Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 31. janúar 2006 klukkan 23:15

Skotland bókað

Jæja, Skotland er bókað.  Tvær nætur í Glasgow, fimm í Edinborg.  Gleðin ein mun ríkja.  Og Gotlandsfundur á morgun.  Það er fyndið að vera að fara til tveggja -otlanda.

Þriðjudagur, 31. janúar 2006 klukkan 16:28

Á bak við myndirnar

Jæja, margir hafa hrósað mér fyrir uppsetninguna á framboðslistasíðunum.  Hún er vissulega sniðug þó trikkið sé gamalt.  Þið sem hafið ekki þegar fattað þetta ættuð að kíkja á:

Framboðslisti Háskólalistans til Stúdentaráðs árið 2006
Framboðslisti Háskólalistans til Háskólaráðs árið 2006

Málið er að láta músina yfir myndirnar og sjá hvað gerist.

Þriðjudagur, 31. janúar 2006 klukkan 14:07

Snemma bognar skeiðin

Sóley frænka er komin með góða fyrirmynd.  Hún vill verða einsog Mythbusterinn.

Mánudagur, 30. janúar 2006 klukkan 23:57

Háskólalistinn

Háskólalistinn

Háskólalistinn

Mánudagur, 30. janúar 2006 klukkan 19:47

Stofugangur og Galdra-Tommi

Stofugangur gekk ákaflega vel í dag.  Nýja fólkið er mun öruggara með sig en við í fyrra.  Helsta vandamálið er kannski að fólk talar of mikið en svoleiðis gerist þegar menn er ástríðufullir.  Gamangaman.

Ég heyrði síðan af því að Galdra-Tommi hefði spjallað dáltið við einn Vökuliðann og það hefði endað á því að sá gekk á brott án þess að svara nokkru.  Vildi að ég hefði séð það.  Tommi getur verið svo brilljant.

Sunnudagur, 29. janúar 2006 klukkan 17:06

Upphengivinna

Jæja, gaman gaman, var að hengja upp veggspjöld með honum Eggerti félaga sem er í þriðja sæti Háskólalistans í ár.  Ef Háskólalistinn nær inn þremur mönnum þá dettum við saman inn.  Stefnum að því.

Þetta gekk merkilega vel.  Þurftum reyndar að henda heilmiklu af gömlum auglýsingum.

Laugardagur, 28. janúar 2006 klukkan 20:17

Hópefli Háskólalistans

Hópefli

Þarna erum við Elli, Bragi og Auður að komast í tengsl við tilfinningar okkar. Þau voru að drekka, ég hef enga afsökun.

Laugardagur, 28. janúar 2006 klukkan 18:40

Stílaði mest á mikla smölun í dag…

Óskar sem er í þriðja sætinu í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík var að útlista taktík sína í fréttatíma Stöðvar 2:

Ég stílaði mest inn á mikla smölun í dag.

Þið afsakið ef þetta er ekki 100% kvót en innihaldið var þetta.  Maður veit að þetta er satt en það er alltaf högg að fá svona hreint út.

Laugardagur, 28. janúar 2006 klukkan 12:00

Bústaðaferð Háskólalistans

Við ákváðum nokkrir að sleppa því að fara að sofa heldur vaka frameftir og stinga af úr bústaðnum þá.  Annars þá hefðum við sofið og síðan farið af stað sem hefði verið gagnlítið.

Bústaðaferðin var ótrúlega skemmtileg.  Við byrjuðum á að villast um í heillangan tíma áður en hann fannst.  Þegar allir voru loks komnir þá var skipt í þrjú lið, þau elstu, miðkynslóðin (sem spannaði tvö ár) og þau nýju.  Reyndar hefði þetta samkvæmt hefðinni átti þetta að vera bara yngri gegn eldri en sumir vildu breyta til.  Úrslitin komu svo sem ekki á óvart, við Elli, Arndís, Ásgeir og Ómar sigruðum nokkuð örugglega.

Eftir þetta uppljóstruðum við ýmsum leyndarmálum fyrir hvert annað í “ég hef aldrei”.  Við Fjölnir erum væntanlega einir um að muna nokkuð hvað var sagt þar einsog í næsta leik…

Þegar potturinn var orðinn nógu heitur var farið út í hann.  Það er merkilegt hvað má troða í einn pínuponsu heitan pott.  Við vorum semsagt fjórtán í honum.  Þetta var á tímapunktum sárt en mjög gaman.  Við fórum í sannleikann eða kontór og ýmislegt var sagt.  Elli kom sér á svívirðilegan hátt undan því að svara því hvaða Röskvu-/Vökuliða hann hefði girnst mest undanfarin ár.  Formaðurinn var líka almennt erfiður í leiknum sem og öðrum.  Á tímabili tæmdist potturinn næstum og ég veit ekki alveg hvernig við þoldum þennan kulda.

Þegar ég var nýkominn uppúr fór rafmagnið af svæðinu.  Þar björguðu gsmsímarnir okkur, díóðurnar rúla.  En þetta var kannski skemmtilegasta tími kvöldsins.  Við settumst við borðið, sumir stóðu á því reyndar, og sungum öll lög sem okkur kom til hugar.  Stemmingin datt niður þegar rafmagnið kom aftur á.

Síðasta skeið kvöldsins, eða morgunsins enda hefur klukkan verið orðin svona 7 að morgni þarna, var þegar við tókum gríðarlegar umræður um eðli sannleikans, vísindanna og mannsins.  Sérstaklega gaman að rökræða við Garðar.  Ekki vorum við alltaf alveg sammála en hann var óumdeilanlega góður að færa rök fyrir máli sínu.  Reyndar endaði þetta á því að ég, Eggert, Garðar og Hrafnkell vorum einir eftir.  Hrafnkell spilaði þá nokkur lög á gítarinn áður en ég vakti Raphaël og Ásgeir.  Við fórum heim á leið að ganga tíu.

Það var ógeðsleg þoka á Hellisheiðinni.  Ég sá varla neitt og keyrði ofurhægt alla leið.  Nú er ég svoltið þreyttur.  Var held ég búinn að lofa að hringja í Sleggjuna í dag þegar ég kæmi heim.

Föstudagur, 27. janúar 2006 klukkan 21:57

Háskólalistinn kynntur

Háskólalistinn var kynntur áðan, sjá hér.

Eldri færslur »