Eftir að hafa lesið þessa predikun Sigurðar Árna í Neskirkju sendi ég honum eftirfarandi tölvupóst með einfaldri spurning:
Sæll Sigurður,
Í predikun þinni frá 24. apríl segir þú: “Kynnið ykkur boðskap þeirra, sem eru herskáir guðleysingjar. Þar finnið þið ekki þroskaða vitmenn, heldur hrokagikki, sem hæða og níða.”
Boðskap hvaða herskáu guðleysingja ertu þarna að tala um? Nietzsche? Douglas Adams? Richard Dawkins? Mig?
með kveðju,
Óli Gneisti Sóleyjarson
Gleymdi reyndar að nefna Bertrand Russell.
Kannski er hann að tala um Karl Marx.. en ég skil ekki af hverju herskáir guðleysingjar eru verri en herskáir trúmenn. Spurðirðu hann að því?
Marx er einmitt dæmi um þroskaðan vitmann þrátt fyrir trúleysið eða kannski frekar vegna þess.
Já það er reyndar rétt. Ég meinti bara af því að hann vísaði í “herskáa” guðleysingja.