Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 1. mars 2007 klukkan 23:25

Umsóknirnar

Áðan kláraði ég umsókn.  Ég setti hana með fylgiskjölum í umslag og lokaði.  Mér fannst ég hafa afrekað mikið og hélt upp á það með að taka aðeins til.

Annars virðist ég vera á góðri leið með að verða fræðimaður.  Ekki af því að ég er farinn að skrifa lærðar greinar heldur einmitt útaf öllum þessum umsóknum.  Vona að ég verði fljótari með hverja í framtíðinni.

Fimmtudagur, 1. mars 2007 klukkan 14:37

Þjóðfræðibandí

Stórskemmtilegur bandítími hjá þjóðfræðinni núna áðan.  Ég náði að raða inn mörkum ólíkt því sem gerist þegar ég spila með Háskólakórnum.  Hugsanlega er kynjahlutfallið mér hagstæðara þarna en ég held að færnin sé aðalmunurinn.  Allavega breyttist leikurinn þegar Sigrún Ísleifs kom inn.  Hraðinn jókst.  Þetta var hressandi.

Fimmtudagur, 1. mars 2007 klukkan 0:37

Hárið mitt

2007_0228_173944aa.JPGÞegar ég kom heim þá tók ég ofan húfuna og hárið stóð svoltið mikið upp í loft.  Mér fannst það svo skondið að ég tók mynd og ég deili henni hér með með ykkur.