Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 28. nóvember 2006 klukkan 1:52

Tilvitnun í stað tilgangsleysis

Ég var búinn að skrifa bjánalega færslu sem sagði ekki neitt um það sem ég vildi ræða um.  Betra að hafa þetta einfalt og vitna frekar í:

Statler: Hey, Waldorf, look. It’s the frog and the pig.
Waldorf: Looks like they’re in love.
Statler: Yeah. Kinda makes you sick, doesn’t it?

Það er ágætt að maður er reglulega minntur á gildi Prúðuleikarana í dagsins amstri. Ég gæti skrifað eitthvað um ást mína á þeim en ég held að það bíði betri tíma og ég reyni þess í stað að koma mér í rúmið.  Á að vakna fyrir klukkan sjö á morgun, eða á eftir.

Mánudagur, 27. nóvember 2006 klukkan 22:37

Valkvíði á bíókvöldi

Á þriðjudagskvöldum er hægt að fara til Hafnarfjarðar í klassískt bíó, á Stúdentakjallarann til að sjá alternatív bíó og ég get líka farið niður í Mjódd til að fá tveir fyrir einn tilboð.  Þetta er erfitt val.

Mánudagur, 27. nóvember 2006 klukkan 22:33

Gneistinn sko…

Mér þykir alltaf svoltið fyndið þegar fólk kallar mig Gneistann upphátt.  Ég er hins vegar vanur því þegar ég sé það á víðlendum alnetsins.

Laugardagur, 25. nóvember 2006 klukkan 2:36

Amstrad

Hver man ekki eftir Boulder Dash? Hugsanlega mjög fáir.

Boulder Dash

En Manic Miner?

Manic Miner

Það er voðalega skrýtið að spila 20 ára gamla leiki og muna svona nokkurn veginn hvernig maður á að komast í gegnum borðin.

Í hve mörg ár í viðbót ætli maður geti spilað Boulder Dash? Besti tölvuleikur sem gerður hefur verið. Núna get ég notað Amstrad hermi til að spila hann í Windows. En hvað með eftir 20 ár? Ætli ég geti haft Windows hermi til að knýja Amstrad herminn og þá spilað Boulder Dash með tvöföldum hermi?

Föstudagur, 24. nóvember 2006 klukkan 22:09

Er skráningin rétt?

Fyrir nokkrum dögum bloggaði Már Örlygsson um það að hann hefði óvænt komist að því að konan hans og börn væru skráð í þjóðkirkjuna.  Í kjölfarið ákvað Ragnar Björnsson að athuga stöðu sína og kom í ljós að hann væri í þjóðkirkjuna þrátt fyrir að engin ástæða væri fyrir því.

Það er alveg ljóst að það er pottur brotinn í skráningu fólks í trúfélag, Karólína vinkona mín var til að mynda skráð í kaþólsku kirkjuna þó hún hafi aldrei óskað eftir því.  Fólk hefur verið sett í þjóðkirkjuna til dæmis í kjölfar flutninga á lögheimili þannig að það er aldrei að vita hvernig skráningunni er háttað.
Það er auðvelt að athuga hvort að trúfélagsskráning sé rétt með því að senda fyrirspurn á Þjóðskrá.  Látið mig vita ef eitthvað skrýtið kemur í ljós.  Þar sem tölur um trúfélagaskráningu eru miðaðar við 1. desember þá væri gott að skoða þetta sem allra fyrst.  Eyðublöð til að breyta trúfélagsskráningu sinni eru síðan að finna á vef Þjóðskrár.

Föstudagur, 24. nóvember 2006 klukkan 21:10

Prófkjörspælingar

Ég er að setja saman lista fyrir prófkjörið í næstu viku.  Ég er búinn að ákveða cirkabát hvað ég ætla að kjósa en af einhverjum ástæðum á ég erfitt með að fylla þriðja fyrsta sætið.  Ég er með dáltið af fólki neðar sem ég hefði alveg viljað setja ofar en ég veit ekkert hvort það kæmi sér vel fyrir þau.  Reyndar kom mér svoltið á óvart hvað það bættust við margir álitlegir karlmenn á seinni stigum.  Ég bjóst við að hafa fleiri konur á listanum en það gæti farið svo að ég hafi bara jafnt kynjahlutfall eftir allt.

En ég er svosem ekki ákveðinn, bíð spenntur eftir bæklingnum.  Hlakka til að sjá stefnumál hjá Sigmari fyrrverandi skólafélaga mínum en hann virðist því miður ekki hafa sett upp heimasíðu.

Föstudagur, 24. nóvember 2006 klukkan 11:29

Jólin hjá Árna

Í morgun vaknaði ég snemma til að heyra fyrirlestur hjá Árna Björnssyni um jólin.  Þar sem fyrirlesturinn var haldinn fyrir starfsfólk Borgarbókasafnsins þá var ég náttúrulega að stelast, eða næstum því að stelast.  Þetta var skemmtilegt.  Stefni á að eignast bókina hans.
Ég rölti síðan um Kringluna og keypti ekkert nema rakkrem í Body Shop.

Í Strætó hitti ég góða konu sem sagði mér að Himmi væri orðinn, samkvæmt eigin skilgreiningu, White Trash.  Gaman að heyra.

Föstudagur, 24. nóvember 2006 klukkan 1:48

Reykingar í biðskýlum

Undanfarið hef ég ítrekað lent í því að koma að strætóbiðskýlum þar sem er annað hvort svakaleg reykingafýla eftir einhvern sem er farinn eða þá að það er einhver að reykja þar.  Ég fatta ekki svona hegðun. Og af hverju er þetta ekki bannað?  Maður kemur þarna, það er skítakuldi og vindur en það er samt ekki hægt að þola að vera inn í skýlinu.  Ég er á því að réttu viðbrögðin séu að rífa sígarettuna úr trantinum á fólkinu og stappa á henni.  Ég vona að ég verði nógu pirraður til að gera það næst.

Föstudagur, 24. nóvember 2006 klukkan 1:24

Sjálfsgagnrýni

Paris Hilton steig á svið til að syngja og ældi.  Sem þýðir væntanlega að hún hefur betri en tónlistarsmekk en ætla mætti.

Fimmtudagur, 23. nóvember 2006 klukkan 20:26

Ída pósar

IdaÉg hitti Ídu í dag (einsog sést á dagatalinu fyrir aftan hana).  Hún pósaði svona sætt fyrir mig.

« Nýrri færslur | Eldri færslur »