Mætti ég taka mynd af atkvæðisseðli mínum og senda á myndabloggið mitt eftir að ég hef fyllt hann út? Í lögunum virðast þrjú ákvæði geta átt við þetta:
62. gr. Þegar kjósandi hefur gengið frá kjörseðlinum samkvæmt framansögðu brýtur hann seðilinn í sama brot og hann var í þegar hann tók við honum, gengur út úr klefanum og að atkvæðakassanum og leggur seðilinn í kassann í viðurvist fulltrúa kjörstjórnar. Kjósandi skal gæta þess að enginn geti séð hvernig hann greiddi atkvæði.
64. gr. Láti kjósandi sjá hvað á seðli hans er er seðillinn ónýtur og má ekki leggja hann í atkvæðakassann. Ef kjósanda verður þetta á eða ef hann setur skakkt kjörmerki á seðil eða seðill krotast hjá honum af vangá á hann rétt á að fá nýjan kjörseðil. Skal hann þá afhenda kjörstjórninni hinn fyrri seðil.
102. gr. Eftirtalið varðar sektum: d. ef kjósandi sýnir af ásettu ráði hvernig hann kýs eða hefur kosið,
Af samhenginu að dæma á þetta samt fyrst og fremst við kjörstað og þá væntanlega til að banna áróður.
Lögfræðiálit?
Þegar Ástþór Magnússon kaus í síðustu forsetakosningum sýndi hann sjónvarpsmyndavélum kjörseðilinn.
Hmm, það var ekkert brot á kjörseðlinum og því hef ég væntanlega brotið lög þegar ég braut hann saman.
Ef þú birtir mynd af seðlinum núna mætti samkvæmt þessu taka burtu eitt atkvæði frá þeim sem þú kaust, eða hvað? Væri ekki öruggara að birta myndina þegar búið er að telja upp úr öllum kössum og úrslit liggja fyrir?
Þetta er líka til að vernda þig fyrir því að þú sért ekki neyddur til að sýna atkvæði þitt og til að styrkja leynd atkvæðagreiðslu.
Mjög þarft ákvæði.