Ég var að horfa á Yes, Minister áðan og Eygló benti mér á að ráðherrafrúin líktist ákveðnum bloggara. Getur einhver annar séð svipinn? Þetta er reyndar ekki sjónarhornið en samt.
Ég var að horfa á Yes, Minister áðan og Eygló benti mér á að ráðherrafrúin líktist ákveðnum bloggara. Getur einhver annar séð svipinn? Þetta er reyndar ekki sjónarhornið en samt.
En er þetta nokkuð slæm hugmynd?
Ég er alltaf í minnihluta:
2 af 9
6 af 13
4 af 14
6 af 40
Fráfarandi bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi telur að í raun hafi væntanlegur meirihluti þar ekki skýra heimild frá kjósendum þar sem í raun hafi verið jafntefli. Mér finnst fyndið að yfirfæra þetta yfir á Reykjavík þar sem þeir sem mynda meirihluta eru raun með minnihlutaatkvæða. Ég vænti þess að bæjarstjórinn í Álftanesi útskýri fyrir Villa og Birni að í raun megi þeir ekkert gera.
Mig grunar að Björn Ingi sé að skrifa undir dauðadóm Framsóknarflokksins. Gott hjá honum. Það verður líka að teljast svoltið vafasamt að mynda meirihluta með minnihluta atkvæða, þetta er allavega ekki það sem er kallað að hlusta á kjósendur.
Ég er ekkert óhemju glaður með lýðræðið í dag. Kaus VG með hálfum hug. Strikaði yfir Árna eins og sést hér til hliðar. Ég hefði alveg viljað fórna honum fyrir Margréti Sverrisdóttur. Held jafnvel að mér liði betur núna ef ég hefði kosið Frjálslynda. En ég kaus fyrir Auði, Ella og alla hina þarna sem ég vona að geti haft áhrif til góðs þó þau séu ekki efst.
Ég er hins vegar glaður að á Akureyri virðist allt á uppleið. Ánægður með að Gunnar Birgisson varð ekki einráður í Kópavogi. Að Sjálfsstæðisflokkurinn sé fallinn í Mossfellsbæ er líka gott. Það er að sjálfssögðu gott að Sjálfsstæðismenn séu ekki með hreinan meirihluta í Reykjavík.
Leit á Kosningavöku VG og var glaður að hitta konu sem strikaði líka yfir Árna. Var líka að spá í að sýna Árna atkvæðið mitt í símanum mínum en sleppti því. Þegar ég deildi hugmynd minni með Eygló sagði hún að það væri augljóslega ekki gott að gera mér eitthvað því ég væri ótrúlega langrækinn. Það er alveg satt en hins vegar verður ekki annað sagt en að ég eigi auðvelt með að taka fólk aftur í sátt ef það bætir sig.
Mætti ég taka mynd af atkvæðisseðli mínum og senda á myndabloggið mitt eftir að ég hef fyllt hann út? Í lögunum virðast þrjú ákvæði geta átt við þetta:
62. gr. Þegar kjósandi hefur gengið frá kjörseðlinum samkvæmt framansögðu brýtur hann seðilinn í sama brot og hann var í þegar hann tók við honum, gengur út úr klefanum og að atkvæðakassanum og leggur seðilinn í kassann í viðurvist fulltrúa kjörstjórnar. Kjósandi skal gæta þess að enginn geti séð hvernig hann greiddi atkvæði.
64. gr. Láti kjósandi sjá hvað á seðli hans er er seðillinn ónýtur og má ekki leggja hann í atkvæðakassann. Ef kjósanda verður þetta á eða ef hann setur skakkt kjörmerki á seðil eða seðill krotast hjá honum af vangá á hann rétt á að fá nýjan kjörseðil. Skal hann þá afhenda kjörstjórninni hinn fyrri seðil.
102. gr. Eftirtalið varðar sektum: d. ef kjósandi sýnir af ásettu ráði hvernig hann kýs eða hefur kosið,
Af samhenginu að dæma á þetta samt fyrst og fremst við kjörstað og þá væntanlega til að banna áróður.
Lögfræðiálit?
Ég hef eiginlega ákveðið hvað ég ætla að kjósa. Það verður þá flokkurinn sem er ég skráður í. Ég ætla hins vegar að strika yfir hann Árna Þór. Þann mann ætla ég ekki að styðja og þegar mér sýndist vera vafi á því að hann kæmist inn þá var ég eiginlega meira á því að kjósa VG ekki. Ástæðan fyrir andúð minni er sú að ég sendi honum á kjörtímabilinu tölvupóst þar sem ég spurði hann út í mál sem mér þykir miklu skipta en hann svaraði mér aldrei. Ef þú vilt stuðning minn þá skaltu gjöra svo vel að svara mér. En þar sem mér líkar afskaplega vel við manninn í þriðja sæti og mjög marga aðra á listanum þá kýs ég Vinstri Græna.
Ég sá áðan hjá brúna rýtingnum að hún hefði fengið bréf með samþykki frá HÍ þannig að ég þaut heim til að kíkja á póstinn minn. Og þeim var ánægja að tilkynna að ég hefði verið samþykktur.
Ég var merkilega panikaður yfir þessu þó Terry væri fyrir löngu búinn að segja mér að þetta væri öruggt.
Þetta er reyndar með því skilyrði að ég klári BA-verkefnið og fá fyrstu einkunn en það ætti ekki að vera neitt mál.
Ég er þannig orðinn mastersnemi í þjóðfræði. Gleðigleði.
Ég var núna að áðan að fá sjötta póstinn þar sem er verið að auglýsa fyrirlestur á Þjóðminjasafninu. Allir póstarnir voru sendir út á Gand sem er póstlisti þjóðfræðinga og ef mér skjátlast ekki hafa allir póstarnir verið sendir af sömu manneskjunni hjá safninu. Þetta er nú full gróft, ég er allavega ákveðinn í að mæta ekki.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)