Kvöldþátturinn er hættur. Það er bömmer því að hann var orðinn nokkuð góður.
Kvöldþátturinn er hættur. Það er bömmer því að hann var orðinn nokkuð góður.
Ég er kominn í vinnuna en ekki alveg vaknaður. Ekki alveg hress orðinn. Vona að það komi.
Loftur Már Sigurðsson. Hann er fæddur 69 en er samt miðaldra einsog einkavinur einkabílsins sem er jafnvel yngri.
Ég hef síðustu daga tekið eftir að stjórnendur b2.is hafa verið að skoða færsluna sem ég skrifaði um starfsmannaleiguna 2B (aulabrandarinn B2=2B). Þeir hafa síðan sett inn vísun á þetta núna áðan. Vona að einhverjir lesendur þaðan skoði eitthvað gáfulegra en þessa færslu. Ég reyndar lokaði fyrir athugasemdirnar þarna bara af því að ég nenni ekki að fá tugi athugasemda eins og hefur áður gerst þegar ég hef fengið vísun þaðan.
Ég var í gær að hlusta á Eivöru í mp3 spilaranum, á lagið *Í Gøtu ein dag*, og fattaði í miðjum klíðum að ég skyldi miklu meira af færeyskunni en venjulega. Ég næ ekki samhenginu alltaf en ég er alltaf að verða betri.
Hjátrúarritgerðin/fyrirlestursundirbúningur gengur vel. Ég er komin á leið með verkið og farinn að senda uppköst til félaga míns sem getur síðan bætt við. Fjórar blaðsíður síðan um klukkan 12. Þettta er gott.
Í gær var síðasti dagurinn hennar Alexöndru í vinnunni. Svoltið leiðinlegt enda var hún sú eina sem maður þekkti eitthvað áður en maður byrjaði þarna. En nú þekkir maður að sjálfssögðu mun fleiri og almennt er stemmingin í vinnunni “where everybody knows your name”. Út að borða í kvöld til að kveðja Alexöndru. Það verður bara væntanlega skemmtilegt.
Bæði Friðbjörn Orri og Hjörtur J. Guðmundsson hafa lýst yfir stuðningi við Palla í prófkjörinu. Mér þykir það óborganlega fyndið. Annars hefur Palli ekki svarað póstinum frá mér um hvaða rannsóknir hann var að vitna í þegar hann skrifaði um mengun frá Strætó.
Var að koma úr baði. Ég notaði tímann til að lesa bók fyrir hjatrúarritgerðina. Ég fékk alveg nokkrar hugljómanir. Ég nýt þess að hafa baðkar, vildi samt að það væri stærra.
Uppfærði gjafahugmyndalistann. Veit ekki hvort ég mun hafa vit á að uppfæra hann aftur í bráð.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « sept. | nóv. » | |||||
| 1 | ||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
| 30 | 31 | |||||
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)