Vantrúarbíó á föstudegi er góð leið til að undirbúa sig fyrir helgina. The Secret Swami fjallar um Sai Baba, gúrúinn fræga, og myrkraverk hans.
Vantrúarbíó á föstudegi er góð leið til að undirbúa sig fyrir helgina. The Secret Swami fjallar um Sai Baba, gúrúinn fræga, og myrkraverk hans.
Fólk gæti haldið að öllu ráðstefnuveseni væri lokið hjá nefndinni en það er ekki alveg rétt. Ég er ennþá að fá tugi tölvupósta um þetta og þar að auki eru ráðstefnugestir að biðja mig um myndir. Það er í vinnslu. Dan, Annie og Julia koma aftur í borgina í dag eftir að hafa tekið túr um landið, Julia fer á morgun en hjónin á þriðjudaginn ef ég man rétt.
Ég er samt að ná að stroka út atriði af to-do listanum mínum sem ég hafði hunsað í lengri tíma, er til dæmis búinn að borga Gotlandsflugið.
Í dag fékk ég afhentan dvd disk með fyrirlestrinum hans Dan Barker frá því á laugardaginn. Merkilegt hvað myndatökumaðurinn okkar er snjall. Hann var ekki með neinar ofurgræjur þarna en náði alveg frábærum myndum. Hljóðið virkar líka mjög vel sem er nú aðalmálið. Ef allt gengur eftir, sem er þó ekki víst þar sem við höfum ekki fengið leyfi frá öllum, þá verður hægt að gefa út ráðstefnuna á dvd eins og hefur verið gert með The Amazing Meeting. Brilljant alveg.
Það þegar vefrit linkar á aðrar síður er góð leið til að sjá hve marga lesendur það vefrit hefur. Akkúrat núna virðist það vera þannig að á einum og hálfum sólarhring hafi komið þrettán gestir af þessu vefriti. Í raun eru þetta svo fáir gestir að það tók mann 34 klukkutíma að taka eftir hlekknum. Hvað það þýðir um heildargestafjölda er erfitt að spá en þetta eru til dæmis færri gestir heldur en hafa farið af minni síðu yfir á bloggið hennar Kristínar Helgu sem ég vísaði á í morgun.
Bjarni Harðar, þjóðfræðinemi með meiru, skrifar ágætisgrein um tólfsporakerfið í Blaðinu í dag. Það var svoltið leiðinlegt að við misstum út fyrirlesarann af ráðstefnunni sem ætlaði að ræða um AA því það er umræða sem þarf að taka. Ekki það að ég sé bestur í henni.
Kristín Helga bloggar um ráðstefnuna. Mjög skemmtileg lýsing.
Merkilegt að rekast fullorðinn einstakling sem heldur að það sem sagt er á netinu skipti ekki máli og að það sé hálfgert frísvæði fyrir þá sem vilja níða fólk. Hef ekki rekist á þetta viðhorf nema hjá einhverjum bjánaunglingum og krökkum til þessa.
Maðurinn er ákaflega góður að orða hluti sem ég hef hugsað.
Either it is true that a medicine works or it isn’t. It cannot be false in the ordinary sense but true in some ‘alternative’ sense. If a therapy or treatment is anything more than a placebo, properly conducted doubleblind trials, statistically analysed, will eventually bring it through with flying colours. Many candidates for recognition as ‘orthodox’ medicines fail the test and are summarily dropped. The ‘alternative’ label should not (though, alas, it does) provide immunity from the same fate.
Ég er semsé að lesa A Devil’s Chaplain.
Ég verð að mæla með myndunum frá ráðstefnunni sem Matti er með á síðunni sinni, þær eru alveg voðalega flottar. Mínar eru á leiðinni, ekki alveg jafn flottar.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)