Við vorum að fá bækling frá VG um frambjóðendur í prófkjörinu á laugardaginn. Ekkert var þar sem breytti skoðunum mínum. Fólk virðist vera nokkurn veginn eins og ég gerði ráð fyrir. Hafði líka þegar skoðað vefsíður frambjóðenda. Þar að auki er maður búinn að spjalla við hina og þessa, margir að plotta. Ekki ég náttúrulega…
Svo eru sumir frambjóðendurnir ekki einu sinni með vefsíðu. Það finnst mér frekar slappt. Líka dálítið skrýtið að setja mynd af sér í bæklinginn þar sem sést upp undir hökuna. Heldur þetta lið að maður fari að kjósa það út á nafnið eitt?
Já, sumir ekki alveg að standa sig í markaðssetningu á sjálfum sér. Ég kýs bara eftir myndunum.
Ég var ekki að gefa í skyn að það væri skynsamlegt að kjósa eftir myndunum en þegar um er að ræða fólk sem ég veit engin önnur deili á er myndin fyrstu kynni sem ég hef af viðkomandi. Og þegar myndin er mjög furðuleg finnst mér viðkomandi gefa til kynna að hann taki framboð sitt ekki sérlega alvarlega. Ef myndirnar skiptu engu máli væri væntanlega eins gott að sleppa þeim alveg.