Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 3. apríl 2006 klukkan 21:26

Hinir fyrstu munu verða síðastir

Þeir fyrstu sem samþykktu að auglýsa í blaðinu eru þeir sem eru síðastir að skila inn auglýsingunni.  En það fer í prentun á morgun nema að eitthvað klúðrist.

Mánudagur, 3. apríl 2006 klukkan 10:02

Mælt með DV

Ég mæli með DV í dag.  Séra Flóki er augljóslega ekki að gefast upp á að segja sína útgáfu af sannleikanum en hins vegar er skemmtilegri frétt á blaðsíðu 25.  Þar er ég semsagt í góðum félagsskap.