Ég er sáttur við síðustu einkunn mína úr bókasafns- og upplýsingafræðinni. Var að fá einkunn fyrir BA-verkefnið. Ég bjóst ekki við svona hárri einkunn. En já, blóð, sviti og tár.
Ég er sáttur við síðustu einkunn mína úr bókasafns- og upplýsingafræðinni. Var að fá einkunn fyrir BA-verkefnið. Ég bjóst ekki við svona hárri einkunn. En já, blóð, sviti og tár.
Jæja, Telma og Kalli búin að eignast stelpu. Fjórða þjóðfræðibarnið komið í september. Þetta er ágætis árangur hjá ekki stærri skor.
Til hamingju með þetta.
Ég var að spjalla við Hjalta í gær og við vorum að reyna að plana það hvernig ég ætti að koma eintaki af The God Delusion til hans. Ég var alveg að fara að ná Strætó til að komast í tíma þannig að ég ætlaði að kveðja hann. En þá fékk ég hugmynd.
Það er þannig að við Hjalti notum sama Strætóinn til að komast í Háskólann (hann kemur inn í Kópavoginum). Mér datt þess vegna í hug að ég tæki bara bókina með mér en Hjalti myndi koma upp að stoppistöðinni sinni. Ég myndi síðan rétta honum bókina þegar vagninn stoppaði þar. Við ákváðum að framkvæma þetta. Farþegarnir horfðu svoltið undarlega á mig þegar ég rétti Hjalta bókina án þess að hann stigi inn í vagninn.
Þetta leit út einsog ódýr útgáfan af dópafhendingu. Easy-dope fíkniefnasalar, ekkert bruðl.
Góðar bókabúðir í Kaupmannahöfn? Eitthvað annað spennandi að gera þar?
Ég verð að segja að mér finnst ýmislegt ógeðfellt við þessi ummæli Jóns Sigurðssonar…
„Eigum við að hafna framförum og tjónka fremur við ríkum bandarískum túristum með því að lifa hér heldur sem eskimóar?“
Ég er búinn að lesa rúmlega 70 blaðsíður af The God Delusion. Góð er bókin. Skyldulesning. Ekkert flóknara en það. Eins góð og bók George A. Smith, Atheism: The Case Against God, er þá er hún ekki þægileg aflestrar. Bók Dawkins er ekki merkileg fyrir það að hann sé að segja eitthvað sem öðrum hefur ekki dottið áður í hug (ég sé hann færa nákvæmlega sömu rök fyrir máli sínu og ég hef gert) heldur að hann orðar það betur. Ég er að fá þá tilfinningu eftir því sem á líður bókina að í raun þá ætti ekki að þurfa neitt meira til, málið sé afgreitt á þessum rúmlega 400 síðum. Skýrt, rökfast og kerfisbundið.
Mér þykir líka vænt um að hann tileinkar bókina Douglas Adams og kemur með uppáhaldstilvitnun mína í hann: “Er ekki nóg að garðurinn sé fallegur án þess að þurfa að trúa að þar séu álfar líka”.
Kostar tíu pund á Amazon.co.uk, kaupið núna.
Ég var að fá sendingu frá Amazon. Eftir að hafa beðið lengi eftir að ná sambandi með gsm-posanum borgaði ég loks með peningum. Þegar póststúlkan var farinn fór ég að skoða kassann og opnaði hann fljótt því mér sýndist hann fullt lítill. Kemur þá í ljós að það vantar allavega 14 bækur þó ég hafi borgað alla. Ég hleyp út og næ ekki á stúlkunni áður en hún leggur af stað. En ég sé að hún er bara að fara í næstu blokk. Ég fer þangað og þegar ég kem að bílnum þá er hún að skoða einhverja pappíra við hliðina á sér. Ég banka á gluggann. Hún lítur upp og öskrar, frekar hátt. Skiljanlegt að henni hafi brugðið enda dimmt úti. Mér brá líka dáltið mikið.
Þessi frétt hjá Vísi er afskaplega skemmtilega orðuð:
Margir norskir prestar eru argir yfir sýningu á samkynhneigðum dýrum í náttúrugripasafninu í Osló.
Annars þá verður væntanlega grein um ergi í vorblaði Slæðings. Akkúrat núna erum við hins vegar að reyna að koma haustblaðinu í gegn.
Ég átti góðan dag í skólanum í gær. Umfjöllunarefni tveggja kúrsa náðu saman og bentu mér á aðferð sem ég þarf að nota í mastersritgerðinni minni.
Ég lét undan þrýstingi og setti nýja mynd í staðinn fyrir hryllingsmyndina af mér. Allir glaðir?
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | okt. » | |||||
| 1 | 2 | |||||
| 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)