Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 31. janúar 2007 klukkan 2:31

Afmæli

Ég á afmæli á sunnudaginn og var að spá í að halda upp á það.  Sunnudagseftirmiðdegiskökuboð er við hæfi eftir föstudagskvöldsþjóðfræðiþorrablót.  Allar afsakanir til að baka. Vinir og velunnarar eru velkomnir.  Væntanlega byrjar þetta uppúr klukkan þrjú.

Þriðjudagur, 30. janúar 2007 klukkan 10:10

Á borði

Það er voðalega fyndið að sitja hérna á borði í Odda á milli Röskvu og Vöku. Nemendur rölta framhjá og reyna að hirða nammi og drykki án þess að þurfa að horfa í augun á frambjóðendum. Sumir koma reyndar með komment eins og “Vaka er með miklu betra nammi, ég ætla að kjósa þá”. Bæklingarnir sitja hins vegar eftir. Það er nú ekki skrýtið að stúdentar líti á þessar kosningar sem skrýpaleik.

Háskólalistinn gefur náttúrulega ekki neitt frekar en fyrri daginn.

Fyndnara var reyndar þegar Ólafur Grímur leit við og kom með kosningarýni.  Hann skoðaði öll andlitin á plaggötunum og sagði mér álit sitt á þeim.  Hann sagði að Vökuandlitin væru góðlegri en áður.  Hann sagðist vera vanur að þau væru kuldaleg og fjarræn.

Þriðjudagur, 30. janúar 2007 klukkan 0:00

Fríkvöld

msn.jpgÞeir sem eru nógu heppnir að hafa okkur Eggert á msn hjá sér geta séð að það er fríkvöld hjá okkur.

Annars fór ég í nokkrar kennslustundir í dag að tala.  Bara gaman og ekkert stress.

Mánudagur, 29. janúar 2007 klukkan 21:17

Þriðja hæðin kallar

Ég er líklega að fá vinnuaðstöðu á þriðju hæðinni á Odda.  Ég mun þá reyna að vera þarna meira og minna yfir daginn.  Miklu auðveldara en að þvælast fram og til baka.  Ég vona að þetta verði til þess að ég geti fókusað meira á námið.

Sunnudagur, 28. janúar 2007 klukkan 23:40

Truflun uppfærð - smá ves

Jæja, ég uppfærði bloggin á Truflun. Ég varð var við smá vandamál. Ritillinn, þar sem maður skrifar færslur, hætti á sumum stöðum að sýna textann eins og hann birtist á blogginu og sýnir hann þess í stað sem html. Þetta er auðleyst mál. Bara að fara í Notendur - Þitt yfirlit og haka við “Use the visual editor when writing”. Þá er því bjargað. Fólk virðist þurfa að gera þetta sjálft.

Ég bið annars Truflaða fólkið að láta mig vita ef það er eitthvað vesen.

Aðal plúsinn við þessa uppfærslu er að færslur sem maður er að skrifa eru vistaðar á tveggja mínútna fresti þannig að ef að vafrinn frýs þá ætti ekki að vera vandamál að endurheimta allavega stærstan part færslunnar. Reyndar hef ég ekki aldrei lent í því að missa færslu í WordPress. Ýmislegt annað hefur einnig verið breytt og bætt.

Sunnudagur, 28. janúar 2007 klukkan 19:25

Að halda fyrirlestur

Ég er að skrifa 300 orð um fyrirlestur sem ég er að sækja um að flytja sumarið 2008.  Nú er ég ekki búinn að skrifa það sem ég ætla að tala um þannig að verkið er svoltið flókið og lýsingin þarf að vera mjög almenn.  Ég er kominn með uppkast upp á 122 orð og veit ekki hvað ég á að skrifa í viðbót.  Ég hef tæpar þrjár vikur til að fylla upp í þetta þannig að það ætti að reddast.

Sunnudagur, 28. janúar 2007 klukkan 11:57

Rök gegn Wikipediu og þó

Færsla Wikipedia um þjóðfræði er alveg ákaflega röng:

Þjóðfræði er vísindagrein sem fæst við rannsóknir á þjóðmenningu. Sá sem lokið hefur háskólaprófi í þjóðfræði er þjóðfræðingur.

Við getum gefið færsluhöfundi það að einhverjir þjóðfræðingar rannsaka þjóðmenningu.  Allt hitt er eiginlega rangt.  Það er til dæmis ekkert sem segir að sá sem hafi háskólapróf í þjóðfræði sé þjóðfræðingur og það er til fólk sem mér finnst hafa rétt til að kalla sig þjóðfræðinga sem hafa ekki háskólapróf í greininni.

En reyndar þá eru upplýsingar um þjóðfræði í öðrum uppflettiritum ekki mikið betri.

2 fræðigrein um þjóðlegan fróðleik ýmiskonar, þjóðsagnir, þjóðkvæði, þjóðlög o.fl.

3 sú fræðigrein sem fæst við menningu (einkum frumstæðra) þjóða

Þetta er úr íslenskri orðabók Eddu sem ég er með í tölvunni minni.  Skýring eitt varðaði ekki fræðigreinina þjóðfræði.  Þriðja skýringin virðist vera að rugla saman mannfræði og þjóðfræði.  Skýring tvö gæti hafa átt við um þjóðfræði fyrir svona hálfri öld.  Að sjálfssögðu eru ennþá til þjóðfræðingar samkvæmt skýringu tvö en það er alls ekki hægt að skilgreina greinina samkvæmt þessu.

Allavega er hægt að breyta Wikipediugreininni og væntanlega fer einhver í það verk.

Sunnudagur, 28. janúar 2007 klukkan 1:59

Munnleg, mexíkönsk og japönsk sjálfsmynd

Ég er svo duglegur að komast ferða minna. Svo segir Röskvufólið allavega. Minnir mig á þegar amma mín sagði að Corky í Life goes on væri svo duglegur að bjarga sér. Reyndar hélt Bryndís að ég ætti ekki bíl þrátt fyrir að ég hefði skutlað henni heim allavega einu sinni. En ég byrja á öfugum enda.

Í morgun fór ég með Eggerti á málþing. Þrír töluðu og í þetta skiptið var Daninn sem vann enda með nútímalegustu þjóðfræðipælingarnar (nó offens Gísli). Hefðir innan fjölskyldunnar. Við Eggert borðuðum á Serranos í hádeginu og þótti bara gott. Hafði aldrei borðað þar fyrr. Ég borðaði allt sem var í þessarri tilbúnu burrito enda hefði Einar orðið sár ef ég hefði sleppt nokkru (og ef hann hefði verið á staðnum).

Við fórum næst á japanska menningarhátíð og sáum nokkra nemendafyrirlestra. Ég borðaði líka ágætis hrísgrjónakúlu.

Eftir hádegi þá var stofnað félag um munnlegan menningararf, Minni. Ég þakka sjálfum mér það að við sluppum við að hafa framhalds aðalfund um nafnið (ég kom ekki með hugmynd að nafni heldur stakk upp á atkvæðagreiðslu). Síðan var þreytandi umræða um hvert einasta smáatriði í lögunum.

Kristín Loftsdóttir var með nokkuð áhugaverðan fyrirlestur um sjónarhorn mannfræðinga á munnlegar heimildir og síðan fjallaði Unnur um hugmyndir sem nýja munnlega miðstöðin er með. Bara nokkuð skemmtilegar heyrðist mér. Sagnfræði og þjóðfræði í skemmtilegu blandi. Ég stakk síðan af í miðjum fyrirlestri Rósu (formanni Minnis, vonandi var hún ekki sár) því ég vildi ná Strætó.

Í kvöld fór ég síðan í afmæli til Dagbjartar. Ég gaf henni gjöf með nafninu mínu í. Ég eyddi meiripart kvöldsins að spjalla við Bryndísi sem finnst ég svo duglegur að komast ferða minna. Ég er viss um að Dagbjört verður glöð þegar hún sér sjálfsmyndirnar okkar Bryndísar allar saman, 36 taldi ég. Það komu síðan fleiri þjóðfræðingar. Cilia, Kolla þjóðfræðigrúppía, Lilja sem kennir börnum á beljur og að lokum Sigrún Hanna. Við Sigrún Hanna vorum síðust út af þjóðfræðifólkinu. Þetta var bara gaman. Spurning hvort að Dagbjört hafi klárað úr glasinu sínu?

Síðan er Eygló með einhverjar gamlar fréttir á blogginu sínu.

Föstudagur, 26. janúar 2007 klukkan 14:15

Var Jesús frá Nasaret töfralæknir?

Fékk áðan til baka ritgerð mína með þessum titli sem ég skrifaði í Trú og tákn.  Fékk 9,5 fyrir hana.  Það er bara ágætt.  Ef einhver er spenntur fyrir þessu efni þá eru allar líkur á að ég muni gera eitthvað með það í framtíðinni.  Þetta mun ekki bara safna ryki í skúffu hjá mér.

Föstudagur, 26. janúar 2007 klukkan 1:52

Skemmtileg helgi

Helgin verður skemmtileg.

Í fyrramálið byrjar ballið. Þá mun ég fara á spjallfund, með góðum hópi, með finnska þjóðfræðingnum Lauri Harvilahti. Annað kvöld verður síðan videokvöld hjá Þjóðbrók þar sem við horfum á Blúsbræður.

Á laugardaginn verður tvöfalt málþing varðandi munnlegar heimildir. Gaman þegar maður er svo djúpt sokkinn í þennan heim að maður þekkir flesta Íslendingana sem eru þar persónulega. Á laugardagskvöld er síðan afmælisveisla.

Á sunnudaginn verður Anders Andrén fornleifafræðingur frá Háskólanum í Stokkhólmi með fyrirlestur um fornleifar og norræna trú. Við lásum einmitt áhugaverða grein um Gotlandsteinana eftir hann í Norrænni trú hjá Terry.
Grúví stuð semsagt!

Ég tók annars ákvörðun áðan um að sleppa prófinu í Deltablúsinum. Ég hef ekkert náð að læra síðan kúrsinn kláraðist og ég þarf ekki einingarnar. Ég náði hins vegar að læra svo margt þarna, og í eigin lestri í kringum efnið, að ég er afar glaður yfir að hafa setið hann.

Eldri færslur »