Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 30. nóvember 2005 klukkan 23:08

Dúllan ég

Í dag var mér sagt að ég væri dúllulegur með nýju húfuna mína. Það var ekki lúkkið sem ég var að leita eftir. Það var tekið fram að þetta væri mikil breyting frá mínu venjulega útliti. Sem þýðir að án húfunnar er ég ekki dúllulegur. Stundum veit maður ekki hvað er hrós og hvað er móðgun.

Miðvikudagur, 30. nóvember 2005 klukkan 11:19

Saman í hring

Ég ætlaði að nýta þennan tíma í að sitja aftast og klára heimildarskrá og tilvísanir en nei. Nú sitjum við öll í hring og látum bækur ganga. Ég gleymdi að ég ætti að koma með bók.

Miðvikudagur, 30. nóvember 2005 klukkan 4:12

Samt mun ég vaka

Það að vaka fram á nótt borgar sig greinilega. Nú er ég í fyrsta sinn að sjá myndbandið *Má ég sparka?* með félaga 7berg. Áfram með ritgerðarskrif….

Þriðjudagur, 29. nóvember 2005 klukkan 18:13

Embla í fyrsta sæti en vefverðlaunin í því sjöunda

Jæja, Embla var valinn besti íslenski vefurinn. Þess má geta að ef þú leitar að orðinu vefverðaun á Emblu þá vefur Íslensku vefverðlaunanna í sjöunda sæti.

Það að skoða verðlaunahafana (utan hamstursins) minnir mig á það hvers vegna ég veitti Vefverðlaun Gneistans.

Þriðjudagur, 29. nóvember 2005 klukkan 17:54

Forsíða

Ég verð að segja að mér finnst óborganlega fyndið að forsíða Íslensku vefverðlaunanna hafi titilinn “Forsíða”. Þetta er þó allavega skref fyrir ofan “New page 1″.

Þriðjudagur, 29. nóvember 2005 klukkan 12:46

Verkefni dagsins og næstu daga…

Verkefni dagsins er að klára einsog eina ritgerð. Það ætti alveg að ganga. Ég hef heimilið fyrir sjálfan mig til rúmlega níu í kvöld. Ég hef búðina rétt hjá ef ég finn fyrir kókþörf. Ég er líka búinn að fá á hreint að ég þarf ekki að redda mér fleiri heimildum (takk Sigrún).

Annað kvöld verður síðasta verkefni vetrarins vonandi klárað.

Fimmtudagurinn er erfiður því ég er tvíbókaður klukkan eitt. Fórna væntanlega jólahlaðborðinu. Bömmer reyndar en þegar formaðurinn segir manni að gera eitthvað þá hlýðir maður. Fimmtudagskvöldið stefni ég á MegaSukk.

Á föstudaginn er síðan jólaglögg hérna fyrir þjóðfræðinema. Grúvístuð vissulega. Ég mun stjórna spurningakeppni. Síðustu tvö ár hýstum við Eygló jólaglögg Katalogosar þannig að þetta er ekkert nýtt fyrir okkur.

Laugardaginn er ráðstefnufundur snemma morguns og laufabrauðsundirbúningur seint um kvöld.

Á sunnudag er laufabrauðsgerð. Hvar getur maður keypt sér gott laufabrauðsjárn í Reykjavík (eða nágrenni)?

Síðan er það bara próflesturinn…

Sunnudagur, 27. nóvember 2005 klukkan 23:47

Vopnafjörður 1999 vs Reykjavík 2005

Tónleikarnir voru magnaðir. Tónlistin flott og það var ekki vanrækt að láta þetta líta vel út. En allir hljóta að spyrja hvort þessir tónleikar jafnist á við hina klassísku Sigur Rósar tónleika 14. ágúst 1999 í félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði. Það er góð spurning. Það er ljóst að það voru þáttaskil fyrir hljómsveitina á þeim tónleikum. Aðdáendur Sigur Rósar tala með óttablandinni virðingu um “giggið” eins og það er vanalega kallað, þeir sem urðu vitni að þeim tónleikum eru hálfguðir sem ber að koma fram við sem hetjur fornra tíma. Ójá.

Ég ýki kannski en þetta voru stórkostlegir tónleikar. Við Eygló vorum þarna nýbyrjuð saman, hún nýflutt til Akureyrar til að búa hjá mér og vinna í Lystigarðinum. Skruppum austur aðallega fyrir Hofsballið. Ég var ekki aðdáandi Sigur Rósar á þessum tíma en það var lítið sem komst að í umfjöllun um íslenska tónlist á þessum tíma. Fólk var að átta sig á því hve góð plata Ágætis byrjun var í raun. Þess vegna fór ég. Og svosem lítið annað að gera á Vopnafirði. Þetta voru fámennir tónleikar, hugsanlega svona 20-30 manns. Við ætluðum fyrst að setjast frekar aftarlega en færðum okkur framar þegar ljóst var hve fáir yrðu. Á meðal gesta var Óli Palli sem kom með hljómsveitinni. Á tónleikunum var útvarpsmanninum síðan þakkað fyrir að hafa vaskað upp.

Það var mjög spes að sjá Sigur Rós í félagsheimilinu, hljóðkerfið var ekki alltaf að þola þá. Samt flott, mjög flott. Ég féll alveg fyrir þeim. Ég get ekkert farið að lýsa stemmingunni né tónlistinni. En þeir voru spjallgjarnari á þeim tónleikum heldur en núna í kvöld.

Ég gúgglaði núna rétt í þessu og sé að tónleikarnir hafa verið Sigur Rósar meðlimum eftirminnilegir líka:

next summer we’re going to tour iceland. we want to do five or six concerts all around the country like we did in 1999. it was so great. in vopnafjörður we played for 25 people.

Mér skilst líka að Vopnafjörður sé hluti af sögu hljómsveitarinnar á annan hátt, sagan sem við heyrum í Flugufrelsaranum gerist þar.

Eftir tónleikana var Hofsball (ég hélt það þá ekki, það var ári seinna). Ég man ekki hverjir spiluðu þar en aðal ballgestirnir voru Sigur Rósar meðlimirnir. Þeir djömmuðu þarna með óbreyttum vopnfirskum pöpulnum. Mig minnir að ég hafi jafnvel afgreitt Jónsa í sjoppunni. Ætli það hafi liðið nema svona hálft ár þangað til að þeir hituðu upp fyrir Radiohead.

Þannig að þó að tónleikarnir í kvöld hafi verið fokkings magnaðir þá veita þeir tónleikunum 1999 enga samkeppni.

Sunnudagur, 27. nóvember 2005 klukkan 16:27

Sigur Rós

Jæja, Sigur Rós í kvöld. Í gær sáum við að það voru ennþá til miðar þannig að við ákváðum að taka þetta tækifæri. Nýja platan er líka góð. Ég held að hvorugt okkar hafi farið á Sigur Rós síðan á Vopnafirði 1999.

Sunnudagur, 27. nóvember 2005 klukkan 14:57

Ný Dönsk í gær

Við fórum á Ný Dönsk í gær. Vissulega gaman. Rakst á Gumma Skáta. Spjallaði örstutt við hann.

Ný danskir mættu spila fleiri lög af eigin ferli þó Bítlalögin séu vissulega skemmtileg. Það er líka óþarfi að endurtaka lög.

Laugardagur, 26. nóvember 2005 klukkan 16:04

Ný dönsk á Nösu

Við Eygló stefnum á að fara á Nösu í kvöld að sjá Ný Dönsk, kostar víst bara 500 kall inn og þeir fara á svið klukkan eitt. Fínt í nýdanskraræðið sem ég hef gengið í gegnum undanfarið. Þeir sem vilja slást í hópinn mega láta mig vita.

Eldri færslur »