Er ég einn um að sjá fyrir mér gervifótinn hennar Heather notaðan í erjunum við Paul?
Er ég einn um að sjá fyrir mér gervifótinn hennar Heather notaðan í erjunum við Paul?
Ég fór áðan á bókamarkað og keypti mér Bláu trén í Friðheimum á góðu verði. Kom síðan heim og hitti tvo Votta hérna frammi. Þeir voru bara kurteisir, gáfu mér bæði Varðturninn og eitthvað blað sem heitir Vaknið sem fjallar meðal annars um þróunarkenninguna. Hafði ekki alveg tíma til að spjalla við þá. Annar þeirra fór hins vegar upp á efstu hæð og spjallaði við gömlu konuna þar. Votturinn var fljótur að koma sér burt þegar gamla konan fór að tala um að hann væri nú ungur maður, fimmtugur, og að hún hefði nú veikst þegar hún var átta ára (væntanlega inngangur að ævisögunni).
Ég er annars einn í dag. Eygló fór með Rósu og fleirum í sumarbústað og verður þangað til á morgun. Ef einhver hefur skemmtilegar tillögur um hvað ég ætti að gera í kvöld þá má hafa samband.
Ég var að kíkja á póstinn minn rétt í þessu og sá að Þráinn Bertelsson er aftur farinn að senda mér póst. Ég var náttúrulega spenntur að sjá hvað hann vildi mér, hvort að hann ætlaði að fara í mál við mig eða hvað. En svo var ekki.
Ágætu viðtakendur!Laugardaginn 4. nóv. kl. 14 opnar Sævar Karl sýningu á málverkum eftir Þráin Bertelsson í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti.Þetta er fyrsta sýningin á verkum þessa óþekkta málara og hugsanlega sú síðasta.Gaman væri að sjá ykkur - helst við opnunina í dag - eða þá á venjulegum verslunartíma næstu tvær vikur.Bestu kveðjur,Þráinn Bertelsson
Hann virðist endilega vilja fá mig á þessa málverkasýningu sína. Ég held að ég afþakki. Plön mín í dag eru þau að fara þennan útsölumarkað Fjölva. Grunar að þar verði í boði listaverk af hærri klassa. Síðan ætla ég að lesa og lesa. Held að ég hafi líka eitthvað betra að gera næstu tvær vikurnar líka.
Annars þá finnst mér voðalega bjánalegt þegar fólk tekur og sendir tölvupóst á alla sem það hefur nokkurn nokkru sinni átt í tölvupóstsamskiptum við. Hugsanlegt er að einhverjir af þeim fjölmörgu sem Þráinn sendi boðskort hafi þótt voðalega vænt um að hann hafi hugsað til þeirra en síðan kemur í ljós að hann sendir bara boð á eins marga og hann getur í von um að einhver láti sjá sig þarna.
Um daginn lenti ég í partíi þar sem ákveðinn bloggari eyddi nokkuð mörgum mínútum í að rakka Þráinn Bertelsson niður. Sá bloggari má endilega fara í minn stað á þessa sýningu.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « okt. | des. » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)