Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 2. október 2006 klukkan 22:07

Reykfýla á Kaffi Kidda Rót

Í gær borðuðum við á Kaffi Kidda Rót í Hveragerði. Ég fékk mér fína pizzu og Eygló fékk sér steik sem henni fannst mjög góð. En vandamálið er að það er engin vitræn skipting þarna í reyk og reyklaust.  Það er bara óþolandi.  Ég hélt að ég hefði séð út að við værum í reyklausa hlutanum því að hinum megin var reykt en nei, einhver fór líka að reykja á næsta borði.

Mánudagur, 2. október 2006 klukkan 14:46

Önnin úti

Jæja, eitthvað gengur illa að semja við Nýfundnalandsháskólann.  Þá er að leita á önnur mið.  Berkeley? Uppsala? Kemur í ljós.