Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 6. mars 2006 klukkan 20:30

Snöggar stelpur?

Brilljant atriði í Kastljósi.  Það var verið að tala við “þú’st” stelpur sem unnu Samfés söngvakeppnina.  Þegar viðtalinu lauk þá bauð Ragnhildur Steinunn þeim að fara á tónlistarsettið eða hvað sem hún kallaði það.  Þegar stelpurnar voru að standa á fætur þá byrjaði undirspilið.  Þá var klippt á stelpurnar þar sem þær voru búnar að setjast, koma sér vel fyrir og grípa hljóðnema á svona hálfri sekúndu….

Frábært að svona tónlistaratriði séu tekin upp fyrirfram, sérstaklega með einhverjum óvönum stelpum en það er óþarfi að gera þetta á svona tilgerðarlegan hátt.

Mánudagur, 6. mars 2006 klukkan 13:51

Kortið sem hvarf

Ég skrapp aðeins niður í Nettó nú rétt í þessu.  Ekki beint frétt en þegar ég var búinn að kvitta og afgreiðslukonan ætlaði að rétt mér kortið þá missti hún það.  Kortið lenti á færibandinu sem var í gangi og hvarf niður með því.  Rétt áður en það fór ofan í sá ég myndina af sjálfum mér glotta í áttina að mér.  Þetta var svo undarlegt að ég gat ekkert annað en hlegið eftir að ég hafði jafnað mig aðeins.  Konan opnaði borðið undir færibandinu og reyndi að finna kortið en það gekk ekki.  Hún fann hins vegar fimm hundruð krónur og töluvert af klinki.  Síðan kom einhver maður að aðstoða en hann gafst fljótt upp og bað mig um að koma seinna.  Ég bíð semsagt eftir símtalinu.

Mánudagur, 6. mars 2006 klukkan 1:42

Stillingar á sjónauka

Ég er búinn að fatta hvað ég hafði stillt vitlaust þegar ég setti saman sjónaukann.  Núna er það komið í lag og hann ætti að vera stöðugri og auðstillanlegri næst þegar við förum með hann út.  Eygló er reyndar orðin nokkuð góð á honum, fann Satúrnus í gærkvöldi.  Skoðuðum Síríus líka og Tunglið náttúrulega.  Við skoðuðum líka hugsanlega Mars og eitthvað fleira sem við vorum ekki alveg viss um.  Í dag eyddi ég hellings tíma í að lesa um stjörnufræði og skoðun.  Þetta er hættulegt áhugamál greinilega.

Mánudagur, 6. mars 2006 klukkan 0:29

Áhrifamikil mynd

Ætli margar myndir hafi haft meiri áhrif á mig í æsku heldur en Karate Kid? Ég fór á hana í bíó, væntanlega 6 ára.  Einu sinni átti ég Karate Kid kalla.  Wax on, wax off.  Margir að horfa á þessa mynd í kvöld.