Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 7. október 2006 klukkan 22:53

Óli á tónleikum

Þeir sem höfðu gaman af ævintýrum Óla í Kaupmannahöfn er bent á þessa skemmtilegu mynd þar sem ég er áberandi í ljósum jakka fremst við sviðið að taka mynd.

Laugardagur, 7. október 2006 klukkan 20:23

Dabbi hressi

Svo ég endurtaki grundvallaratriði sem Davíð Þór hunsar algjörlega að vanda þá var bara eitt atriði af sjö í bakþönkum hans fyrir viku sem stóðst (þetta með Móður Teresu).  Davíð er einstaklega sár yfir því að við á Vantrú skulum bæði svara honum og Eyvindi Karlssyni fullum hálsi.  Reyndar virðist Eyvindur sjálfur bara vera glaður að við skulum hafa svarað honum.

Laugardagur, 7. október 2006 klukkan 2:40

Týr á tónleikum og önnur ævintýri Óla í Kaupmannahöfn

Forsagan er sú að mig langaði heilmikið að fara á tónleika með Tý núna.  Þeir voru á tónleikaferð í aukahlutverki í september og verða aftur í aukahlutverki með sér frægari hljómsveit í nóvember.  En eitt kvöld stóð uppúr í október, eitt kvöld í Kaupmannahöfn þar sem þeir yrðu aðalnúmerið með fullt sett.  Þar til í síðustu viku þá hélt ég að ég kæmist ekki af því að ég hélt að það væri próf daginn eftir.  En ég sá að prófið skipti ekki öllu máli og ákvað að panta flugmiða.  Daginn eftir komst ég að því að þetta var misskilningur með prófið.  Eygló langaði með en það var frekar óhentugt varðandi Landsfund Upplýsingar sem hún þurfti að fara á.
Sjá meira »