Áðan var hringt mig frá Landsbankanum og spurt hvort að ég væri upptekinn. Ég sagði að ég væri upptekinn. Klukkutíma seinna hringir Landsbankinn aftur í mig. Ég skelli á án þess að svara enda upptekinn. Þá er hringt í heimasímann. Ef ég var upptekinn fyrir klukkutíma og skelli á þegar þeir hringja í mig þá myndi ég halda að jafnvel tregt fólk gæti fattað að ég sé ekki tilbúinn að spjalla við þau. Ég svaraði ekki.
Hvers vegna eru þau annars að hringja í mig? Ég er með bannmerki í Símaskránni. Ég er reyndar með reikning hjá þeim sem ég setti upp gegn því að fá styrk upp á 15.000 krónur fyrir Gotlandsferðinni (tilboð fyrir þjóðfræðinema). Nú er ítrekað búið að ýta á eftir þessu en við Eygló höfum ekki fengið þennan pening. Veit ekki með hina þjóðfræðinema.
Á meðan ég var að skrifa þessa færslu hringdi heimasíminn aftur og ég ætlaði að hella mér yfir hringjarann en síðan var þetta bara mamma Eyglóar þannig að ég sleppti ræðunni.
Það var hringt í mig í gær frá Landsbankanum. Ég spjallaði nú bara við drenginn. Hann var að reyna fá mig til að koma og spjalla við þjónustufulltrúa um launavernd og annað slíkt. Hann spurði svo hvort ég væri í skóla og fyrst svo var slapp ég. Hann afsakaði bara ónæðið. Ekkert alvarlegt sko ;)
Og já, ég man ekki betur en að ég hafi fengið peninginn… þarf samt að athuga það, er ekki alveg viss.