Nú er ég ekki andstæðingur þess að flytja hinar og þessar stofnanir út á landi. Sérstaklega finnst mér það rökrétt þegar um hefur verið að ræða stofnanir sem þjóna fyrst og fremst landsbyggðinni. Mér finnst hins vegar ekki gáfulegt að flytja Náttúrufræðistofnun og Náttúrugripasafn út á herstöð (ég geri ráð fyrir að “Keflavíkurflugvöllur” þýði herstöðvarsvæðið).
Augljósa ástæðan er sú að Náttúrufræðistofnun ætti að planta hjá Öskju í Vatnsmýrinni til að auka samstarf þar á milli. Nú er engin nauðsyn að hafa Náttúrugripasafnið þarna hjá en ég get ekki séð hvaða vit er í því að setja það eitthvað út í rassgat (töluvert frá Keflavík og Njarðvík). Það er ekki til að hvetja fólk til að fara þangað. Ef það á að flytja safnið eitthvað þá mætti allavega gjöra svo vel að setja það einhvers staðar þar sem er fólk nálægt.
Það er örugglega hægt að gera margt skemmtilegt við þetta svæði en þetta er ekki snjallt.
Er Jónína Bjartmarz ekki bara að spá í að fara í framboð í Suðurkjördæmi.
hélt að herinn væri að fara? hættir þá þetta ekki að vera herstöð, eins og Reykjavíkurflugvöllur og nágrenni er ekki lengur bresk herstöð?
sammála því samt að þetta færi vel með náttúrufræðihúsinu. spurning hvort megi ekki bara færa það upp á miðnesheiði ;)