Minning um Sunday Morning

Minningar tengdar lögum eru áhugaverðar.  Núna er ég að hlusta á Sunday Morning með No Doubt.  Í huga mínum kemur upp mynd frá sumrinu 1997.  Ég er að vinna hjá LoftOrku, úti að setja saman mót fyrir súlurnar í álverinu á Grundartanga.  Við erum úti enda eru súlurnar þannig að ekki er hægt að steypa þær inni við.  Það er ekki rigning en það liggur í loftinu að það fari bráðum að rigna.  Ég er með þeim Kalla, Jóa og Kristjóni.  Jói kallar á Kalla “Sunday Morning á Bylgjunni” því hann vildi alltaf vita af því þegar lagið væri í spilun.

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>