Fráfarandi bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi telur að í raun hafi væntanlegur meirihluti þar ekki skýra heimild frá kjósendum þar sem í raun hafi verið jafntefli. Mér finnst fyndið að yfirfæra þetta yfir á Reykjavík þar sem þeir sem mynda meirihluta eru raun með minnihlutaatkvæða. Ég vænti þess að bæjarstjórinn í Álftanesi útskýri fyrir Villa og Birni að í raun megi þeir ekkert gera.
Á Álftanesi eru menn fyndnir. Bæjarstjórinn úrskurðar sér jafntefli en oddviti Álftaneslistans vill “nýtt stjórnarfyrirkomulag” (sem ég vænti auðvitað að verði ráðstjórn!).
Spurning hvort þetta virkar eins og með sælgætið:
“Til að ná tökum á ofáti ákveðinnar fæðutegundar sem maður er sólginn í, þá verður maður að borða ærlega yfir sig”!!
Þannig að nú er spurningin hvort allar þessar B+D sveitastjórnir og sitjandi ríkistjórn sé nóg til að þetta samvinnuform “detti úr tísku” frá og með næstu alþingiskosningum ;)