Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 31. október 2005 klukkan 23:18

Viðbættar myndir

Ég bætti við myndum í myndasafnið. Ef þið eruð ekki með lykilorð þá spyrjið þið mig.

Meðal annars eru útskriftarmyndir, flutningamyndir, innflutningspartímyndir, kveðjupartí Lallamyndir og fleira. Ég hef ekki skrifað mikið af athugasemdum en þið getið bætt ykkar eigin við.

Mánudagur, 31. október 2005 klukkan 10:42

Fyrirlestur búinn

Fyrirlesturinn gekk bara vel áðan. Sleppti því að tala of mikið um aðhvarfsgreiningu.

Klára síðan ritgerðina á næstu dögum.

Sunnudagur, 30. október 2005 klukkan 22:28

Báðar fylkingar gátu unað við sitt

“…þannig gátu báðar fylkingar unað við sitt úr því að hinn fékk hann ekki.” - Egill Helgason.

Ég spyr lesendur mína hvað þeim hafi fyrst dottið í hug að Egill væri að tala um.

Sunnudagur, 30. október 2005 klukkan 19:20

Frumlegheitin ein

Sigurbjörn gamli biskup segir að það mikilvægasta í lífinu sé ekki metið til fjár. Gott að hafa einhvern sem kemur með þessa frumlegu gullmola.

Sunnudagur, 30. október 2005 klukkan 15:17

Að fórna hamri?

Áðan var ég á leiðinni í vinnuna í Strætó. Vagninn var að keyra í gegnum nýja Hringtorgið þarna á Njarðargötunni. Það voru einhverjir að vinna þarna og þeir voru bara út á götu þó það væri augljóst að vagninn þyrfti að komast. Eftir smá tíma fattaði þetta lið að þeir þyrftu að færa sig en ég tók eftir að þeir skyldu allavega einn hamar eftir á götunni. Vagninn keyrir áfram og ég sá viðbrögðum þeirra að vagninn keyrði yfir eitthvað sem þeir höfðu skilið þarna eftir (líklega hamarinn). Ég sá alveg fyrir að þetta myndi gerast þó ég væri inn í vagninum, veit ekki hvers vegna þeir voru svona gáttaðir. Gáfað lið.

Sunnudagur, 30. október 2005 klukkan 13:13

Að ná tökum

Ég hef þá tilfinningu að ég sé að ná stjórn á námi mínu sem hefur verið á sveimi undanfarið. Væntanlega var það bara einhver taugatitringur vegna þess að ýmislegt fleira var á seyði, tengt námi og ótengt. Fyrirlestur á morgun og með honum fylgir ritgerð sem er nærri til. Á fimmtudag eða miðvikudag stjórna ég umræðum og í næstu viku er aftur fyrirlestur og vonandi klára ég ritgerðina um leið. Þá eru flest verkefnin væntanlega tilbúin og ég get þá farið að læra… Próftaflan er annars fín.

Ég var að fá góða hugmynd að BA-verkefni og stefni á að ræða hana við kennara á næstu dögum eða vikum. Þegar það er komið ætti leiðin vera nokkuð greið að útskrift í júní. Stefni að því að vera bara í lokaverkefninu á næstu önn og leyfa mér að dunda í öðrum málum með náminu (þar á meðal reyndar að skipuleggja Mastersnámið).

Laugardagur, 29. október 2005 klukkan 21:51

Að prumpa upp höfuð

Kannski að útskýra síðustu færslu. Ég fékk áðan tvö komment. Hið fyrra var yfirdrull yfir Hjördísi vinkonu mína út af kommenti sem hún kom með. Ég eyddi því maðal annars af því að náunginn gaf bara upp emailið hrumur@yahoo.com og ég get ekkert vitað út frá því hver væri þar á ferð. Seinna kommentið var drull yfir mig og sagt að það væri týpískt að ég eyddi kommentum og einnig sagt að þá skiptu stjórnmálaskoðanir fólks einhverju máli. Ég og Hjördís erum engir sérstakir pólitískir samherjar og það er því bjánaleg athugasemd.

Það sem var heimskulegast við þetta var að náunginn hafði mislesið kommentið hennar Hjördísar. Hjördís sagði að ákveðinn frambjóðandi liti út einsog einhver hefði pumpað upp höfuðið á honum en fíflið sem kommentaði hélt að Hjördís hefði skrifað að hann liti út einsog einhver hefði **prumpað** upp höfuðið á honum. Töluverður munur þar á. Ekki það að kommentið hennar Hjördísar hafi verið sérstaklega fallegt en hún er stór stelpa og ef einhver hefði gagnrýnt hana heiðarlega þá hefði það verið í lagi.

Hvernig prumpar maður annars upp höfuðið á einhverjum?

Laugardagur, 29. október 2005 klukkan 21:25

Um athugasemdirnar

Að gefnu tilefni vil ég taka fram að þeir sem koma með athugasemdir hér bera sjálfir ábyrgð á þeim. Hluti af ábyrgðinni er að gefa upp réttar upplýsingar um sig. Augljóslega skiptir þetta engu þegar fólk er að koma með einfaldar athugasemdir en ef fólk ætlar til dæmis að skjóta á aðra þá verða að fylgja upplýsingar sem tryggja að allavega ég, sem ábyrgðarmaður síðunnar, geti vitað hver er á ferð.

Það er annars örsjaldan sem ég eyði kommentum, nema augljóslega þeim sem koma frá spömmurum.

Laugardagur, 29. október 2005 klukkan 20:17

Kveðjumyndir

Setti inn myndirnar frá því í gær. Ég á eftir að sakna þess að fara til Alexöndru þegar vinnudagurinn klárast og að spjalla við hana á leiðinni út. Dáltið mikið í raun.

Laugardagur, 29. október 2005 klukkan 12:40

Enn einn frambjóðandinn

Það er misjafn sauður í stórum hóp. Hér er enn einn frambjóðandi í prófkjöri Sjálfsstæðisflokksins í Rvk.

Eldri færslur »