Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 3. mars 2006 klukkan 22:01

Stjörnuskoðun

Við fórum í stjörnuskoðun áðan. Skoðuðum reyndar aðallega tunglið. Við fiktuðum dáltið í kíkinum (Eygló reyndar aðallega) og okkur kólnaði á tánum.

Eygló sést þarna ganga frá.

Föstudagur, 3. mars 2006 klukkan 16:41

Myndabloggstilraun

Ég er að prufa að fikta með myndabloggsíðu. Hún er ekki langt komin en þar er til dæmis þessi mynd:

Eygló með kál

Föstudagur, 3. mars 2006 klukkan 14:22

Námið næsta vetur

Í nótt var ég að raða saman námskeiðum fyrir MA-námið.  Hitti Terry í næstu viku að ganga frá því.  Mér sýnist að ég gæti í raun klárað námið á Íslandi þó að það væri spennandi að fara eitthvað út…