Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 28. febrúar 2006 klukkan 14:01

Vinnumál

Ég er að undirbúa starfsumsókn og skrapp þess vegna í sumarvinnuna frá því í fyrra áðan.  Ég fæ meðmæli þaðan en reyndar fékk ég líka tilboð um sumarvinnu þar.  Ef ég væri ekki að leita mér að einhverri vinnu sem ég gæti verið í með námi næsta vetur þá hefði ég þegið þetta einn, tveir og þrír.  En ég held að tilboðið standi alveg þar til ég fæ svar frá staðnum sem ég er að sækja um á núna.

Það er ágætt að þurfa ekki að eyða næstu mánuðum í eltingaleik við sumarvinnu.

Þriðjudagur, 28. febrúar 2006 klukkan 0:48

Bolludagur

Bollurnar voru vondar en kvöldið var annars gott.

Mánudagur, 27. febrúar 2006 klukkan 18:41

Alcoa í bíó

Það var áhugavert að sjá Alcoa í svona stóru hlutverki í myndinni Good Luck and Good Night sem við Eygló fórum á í gær.

Mánudagur, 27. febrúar 2006 klukkan 15:21

Fjögur ár

Í gær þá varð þessi dagbók 4 ára.  Ég byrjaði semsé 26. febrúar 2002.  Gamangaman.

Mánudagur, 27. febrúar 2006 klukkan 13:24

Á Bolludag

Mettaði hann ekki mannfjöldann með einni rjómabollu frá Samsölubakarí?

Mánudagur, 27. febrúar 2006 klukkan 12:12

Bókamarkaðurinn

Á föstudaginn fórum við Eygló á bókamarkað og keyptum nokkrar bækur.

  • Við fengum Ísland í aldanna rás á 5000 kall.
  • Eygló keypti Zoëgaættarbókina á 3000 krónur.
  • Smáglæpir og morð fengum við á 500, þar er saga eftir Hjörvar sem ég á alltaf eftir að lesa.
  • Lakkrísgerðin eftir Óskar Árna kostaði 700.
  • Við útganginn tók ég síðan útlitsgallað eintak af Sögu Tímans eftir Stephen Hawking á þúsund krónur.

Ágætis ferð, finnst samt einsog eitthvað sé að gleymast… jú, Eygló keypti eitthvað fleira.

Mánudagur, 27. febrúar 2006 klukkan 2:40

Að laða að viðskiptavini

Færslan hjá Sigga um Sólbaðsstofuna minnti mig á dáltið sem gerðist á laugardaginn.  Ég var að hitta Eygló í Kolaportinu.  Ég var í símanum að reyna að beina henni til mín og sá þá einhvern náunga kveikja í sígarettu þarna inni.  Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég farið að nöldra en fór frekar að reyna að hitta á Eygló.  Seinna var ég að skoða dvd myndir, var búin að finna einhverjar álitlegar þegar ég tók eftir að aðalnáunginn í básnum var fíflið sem var að reykja þarna inni.  Ég lagði myndirnar frá mér og kom mér út.  Ég versla ekki við svona fólk.

Sunnudagur, 26. febrúar 2006 klukkan 17:37

Kynning og þjóðir

Í dag kynnti ég þjóðfræði.  Á sama tíma í fyrra og hittifyrra þá kynnti ég bókasafns- og upplýsingafræði.  Ég virðist líta á mig sem afskaplega góðan fulltrúa náms míns.  Það var bara gaman á þessari kynningu.  Ég byrjaði sitjandi út í horni en þar sem hópur af stjórnmálafræðikennurum blokkeraði leið væntanlegra þjóðfræðinema að borði okkar þá ákvað ég að koma mér fyrir hjá borði bókasafns- og upplýsingafræðinnar sem var með besta staðinn.  Þar tróð ég bæklingum að öllum.  Ef fólk vildi afþakka bækling sagði ég bara “jú víst”, “af hverju ekki” eða einfaldlega “þú veist þú vilt það”.  Á meðan ég stóð þarna var ég í góðum félagsskap stærðfræðinema sem flestir héldu að væri þjóðfræðinemi líka.  Mín Lofthænutala er 20.

Ég fór síðan á Þjóðahátíð.  Þjóðfræðinemar höfðu séð um íslenska básinn og það var vel gert þó að fáar hugmyndir mínar hafi verið notaðar.  Í gær var ég með í að setja upp básinn og það endaði einhvern veginn út í fjöru þar sem Rósa formaður fékk á sig væna gusu.  Það þótti mér fyndið.

Sunnudagur, 26. febrúar 2006 klukkan 10:23

Hamingjuóskir

Það er svoltið gaman að ég hef fengið álíka margar ef ekki fleiri hamingjuóskir með niðurstöðu skiptafundar Stúdentaráðs í ár heldur en ég fékk í fyrra.

Laugardagur, 25. febrúar 2006 klukkan 23:46

Útskriftarfólkið

Ég ætlaði nú að óska útskriftarnemum sem ég þekki til hamingju.  Þeir eru víðsvegar að.  Nokkrir úr mínum greinum.  Ég hef reyndar verið í útskriftarveislu hjá Danna félaga sem má, þegar hann hefur sent inn umsókn í ráðuneytið, kalla sig bókasafns- og upplýsingafræðing.

Ég vona að þið hafið öll átt góðan dag.

Eldri færslur »