Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 31. júlí 2006 klukkan 12:40

Sigur Rós á Túninu

Í gær fórum við Eygló í þriðja sinn á Sigur Rós.  Við komum reyndar ekki fyrren um fimmtán mínútur í tíu en fengum samt bílastæði rétt hjá.  Löggan hafði útbúið bílastæði með því að fækka akreynum.

Tónleikarnir voru frábærir.  Reyndar þá varð maður að finna sér gott stæði því ef maður stóð of nærri vissum hátölurum þá fékk maður of mikið af aukahljóðum sem áttu að blandast tónlistinni en gerðu það ekki nema að maður væri lengra frá þeim.

Mér varð hugsað til 6-6-6 tónleika Bubba þarna og hve fáránlegir þeir væru í samanburði við þetta.  Hjá Bubba var auglýsingamennskan í hámarki og ömurleikinn eftir því.  Ekkert svoleiðis þarna.  Þetta var eins og þegar Rolling Stones og Queen héldu ókeypis tónleika í Hyde Park á hátindi ferilsins (hvorir í sínu lagi).

Verst hvað fólk var mikið að spjalla, bæði við hvort annað og í farsíma.  Þess vegna naut maður þess mjög vel þegar lögin náðu hápunktum sínum, þá þurftu allir að halda kjafti.  Reykingafólk náði líka að ergja okkur, færðum okkur nokkrum sinnum til að losna frá því.

Það var ekki heldur neitt mál að komast  burt, þurftum bara að passa okkur á gangandi vegfarendum.

Sunnudagur, 30. júlí 2006 klukkan 16:27

Glaður með smá árangur…

Ég náði að vinna í BA-verkefninu í dag.  Er væntanlega búinn að ákveða hvernig uppsetningin verður og þarf bara að fá samþykki fyrir því.  Þá er maður aðeins rólegri.  Sendi þetta til Jóhönnu í næstu eftir að ég hef fengið Eygló til að yfirfara þetta.

Sunnudagur, 30. júlí 2006 klukkan 13:54

Tónlistarlegt uppeldi

Í gær var ég í Skífunni og sá þá svona átta ára stelpu að skoða diska með mömmu sinni.  Ég heyrði mömmu hennar segja við hana að diskurinn sem hún var að skoða væri ekki “bara með stelpulögum”.  Hún rétti stelpunni síðan annan disk og sagði við hana að á honum væru stelpulög.  Fyrri diskurinn sem þær voru að skoða var “Pottþétt Hinseginn” sem er með barbídúkku/m framan á.  Stelpulagadiskurinn var hins vegar Nælon.  Ég get ekki sagt að þetta sé gott tónlistarlegt uppeldi.  Stelpan missti meðal annars af Living on my own með Freddie, Relax með Frankie og Stanslaust stuð með Páli Óskari.

Sunnudagur, 30. júlí 2006 klukkan 13:46

15 þúsund á Sigur Rós ?

Ég var að lesa á Mogganum að það sé búist við allt að fimmtán þúsund manns á Sigur Rós á eftir.  Ég myndi giska að ef veðrið verður gott þá sé þetta vanmetið.  Ætli þetta verði ekki algjört kaos?

Sunnudagur, 30. júlí 2006 klukkan 1:20

Mynd af skipulagsnefndinni

raddir.jpgRakst á þessa mynd hjá Svan.  Ég virðist vera risastór þarna en það væri nú töluvert öðruvísi ef Svanur og Siggi væru við hliðina á mér en ekki á hinum endanum.

Laugardagur, 29. júlí 2006 klukkan 18:56

Karfan

Ég er allur lurkum laminn.  Fór í körfubolta með Ella, Ásgeiri, Starra og Árna Pétri.  Það gekk ágætlega en í næstsíðasta leiknum meiddi ég mig tvisvar og var því afskaplega slakur eftir það.  Núna er ég aumur.  Ég finn líka núna fyrir því hve illa öxlin mín er farin eftir skápana í vinnunni.  Ég er byrjaður að hafa áhyggjur af því.

Núna er tími fyrir sturtu og bað nema að sprungnu blöðrurnar þoli það ekki.

Maður þyrfti að koma sér upp reglulegum körfuboltatímum, það hefur verið markmiðið árum saman en hefur ekki tekist í um tíu ár.

Föstudagur, 28. júlí 2006 klukkan 22:46

Myndir á Deiglunni

Ég kíkti á Deigluna áðan eftir að hafa skoðað færslu hjá Matta um mynd sem þeir hafa hirt frá honum. Hvað blasir þá við mér? Mynd af Stefáni Boga sem er upphaflega af veggspjaldi frá Háskólalistanum (árið 2004 ef ég man rétt). Ég er nokkuð viss um að Bragi á þessa mynd. Var Bragi spurður um leyfi?

Myndin hans Matta kemur efst á Google ef leitað er að “strætó” í myndaleitinni og myndin hans Braga er fyrsta myndin sem kemur upp af Stefáni Boga þegar leitað er að “Stefán Bogi”.

Föstudagur, 28. júlí 2006 klukkan 21:25

Færeyjar

Mig langar til Færeyja.  Ég er að skoða myndirnar frá því í fyrrasumar og finn fyrir þörfinni.  Fer væntanlega ekki fyrr en næsta sumar.  En Gotland er spennandi líka.

Föstudagur, 28. júlí 2006 klukkan 17:52

Myndavefur

Ég er búinn að útbúa nýjan myndavef hérna á Truflun.  Farið hingað og setið inn notendanafnið gestur og síðan er sama lykilorð sem var á 123.  Sendið mér bara póst eða kommentið hérna ef þið viljið lykilorðið.

Föstudagur, 28. júlí 2006 klukkan 13:14

Ástkæra tungan

Jæja, náði loks að klára eina vesenið sem ég hafði ekki náð að leysa í flutningnum.  WordPress neitaði ítrekað að breyta yfir í íslensku.  Ég hélt alltaf að ég væri að gera eitthvað vitlaust, leitaði að lausnum.  Loksins fattaði ég að það væri hugsanlegt að vandamálið væri hjá hýsingaraðilinum og líklega var það rétt, allavega fann ég lausnina fljótt og örugglega hjá þeim.

Reyndar er mér nokkuð sama hvort viðmótið sjálft er á íslensku eða ensku en mér þykir mun fallegra að dagsetningarnar séu allar á íslensku.  Sá þáttur ætti að vera kominn í lag núna.

Eldri færslur »