Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 2. mars 2006 klukkan 20:53

Böggast í Sigmari

Ég er voðalega pirraður á Sigmari í Gettu Betur.  MR var að reyna að svara spurningu og það var örlítið eftir af tímanum.  Þegar MR var búið að svara byrjaði Ásgeir í MA-liðinu að ýta á takkann sín megin, það sást og heyrðist.  Samt rann tíminn út.  Það kom í ljós að þetta voru mistök hjá stigaverði en samt var Sigmar eitthvað að ybba gogg.  Pirrpirr.  Annars þá eru þessi innslög frá skólunum alltof löng.

Fimmtudagur, 2. mars 2006 klukkan 11:34

Annað afmælisbarn

Ég er þegar búinn að óska Eygló til hamingju með afmælið en hún er ekki ein um að hafa fæðst á þessum degi. Af skemmtilegri tilviljun á góð vinkona mín líka afmæli í dag. Tveimur árum yngri en Eygló upp á dag er hún Sigrún þjóðfræðinemi. Til hamingju með það.

Fimmtudagur, 2. mars 2006 klukkan 10:21

Djammþættirnir

Ég er að spá í hvort að þessir djammþættir á Sirkus séu eingöngu þarna til þess að sýna fólki fram á að það sé ekki að missa af neinu með því að hanga heima um helgar.  Allavega myndi ég mun frekar vilja vera heima að spila Popppunkt heldur en að vera í kringum þetta ofurhallærislega pakk sem sést í þessum þáttum.

Fimmtudagur, 2. mars 2006 klukkan 0:21

Eygló á afmæli

Eygló á afmæli í dag og hún er búin að fá afmælisgjöfina frá mér.  Gjöfin er semsagt stjörnukíkir.  Eygló er 23 ára í dag.  Til hamingju með það.
Við Eygló munum síðan halda sameiginlega upp á afmælin okkar þann 11. mars næstkomandi.  Þar sem ég varð 27 ára um daginn þá erum við samanlagt fimmtug og að sjálfssögðu á að halda vel upp á slíkt.

Fimmtudagur, 2. mars 2006 klukkan 0:15

Góð ályktun

Ég er glaður með þessa ályktun.