Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 26. september 2006 klukkan 23:42

Bestu árin

Ég vorkenni alltaf svoltið fólki sem hugsar um tímabil í fortíðinni sem bestu ár lífs síns. Mér finnst lífið alltaf verða betra.

Mánudagur, 25. september 2006 klukkan 17:08

Afsökun að vera ofurölvi?

Hvernig í ósköpunum getur það verið til einhverjum til refsilækkunnar að hann hafi verið ofurölvi þegar hann framkvæmdi líkamsárás? Var einhver að neyða í hann áfengi? Á fólk ekki að bera jafn mikla ábyrgð á gjörðum sínum þegar það er drukkið?

Mánudagur, 25. september 2006 klukkan 11:01

Kerfisbundnar lygar

Það er alveg merkileg árátta hjá trúuðu fólki að reyna sífellt að gera merkismönnum upp trúarskoðanir sem þeir höfðu ekki. Í kynningu á einhverjum þætti sem er á dagskrá í kvöld á RÚV stendur í Fréttablaðinu:

Samt voru margir af merkustu hugsuðum mannkynssögunnar, menn eins og Plató og Einstein, Pýþagoras og Darwin, trúaðir.

Já, Pýþagoras og Platón voru trúaðir þó það sé væntanlega erfitt að finna nokkurn mann sem skrifar undir trúarskoðanir þeirra í dag. Hins vegar er mjög vafasamt að halda þessu fram með Darwin og Einstein. Darwin lýsti sjálfum sér sem agnostískum eftir að hafa í gegnum mikið endurmat á trúarskoðunum sínum í kjölfar dauða dóttur sinnar. Síðan hafa kristnir menn verið duglegir að breiða út lygasögu um að Darwin hafi tekið trú á dánarbeði sínu. Merkilegt nokk þá hafði nákvæmlega sama saga gengið á sínum tíma um afa hans og af því tilefni skrifaði Darwin:

Við getum að minnsta kosti vonað að ekkert af þessu tagi gæti gerst í dag.

Full bjartsýnn hann Darwin greinilega.

Einstein þurfti á sínum tíma að skrifa:

Það var að sjálfssögðu lygi það sem þú last um trúarskoðanir mínar, lygi sem er kerfisbundið endurtekin.

Þetta lýsir óneitanlega lágu sjálfsmati trúmanna að þeir þurfi að gera menn sem voru hálf- eða alveg guðlausir að trúmönnum í von um að ýta undir guðstrú.

Viðbót: Ruglið er greinilega komið frá RÚV.

Sunnudagur, 24. september 2006 klukkan 1:34

Conan

Er til betri leið til að eyða laugardagskvöldi en að horfa á Conan the Destroyer? Verð að játa að frá fornri tíð hef ég verið veikur fyrir sword and sorcery myndum þannig að mér fannst hún ekki jafn slæm og mér ætti að þykja hún.  Sem þýðir að ég gat horft á hana í heild sinni.

Laugardagur, 23. september 2006 klukkan 19:39

Málþingið og næst-besti Ólinn

Ég fór á málþing í dag. Lærði ýmislegt um Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Meðal annars að hann hafði ekki hátt álit á efnishyggjumönnum eins og mér.  Hitti síðan margt fólk. Þjóðfræðikennara, þjóðfræðinema og formann guðfræðinema.
Ég komst líka að því áðan að ég er næst-besti Ólinn hennar Dagbjartar (reyndar gömul færsla en rss-yfirlitið hennar var ekki að fúnkera þannig að ég var bara að sjá þetta núna). Ég er mjög glaður þó að mér skiljist að ég eigi ekki auðvelt með að komast alla leið á toppinn.

Laugardagur, 23. september 2006 klukkan 10:48

Málþing eða lestur?

Á ég að fara á málþing eða á ég að vera heima og lesa í dag? Erfitt val.

Föstudagur, 22. september 2006 klukkan 20:02

Sló

Ég sló garðinn í dag.  Kannski í seinna lagi.

Miðvikudagur, 20. september 2006 klukkan 20:31

Náttúrufræðistofnun og Náttúrugripasafnið

Nú er ég ekki andstæðingur þess að flytja hinar og þessar stofnanir út á landi.  Sérstaklega finnst mér það rökrétt þegar um hefur verið að ræða stofnanir sem þjóna fyrst og fremst landsbyggðinni.  Mér finnst hins vegar ekki gáfulegt að flytja Náttúrufræðistofnun og Náttúrugripasafn út á herstöð (ég geri ráð fyrir að “Keflavíkurflugvöllur” þýði herstöðvarsvæðið).

Augljósa ástæðan er sú að Náttúrufræðistofnun ætti að planta hjá Öskju í Vatnsmýrinni til að auka samstarf þar á milli.  Nú er engin nauðsyn að hafa Náttúrugripasafnið þarna hjá en ég get ekki séð hvaða vit er í því að setja það eitthvað út í rassgat (töluvert frá Keflavík og Njarðvík). Það er ekki til að hvetja fólk til að fara þangað.  Ef það á að flytja safnið eitthvað þá mætti allavega gjöra svo vel að setja það einhvers staðar þar sem er fólk nálægt.

Það er örugglega hægt að gera margt skemmtilegt við þetta svæði en þetta er ekki snjallt.

Miðvikudagur, 20. september 2006 klukkan 14:46

Survivorglápsafsökunin

Fór áðan niður í Nettó að ná í pakka sem pósturinn kom með í gær þegar ég var sofandi (langur skóladagur og lítill svefn nóttina áður).  Það kom í ljós að hér var komið fyrsta eintak mitt af Skírni.  Reyndar var þetta vorblaðið sem ég fékk enda hafði ég beðið sérstaklega um það.  Þarna gat ég þá loksins lesið greinina sem Ármann gat notað sem réttlætingu fyrir endalausu Survivorglápi.  Nú hefur hann enga afsökun nema kannski vonin um að sjá mig aftur á skjánum.

Mánudagur, 18. september 2006 klukkan 20:10

ViewAskew - Clerks II

Fórum á Clerks II í gær.  Hún var bara nokkuð góð.  Það virðist reyndar hafa verið markmið hjá Kevin Smith að gera fólk jafn hneykslað á þessari og fyrri myndinni.  En eins og í fyrri myndinni þá eru hápunktarnir falnir í tilvísunum í nördamenninguna.  Ef ég myndi meta ViewAskew myndirnar þá væri röðin svona:

  1. Mallrats, bara best. Mynd sem er hægt að sjá aftur og aftur.
  2. Chasing Amy.  Dýpsta myndin.
  3. Clerks, klassísk.
  4. Clerks II, langar að sjá hana aftur þegar hún kemur á dvd.
  5. Dogma, nokkuð góð en er ekki jafn gaman að sjá aftur og aftur.
  6. Jay and Silent Bob Strike Back, eina myndin sem ég hef bara séð einu sinni. Á hana ekki á dvd.

Munurinn á Clerks og Clerks II er kannski að fyrri myndin nær að segja eitthvað en seinni myndin reynir að segja eitthvað.  En Clerks II fær plús fyrir nokkur vel valin lög, sérstaklega 1979.

« Nýrri færslur | Eldri færslur »