Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007 klukkan 22:20

Ef fólk bara hlustaði á Ármann

Þegar ég las greinina í Séð og Heyrt um náungann sem varð óglaður við að sjá vininn á “vinkonu” sinni þá varð mér hugsað til greinarinnar hans Ármanns frá því um daginn.  Bara ef óglaði maðurinn hefði lesið greinina hans Ármanns, þá hefði hann bara áttað sig á að best væri að gera gott úr stöðunni.

Miðvikudagur, 28. febrúar 2007 klukkan 15:49

Engin laun handa svörtum?

Þetta þótti mér áhugaverð auglýsing:

Barkeepers and doormen wanted for The [eytt] Bar, minimum age 25, must speak good English. Please note! No black wages.

Hljómar svoltið eins og svartir fá engin laun.  Ég er nokkuð viss um að þetta hugtak er ekki til, eða allavega ekki algengt, á ensku.

Miðvikudagur, 28. febrúar 2007 klukkan 14:54

Slys á kaffistofunni í Odda

2007_0228_131924aa.JPGFór áðan í tíma hjá Röskvufólinu. Bara til að fylgjast með. Það var áhugavert en ég tjáði mig svosem lítið. Eftir tímann fór ég með fólinu og Sigrúnu yfir í Odda til að borða smá hádegismat. Ég náði þeim glæsilega árangri að hella töluverðu magni af Topp yfir Sigrúnu. Ég hitti svo vel með vökvann að Sigrún virtist eiginlega hafa orðið fyrir annars konar slysi. Sem betur fer er stúlkan indæl og tók þessu ekki illa. Ég endurtek hins vegar ekki kommentið frá fólinu, það var of ósmekklegt.

Þriðjudagur, 27. febrúar 2007 klukkan 15:50

Einkunnir í sms

Í gær náði ég loksins að kveikja á sms-gáttinni í Uglunni.  Það er semsagt leið til að fá einkunnir í sms-skilaboðum.  Ekki fannst mér liggja mikið á þessu en þó ákvað ég að prufa hvort það tækist núna.  Í hádeginu var ég síðan sem fyrr á Alþjóðaskrifstofu og fékk þá allt í einu fimm sms.  Þau innihéldu þær einkunnir sem ég hef fengið nú í vetur.  Það var nú gott að fá þessa upprifjun.  Starfsfólkið þarna hefur væntanlega haldið að ég væri afskaplega vinsæll.

Mánudagur, 26. febrúar 2007 klukkan 22:41

Jesús fundinn?

Það þarf nú ekki einu sinni tveggja sekúndna umhugsun til að átta sig á að sögur af því að sögur af fundi grafhýsis fjölskyldu Jesú sé rugl.  En það væri nú fyndið ef þetta væri satt.  DNA úr Jesú væri náttúrulega vel til þess fallið að afsanna guðlegan uppruna hans.  Discovery er nú meiri sorinn.

Mánudagur, 26. febrúar 2007 klukkan 3:51

Óskarinn

Það er kannski viðeigandi að ég bloggi endalaust á bloggafmælinu.  Ég sit nefnilega hérna og horfi hálf áhugalaus á Óskarinn.  Einu sinni þá hafði ég áhuga á þessum verðlaunum og þá var þetta ákaflega stór stund.  Í mörg ár þá horfði ég alltaf á þetta og mér þótti það skipta einhverju máli hverjir ynnu.  Sem betur fer er það liðin tíð.

Mánudagur, 26. febrúar 2007 klukkan 3:43

Fimm ára

Í dag á ég fimm ára bloggafmæli.  Það er slatti af bloggfærslum.  Þar sem ég blogga yfirleitt daglega og stundum oft á dag þá eru þetta töluvert margar færslur.  Á þessarri síðu má finna vel á fjórða þúsund færslur en þó vantar inn fyrsta eina og hálfa árið.

Ég skrifa fyrst og fremst fyrir sjálfan mig.  Ég hef gaman af því að lesa það sem ég var að pæla hér áður fyrr.  Það er líka oft óendanlega hentugt að get flett upp hvenær ákveðnir atburðir gerðust.  En málið er fyrst og fremst að þetta er leið til að fá útrás.  Það er ákaflega hreinsandi að skrifa sig frá pirringi.

Ég hef aldrei tekið mér frí frá blogginu og mig hefur eiginlega aldrei langað til þess.  Ég sé ekki heldur fyrir mér að ég hætti í bráð.  En ef ég fæ leið á þessu þá hætti ég augljóslega.

Mánudagur, 26. febrúar 2007 klukkan 2:19

Vondar myndir af fólki á landsfundi

Sumir halda því fram að ég taki ekki fallegar myndir af fólki.  Hérna eru nokkrar myndir sem ég tók með símanum mínum á landsfundinum um helgina sem sanna þetta.

2007_0224_142848aa.JPG2007_0225_130030aa.jpg
2007_0225_130036aa.jpg2007_0225_130044aa.jpg2007_0225_003102aa.jpg

Mánudagur, 26. febrúar 2007 klukkan 2:10

Táknmál

Ég gleymdi reyndar einu varðandi landsfundinn áðan.  Það var samþykkt ályktun um táknmál sem ég var nokkuð glaður með.  Reyndar er það þannig að meirihlutinn af ályktunum sem voru samþykktar þarna sem ég var mjög sáttur við.  Annars þá virðist stjórnmálaáhuga á þessu heimili vera á góðri leið með að verða kvennastarf.  Það er ágætt.

Sunnudagur, 25. febrúar 2007 klukkan 18:13

Landsfundur

Ég er þreyttur eftir landsfund VG.  Þetta var ekki mikill gleðifundur í mínum huga.  Það komu fram fjórar ákaflega góðar ályktanir um mál sem skipta mig miklu og einungis ein þeirra komst meira og minna ósködduð í gegn.  Ein virðist að mestu dauð en tvær verða á náðarvaldi þeirra sem sitja innar en ég.  Ég hef reglulega sagt það að mér þætti gott ef að UVG væri sérstakur stjórnmálaflokkur, ég held að slíkur flokkur væri líklegri til afreka en þetta gamla lið.  En ef ungliðarnir selja sig ekki þá er framtíðin björt.

Eldri færslur »