Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 30. apríl 2006 klukkan 20:26

Garðvinnan

Við höfum ákveðið að fjarlægja allann trjágróður úr garðinum okkar.  Það verður voðalega indælt.  Síðan ætlum við að láta upp girðingu í samráði við nágranna okkar til að þetta líti allt vel út.  Garðvinnan mun semsagt ganga út á að takmarka slíka vinnu í framtíðinni.  Tillaga Gumma frænda um að leggja pall yfir heildina hefur felld í bili en við höfum ekki ákveðið hvernig þetta verður til framtíðar.

Sunnudagur, 30. apríl 2006 klukkan 2:42

Slímóvits

Afmælisveislan hans Sigga var áhugaverð. Eftir stífa Tópasdrykkju ákvað Ásgeir að gefa fólkinu Slímóvits sem olli því að bæði Eygló og Siggi ældu. Siggi er núna sofandi heima hjá Ásgeiri en Eygló var nógu fljót að losa eitrið úr líkamanum þannig að hún slapp mun betur.

Laugardagur, 29. apríl 2006 klukkan 19:11

Einkavæðing háskóla

Ef rektorinn á Bifröst vill einkavæða alla háskóla þá væri besta leiðin til þess að sýna að hve góða háskóla sé hægt að reka á Íslandi án aðkomu ríkisins.  Hann ætti þá að byrja á því að afþakka fjárframlög frá ríkinu og gera Bifröst að dæmi um einkaháskóla (hann er það náttúrulega ekki núna).  Við getum þá séð hvernig það gengur.

Laugardagur, 29. apríl 2006 klukkan 19:02

Verk

Ég er búinn að tæma innhólfið mitt nær algjörlega.  Það er alltaf gott en sérstaklega þegar ég er á leið í 9-5 vinnu á þriðjudaginn.  Ég held reyndar að það verði ágætt að hafa meiri reglu á lífinu.

Fimmtudagur, 27. apríl 2006 klukkan 18:53

Gróska í upplýsingafræðinni

Ég fór áðan á málþing í bókasafns- og upplýsingafræði.  Þar voru nemendur að kynna verkefni sín.  Margt áhugavert á seyði og ég verð hissa ef sum þeirra vekja ekki töluverða athygli þegar þau verða kláruð.  Reyndar töpuðu verkefnin sem voru í seinnihluta málþingsins á því að þetta var töluvert langt.  En þetta sýnir vel hve mikil gróska er í greininni eftir að MLIS námið fór af stað.  Varðandi kynjahlutfall þá voru 3 karlmenn og 6 konur að kynna.

Það sást reyndar vel á kynningunum að fókusinn er töluvert mikið á skjalastjórnarhlutann.  Þar eru hlutirnir að gerast núna.

Miðvikudagur, 26. apríl 2006 klukkan 10:59

Keisari Bandaríkjanna

I'm Joshua Abraham Norton, the first and only Emperor of the United States of America!
Which Historical Lunatic Are You?
From the fecund loins of Rum and Monkey.

Þriðjudagur, 25. apríl 2006 klukkan 18:19

Lítið í bókabúðum

Oft hafa Morgunblaðsgreinar Sigurðar Ægissonar verið kjánalegar en ég hafði sérstaklega gaman af því að hann var böggast í Voltaire núna síðasta sunnudag:

Ég hef alla vega ekki enn þá rekist á bók eftir hann [Voltaire] í verslunum.

Sigurður eyðir væntanlega ekki miklum tíma í bókabúðum.  Allavega lætur hann vera að skoða Lærdómsrit Hins íslenska bókmenntafélags því í þeim bókaflokki er að finna nokkuð fræga bók eftir Voltaire sem heitir Birtíngur.

Mánudagur, 24. apríl 2006 klukkan 22:15

Prestur fær póst

Eftir að hafa lesið þessa predikun Sigurðar Árna í Neskirkju sendi ég honum eftirfarandi tölvupóst með einfaldri spurning:

Sæll Sigurður,

Í predikun þinni frá 24. apríl segir þú: “Kynnið ykkur boðskap þeirra, sem eru herskáir guðleysingjar. Þar finnið þið ekki þroskaða vitmenn, heldur hrokagikki, sem hæða og níða.”

Boðskap hvaða herskáu guðleysingja ertu þarna að tala um? Nietzsche? Douglas Adams? Richard Dawkins? Mig?

með kveðju,

Óli Gneisti Sóleyjarson

Gleymdi reyndar að nefna Bertrand Russell.

Matti sendi honum líka póst.

Mánudagur, 24. apríl 2006 klukkan 18:33

Skápur tæmdur

Fór áðan á Stúdentakjallarann en hitti ekki á Fabri.  En Jakob var þarna og ég spjallaði við hann.  Fór síðan á Hlöðuna, spjallaði við fólk, tæmdi skápinn minn og tók skrárnar mínar af harða disknum.  Vona hins vegar að ég fái að hafa tölvupóstinn aðeins lengur.

Ég þyrfti annars að koma Reykjavik Summer Festival inn í leitarvélarnar.

Sunnudagur, 23. apríl 2006 klukkan 22:25

Safngestir athugið, ég er farinn

BókavörðurÉg er ekki lengur bókavörður. Ég byrjaði sem bókavörður á Borgarbókasafninu sumarið 2004. Í ágúst 2004 byrjaði ég í hlutastarfi á Þjóðarbókhlöðunni, kvöld og helgar. Ég vann þar fram á vor og byrjaði aftur haustið 2005. Laugardagurinn fyrir viku átti að vera síðasti dagurinn minn en ég var veikur þann dag og reyndar líka næst síðasta daginn minn. Það var voðalegur bömmer að klára ekki síðustu vinnudagana. Ég á reyndar eftir að líta við til þess að ganga frá draslinu mínu, bæði í tölvunni og skápnum mínum.

Ég vann aðallega á fjórðu hæðinni. Mér líkaði vel við þetta starf. Það er fátt skemmtilegra heldur en að hjálpa fólki að finna upplýsingar sem það þarf á að halda. Ég væri í raun alveg til í að vinna við upplýsingaþjónustu. Mér líkaði hins vegar ekki að þurfa að eltast við fólk sem talaði í farsíma inn á safninu, niðurdrepandi.

Ég vann líka í aðalafgreiðslunni niðri. Það gat verið mjög stressandi þegar margir þurftu aðstoð.

Það hefur verið voðalega indælt að vera svona tengdur Háskólasamfélaginu öllu saman. Ég á eftir að sakna þess.

Ég á líka eftir að sakna samstarfsfólks míns þó ég muni vissulega hitta þau reglulega þegar ég kem á safnið sem gestur. Það er varla að ég geti farið að nefna fólk því það eru svo margir þarna. Ég verð þó að segja að ég mun sakna þess að spjalla við Óskar á kvöldin, ég á örugglega eftir að reyna að fara þarna í heimsókn til að spjalla. Síðan er það fastasti gesturinn sem hefur verið svo stór hluti af starfinu, það verður undarlegt að hitta hann ekki reglulega.

Ég held því fram að ég hafi verið einn sá besti í að tilkynna lokun safnsins. Safngestir athugið, klukkan er fimm og það er búið að loka húsinu.

Eldri færslur »