Langar einhverjum með mér á Zappa plays Zappa?
Langar einhverjum með mér á Zappa plays Zappa?
Við Biggi fórum í Morgunsjónvarpið alveg eldsnemma áðan. Óþarfi að vakna klukkan hálfsjö. Ég kom aðeins á undan Bigga og þar var Katrín Júlíusdóttir komin, greinilega stundvís þar sem hún fór í loftið á eftir okkur. Förðunin tók snöggt af, ekki nema svona tíu sekúndur. Þegar Biggi kom tók hans smink ekki nema 5 sekúndur.
Ég tók þá ákvörðun að vera í blárri skyrtu til að koma betur út í sjónvarpinu. Það var líka gott þar sem Biggi var í svörtu því annars þá hefðum við verið samanlagt full svartsýnir.
Ragnheiður mundi eftir mér frá því síðast sem mér fannst nokkuð gott hjá henni. Viðtalið tókst ágætlega þó ég sjái ótal mistök hjá mér, ég hefði viljað tala meira um sumt og orða eitthvað öðruvísi og svo framvegis. Man þetta næst.
Þið sem viljið kíkja á þetta getið smellt á þessi orð sem ég hef skrifað hér. Linkurinn ætti allavega að virka í Internet Explorer, er ekki viss með Opera og Firefox (stundum hafa verið vandræði þar). Njótið.
Áðan var að útskýra fyrir manni hvað 666 táknaði, eða allavega kenningar um það. Skil ekki af hverju enginn vildi mig í viðtal til að ræða það í gær.
Annars þá er þetta fyndið:
666 = Númer dýrsins
668 = Nágranni dýrsins
DCLXVI = Rómversk tala dýrsins
Fleira svona neðarlega í þessari grein um 666: http://www.straightdope.com/mailbag/m666.html
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is.
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)