Í morgun gleymdi ég fartölvusnúrunni (sem er ekki hleðslutæki eins og margir halda heldur straumbreytir) heima. Eygló gerðist svo góð að skutla henni hingað. Við keyptum síðan mat í 10-11 og borðuðum hann heima hjá Evu og Heiðu.
Í morgun gleymdi ég fartölvusnúrunni (sem er ekki hleðslutæki eins og margir halda heldur straumbreytir) heima. Eygló gerðist svo góð að skutla henni hingað. Við keyptum síðan mat í 10-11 og borðuðum hann heima hjá Evu og Heiðu.
Afmælisbarn dagsins er að sjálfssögðu hún Hafdís systir mín. Fær hún hugheilar kveðjur frá mér af Bókhlöðunni.
Magni með flest atkvæði. Fokking brilljant. Ég kaus hann reyndar bara svona tuttugu sinnum á Hawaii tíma.
Það gekk ágætlega að skrá í dag, ekki samt jafnvel og fyrri daga. Áðan þá fór ég á kynningarfund fyrir MA-nema og get ekki sagt að ég hafi fengið mikið út úr því. En ég hitti Eydísi og tók mynd af henni svo að fólki viti að hún hafi verið ófrísk.
Eftir fundinn hitti ég síðan Daníel Frey og spjallaði aðeins við hann. Nú eru þau Eygló saman á kynningarfundi en þar sem allir MA-nemar í þjóðfræði hittust í gær þótti óþarfi að hafa fund fyrir þá. Ég bara bíð. Stefni að því að slappa af í kvöld.
Var að lesa skemmtilegan brandara. Hann er augljóslega gamall þar sem aðalpersónan er látin fyrir löngu en hann kom mér til að hlæja.
Kardínálarnir koma til páfans og segja honum að líkamsleifar Jesú hafi fundist í Palestínu. Það var enginn vafi, allir fornleifafræðingarnir voru sammála um að þetta væri í raun Jesú. Páfinn spyr Kardínálana hvort það sé eitthvað sem hægt sé að gera. Þeir svara honum að það sé einn snjall maður sem hægt sé að leita til, mótmælendatrúaður guðfræðingur í Bandaríkjunum sem heitir Tillich. Páfinn hringir í Tilich og útskýrir stöðuna vandlega fyrir honum. Á hinum enda símalínunnar verður löng þögn en loks heyrist: “áttu við að hann hafi í alvörunni verið til?”
Árni Johnsen kominn með æruna aftur? Held ekki. Nú er bara að sjá hvort Vestmannaeyjingar (og jafnvel Sunnlendingar upp til hópa) vilji endilega að landsmenn líti á þá sem hálfvita með því að kjósa gerpið aftur.
Maður er öruggur með þessa menn á vakt.
Ég fór í minn fyrsta tíma í Rannsóknum í þjóðfræði í dag. Dagbjört, Galdra-Tommi, Bryndís sem skrifaði grein í Slæðing, Júlíana Berkeleybúi og tvær Sigrúnar voru mætt (ekki nein þjóðfræði-Sigrún sem ég hef áður minnst á, það er enginn skortur á þeim í faginu). Valdimar ógnaði okkur með gríðarlegu magni lesefnis. Verst er reyndar hve óendanlega heillandi mér finnst þetta vera. Hlakka bara til.

Valdimar að sýna okkur nýja vefinn.
Ég vissi ekki að það væri hægt að opna glugga í Lögbergi, er það nýtilkomið?
Ég ætla nú bara að lýsa því yfir hér og nú að það er ekki séns að sólóið í Comfortably Numb sé betra en sólóið í Brighton Rock. Ekki séns.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « júlí | sept. » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)