusar. Þarna bættust við nokkur verkefni á mig en það verður bara gaman að leysa þau.

Mánudagur, 29. ágúst 2005 klukkan 11:57

Bíla- og húsarafmagnsvandræði

Það vantaði líklega bara vatn á rafgeyminn. Það er búið að vera endalaust vesen með að starta bílnum síðustu daga. Ég hélt að það væri útaf jukkinu sem safnast hefur fyrir á pólunum og þreif þá vel og vandlega, lét síðan koppafeiti á en það dugði ekki. Í gær þá var Eygló að spjalla við mömmu sína sem minntist á að það gæti verið að það vantaði vatn á rafgeyminn. Ég varð svoltið pirraður við sjálfan mig að fatta þetta ekki fyrr. Í morgun bætti ég vatni á geyminn og Eygló segir mér að eftir það hafi allt verið betra.

Það er undarlegt að vera allt í einu í þeirri stöðu að vera með vandræðabíl. Ég hef verið á þessum undragrip í rúm þrjú ár og dagsdaglega er hann draumur.

Á eftir fer ég að spjalla við fyrrverandi yfirmann minn um hvernig skal ganga frá rafmagninu heima. Annað hvort þarf ég að brjóta úr veggjunum eða einfaldlega lauma smá plasti á vírana.

Mánudagur, 29. ágúst 2005 klukkan 10:13

Óþarfa panikk

Sumir virðast vera að panikka óhóflega yfir einni skoðanakönnun. Það er algjör óþarfi. Þeir sem eru vanir að kjósa Sjálfsstæðisflokkinn segjast kjósa hann en þeir sem eru vanir að kjósa R-listann eru væntanlega margir að hugsa sig um, sumir væntanlega fúlir. Það er alltof snemmt að fara að draga nokkrar ályktanir af þessu.

Eldri færslur »