Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 26. maí 2006 klukkan 10:52

Heimsendir í gær

Þið tókuð væntanlega eftir því að það var heimsendir í gær.

Fimmtudagur, 25. maí 2006 klukkan 23:10

Ráðstefnuundirbúningur

Ágætis trúleysingjafundur áðan.  Allt gengur vel með ráðstefnuna.  Ennþá er hægt að skrá sig en vonandi fer þetta að fyllast þannig að ég mæli með að fólk stökkvi á þetta sem allra fyrst.  Við erum komin með svo góða dagskrá að við höfum þurft að afþakka góð boð um fyrirlesara.  Við stefnum reyndar á að reyna að koma þeim til landsins seinna.

Upplýsingar um ráðstefnuna eru hérna.

Fimmtudagur, 25. maí 2006 klukkan 16:15

Sonur drekans

Í gær þá ákvað ég bæði að sleppa samkomu á vegum vinnunnar og á vegum VG. Ég fór hins vegar til Sigrúnar til að reyna að koma henni í netsamband en endaði með að horfa á Dracula og borða pizzu með henni. Að mínu mati meira fjör heldur en mér bauðst á hinum stöðunum.

Einhvers staðar las ég þá glöggu lýsingu á leik Keanu Reeves í Dracula að hann hafi verið svo rangur fyrir hlutverkið að hann var í raun réttur.

En mér leiðist í dag.

Miðvikudagur, 24. maí 2006 klukkan 19:45

Frí

Ágætt að vera í fríi á morgun.  Einn dagur frí, einn dagur vinna, tveir dagar frí, fimm dagur vinna, þrír dagar frí.  Eitthvað svoleiðis.

Þriðjudagur, 23. maí 2006 klukkan 18:33

Heimsendir í nánd?

Gaman að því þegar fjölmiðlamenn taka sig til og spyrja einhverja sem hafa vit á málinu.  Heimsendir í nánd? Ónei.

Þriðjudagur, 23. maí 2006 klukkan 9:09

Kalli biskup fær kennslu í Nýja Testamentisfræðum

Gaman að greininni hans Hjalta í dag þar sem hann kennir biskupnum Nýja Testamentisfræði.

Mánudagur, 22. maí 2006 klukkan 21:59

Á Stúdentaráðsfundi

Fór áðan á minn fyrsta, og hugsanlega eina, Stúdentaráðsfund sem atkvæðisbær fulltrúi. Arndís var upptekinn þannig að ég þurfti að hliðra til svo ég gæti leyst hana af. Þetta var bara fínt. Það virðist að mestu vera ennþá hjónabandssæla hjá Röskvu og Vöku sem er indælt. Sat hjá Fjölni og hjálpaði honum með fundargerðina (fundargerðir Stúdentaráðs eru yfirleitt alltof langar þannig að ég hvatti hann til að stytta).

Elli kom og gerði grein fyrir síðasta starfsári, þið getið séð hann þarna lengst í burtu að nudda saman höndunum. Þetta voru reyndar eiginlega tveir fundir, skiptafundur og Stúdentaráðsfundur.

Til að þegja ekki alveg á þessum fundi þá minnti ég á mál sem ég vildi að yrði lagað, það að í sumarprófunum verður væntanlega enginn lengri opnunartími á Bókhlöðunni. Að sjálfssögðu var tekið vel í það enda er þetta fólk að berjast fyrir hagsmunum stúdenta.

Ég fórnaði líka lokaþætti Survivor fyrir þetta. Vonandi hefur upptakan gengið.

Sunnudagur, 21. maí 2006 klukkan 22:58

Closing Time

Ég viðheld þeirri hefð að hlusta á Tom Waits þegar ég er einn heima.  And I hope that I don’t fall in love with you…  Margir eru samt örugglega ekki glaðir með hrifningu minni á útgáfu Emiliönu Torrini á þessu lagi.  Hvað um það.  Nokkuð gaman að hlusta á þau hvort á eftir öðru.

Sunnudagur, 21. maí 2006 klukkan 16:12

Tölvuveseni lokið

Tölvukerfi heimilisins er komið í gott stand.  Stóra gamla er farin að spila tónlist og nýji spilarinn er tengdur við hana og sjónvarpið.  Svoltið skemmtilegt hvað þetta myndar stóra heild saman.

Sunnudagur, 21. maí 2006 klukkan 3:14

Sannfærandi skrýmsli eru ekki skemmtileg

Svo ég komi með enn eina Júróvísjón færsluna.  Það er mjög skemmtileg þversögn fólgin í því að Evrópu valdi skrýmslahljómsveit í þessarri keppni en hafnaði Silvíu Nótt.  Þetta er aftur það sem ég nefndi um að brandarinn væri ekki nógu augljós.  Brandararnir sem voru algerlega á yfirborðinu slógu í gegn.  Reyndar var það þannig að Litháar uppskáru baul fúlu áhorfendanna í seinni umferðinni.  Eru Grikkir húmorslausir og dónalegir upp til hópa?  Egill Helgason er aðdáandi þjóðarinnar sem veit ekki á gott.  Kannski að Bretar ættu bara að hirða Elgin-lágmyndirnar.  Fannst líka ómerkilegt af Sigmari að gagnrýna Litháana, þjóð sem sendir Silvíu Nótt ættu ekki að gagnrýna það að aðrar þjóðir hafi húmor líka.  Lagið þeirra var líka bara skemmtilegt, sem og atriðið.
Þversögnin sem ég er að vísa í er að Silvía var í raun miklu öflugri sem skrýmsli heldur en Finnarnir.  Ef þið spáið í það þá voru þeir finnsku örugg skrýmsli sem við sjáum í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.  Silvía var hversdagslegt skrýmsli, við höfum öll hitt fólk einsog hana (þó augljóslega ekki jafn ýkt).  Við erum ekki hrifin af skrýmslunum sem við þurfum að mæta í raunveruleikanum en sjónvarpsskrýmsli eru skemmtileg.  Vissulega er hún líka spegill eigingirni, sjálfselsku og heimsku ríka og fræga fólksins (og okkar hinna líka).
Mér þótti brandarinn alltaf verða fyndnari og fyndnari hjá Silvíu.  Verst þótti mér að hún sagði ekki fucking á sviðinu, það hefði verið mikið flottara að vera rekin út fyrir blót heldur en að lenda í 13. sætinu.

Mig grunar alltaf meir og meir að Ágústa Eva og Silvía Nótt hafi verið að hugsa mun lengra en bara um þessa keppni.  Ég held að næsta skref hjá þeim verði að reyna að selja þessa þætti, allavega þá sem þau eru að gera núna til Evrópulanda.  Þau geta skoðað hverjir gáfu okkur atkvæði og metið þannig hvar markaðurinn er.

Sumir segja að þetta hafi verið stór mistök hjá okkur að senda Silvíu, við hefðum getað sent Regínu (sem var vissulega góð) og þá gengið betur.  Það er alveg óvíst hvort Regína hefði komist eitthvað lengra, gott lag þýðir ekki sjálfkrafa velgengni.  Ég er á því að við ættum aldrei aftur að senda alvarlegt lag, við ættum alltaf að reyna að hneyksla eða gera grín.  Það er bara mikið skemmtilegra og fólk verður líka minna fúlt yfir tapinu.

Besta Eurovisionkeppni allra tíma.

« Nýrri færslur | Eldri færslur »