Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 30. apríl 2007 klukkan 22:54

Segjum nei við spunanum

Eins og stendur í viðbótinni hér að neðan þá hefur spunameistarinn Guðmundur Magnússon ákveðið að benda á færslu mína hér að neðan. Í færslu sinni gefur Guðmundur tvennt í skyn:

1) Að ég hafi í raun verið búinn að lesa blogg hjá Pétri Gunnarssyni og sé bara að éta það upp eftir honum.

2) Að andúð mín á hringingum til kjósenda þýði að ég vilji banna þær (af því að ég er Vinstri Grænn).

Hvort tveggja er augljóslega bölvuð vitleysa og ég benti á það á bloggi Guðmundar (og Moggabloggið er hætt með IP tölurnar, víhí!). Ég les Pétur Gunnarsson almennt ekki enda finnst mér hann ekki spennandi penni (ég les Guðmund örlítið oftar þó hann sé ekki mikið áhugaverðari).

Seinna atriðið er náttúrulega bara liður í því áróðursstríði sem í gangi er gegn VG. Það er verið að halda því fram að við viljum banna allt. Var ekki í dag frétt um að Framsóknarmaður vilji banna sólarhringsbúðir í íbúðahverfum? Og er Villi Vill ekki nýbúinn að banna það að skemmtistaðir verði í endurreistu Austurstræti? Var ríkisstjórnin ekki að banna reykingar á skemmti- og veitingastöðum (ég er reyndar hlynntur því banni)? Ég hef ekki séð spunameistarana ráðast á þetta fólk. Enda hentar það ekki. Spuninn er það sem ræður ferðinni.

En allavega er ég Vinstri Grænn. Venjulega er Guðmundur í því að ráðast á löngu látna Alþýðubandalagsmenn til að reyna að koma höggi á VG.

Mánudagur, 30. apríl 2007 klukkan 21:04

Kosningabarátta Sjálfsstæðisflokksins

Geir Haarde var í Kastljósinu áðan. Hann sagði voðalega fátt. Enda virðist það virka ágætlega. Sjálfsstæðismenn virðast alltaf breytast í krata þegar kemur að kosningabaráttu. Þeir virðast hafa nákvæmlega sömu skoðanir og Samfylkingin. Maður vonar að þeir sem vilja fá fólk með krataskoðanir í ríkisstjórn hafi það vit að kjósa Samfylkinguna frekar. Nema að það sé bara taka þátt í sama blekkingarleik og Sjálfsstæðisflokkurinn. “Þeir sem minna mega sín skipta okkur sko í alvörunni máli…”

Ég las í dag blogg hjá Eyþóri Arnalds þar sem heldur því fram að tölur að það hve miklum peningi Sjálfsstæðisflokkurinn er að eyða í sjónvarpsauglýsingar sýni fram á að þeir eyði í raun minna en aðrir. Augljóst þvaður sem var nú vel og vandlega hrakið í athugasemdum hans. Mig grunar að hin falda kosningabarátta Sjálfsstæðisflokksins fari fram með hringingum í kjósendur. Eftir þátttöku mína í stúdentapólitík er mér meinilla við slíkt. Í svona símtölum er hægt að lofa hverju sem er án þess að það þurfi að standa við nokkuð af því. Síðan er líka hægt að ljúga hverju sem er um hvern sem er án þess að hægt sé að sanna það eftir á.

P.S.

Ég er svo frægur að einn af spunameisturum Moggabloggsins vísar á þessa færslu. Ég bendi þeim sem heimsækja mig af þeim sökum að kíkja á þessa snilldargrein Ármanns Jakobssonar og einnig að lesa svar mitt við spunanum.

Mánudagur, 30. apríl 2007 klukkan 20:16

Hver ætlar að spyrja Guðjón Ólaf?

Kastljósið virðist hafa svarað þeim spurningum sem mér fannst vanta svör við í gær.  Það virðist ekki vera nein réttlæting fyrir sérmeðferðinni.  Nú þyrfti Guðjón Ólafur að svara spurningum.  Ég hef mínar efasemdir um að Guðjón hafi ekki náð að leggja saman tvo og tvo þegar hann sá heimilisfangið og nafn sonar Jónínu.

Sunnudagur, 29. apríl 2007 klukkan 20:39

Klassísk íslensk spilling?

Ég fatta ekki hvernig stendur á því að Guðjón Ólafur hefur ekki verið tekinn í almennilega yfirheyrslu hjá fjölmiðlum út af þessu ríkisborgararéttarmáli. Ef það hefur verið eitthvað skrýtið í þessu máli þá er hann maðurinn sem getur svarað til um það.

Ég efast um að Jónína Bjartmarz hafi sagt við Guðjón Ólaf að hann ætti að hleypa stúlkunni í gegn, ég tel hins vegar allar líkur á því að hún hafi ætlast til þess. Ég tel ekki ólíklegt að Guðjón Ólafur hefði þekkt heimilisfang Jónínu á pappírunum sem fylgdu með umsókninni. Ef nafn sonar Jónínu hefur komið fram þá myndi ég halda að það hefði dugað til að Guðjón vissi hver tengsl stúlkunnar væru við Jónínu. Klassísk íslensk spilling er ekki skipulögð á leynifundum heldur er ætlast til þess að menn viti hvað eigi að gera. Þó er ég ekki að útiloka að einhver hafi pikkað á öxl Guðjóns og sagt honum að þessi stúlka væri sérstök á einhvern hátt. Það er samt þannig að þegar menn vita að þeir eru að gera eitthvað af sér þá passa þeir sig á að hafa undankomuleið.

“Á fundinum kom aldrei fram…”, “Hún ræddi aldrei við mig um málið”, “Enginn minntist á tengsl hennar við…” og svo framvegis. Þú getur orðað hlutina á ótal vegu þannig að þeir séu ekki bein lygi án þess þó að þú segir frá öllu sem þú vissir.

Ég er almennt hlynntur því að það eigi að vera auðveldara fyrir innflytjenda að fá ríkisorgararétt. Það er hins vegar ákaflega slæmt að fólk fái sérmeðferð vegna tengsla sinna við ráðamenn. Það sem gerir þetta mál alvarlegra er það að Sjálfsstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn gerðu innflytjendum einmitt erfiðara að fá ríkisborgararétt hér um árið.

Það sem vantar inn í þessa umræðu alla eru grunnupplýsingar. Hvað var mörgum hafnað þegar stúlkan fékk ríkisborgararétt? Á hvaða forsendum var þeim hafnað? Hvað réði því að stúlkan fékk að fara í gegn? Í grunnatriðum þá þyrfti ekki að benda á nema einhver örfá atriði, jafnvel bara eitt atriði sem réttlætir þessa sérmeðferð stúlkunnar.

Sunnudagur, 29. apríl 2007 klukkan 17:04

Orð sem skipta öllu

101gamla.jpg Þessi fyrirsögn á Vísi nær að gera frekar ömurlegan glæpamann mörgum sinnum verri en hann í raun er, svona 101 sinnum verri.  Hann réðst á hundrað og eins árs gamla konu en þarna ásakaður um að hafa ráðist á hundrað og eina gamla konu. Þetta er svoltið eins og hundrað og einn dalmatíuhundur.

Sunnudagur, 29. apríl 2007 klukkan 14:32

Veskið

Ég er að spá í að kjósa með veskinu í kosningunum.  Það er í tísku.  Ég mun þá byrja á því að reikna með því að þessi ríkisstjórn og þá Framsóknarflokkurinn sérstaklega kostaði mig milljónir (sem ég hef 40 ár til að borga) með breytingum á húsnæðislánakerfinu.  Nú er ljóst að einhverjir græddu á þessum breytingum en við sem vorum að kaupa í fyrsta sinn stórtöpuðum.

Laugardagur, 28. apríl 2007 klukkan 18:32

Leik-Óli

Ég eyddi deginum í að bæta við línu á leikferilsskrána mína.

Föstudagur, 27. apríl 2007 klukkan 17:17

Dekraði prinsinn

Í myndinni Whoops! Apocalypse er hæðst að því hvernig breska kóngafólkið hegðar sér þegar það fer í herinn.  Það ætlast til, að lætur eins og það ætlist til, að það sé komið fram við það eins og aðra.  Það er að sjálfssögðu ekki gert þó allir láti eins og það sé bara hluti af hópnum.

Harry prins vill endilega fara til Írak. Hann er svo dekraður að hann heimtar það.  Ef hann fer þá verður það að sjálfssögðu til þess að félagar hans verða alltaf í gríðarlegri hættu, mikið meiri en aðrir hermenn. Ef einhverjum tekst síðan skaða göltinn eða ræna honum verður það skelfilegt fyrir Íraka.  Það er allt í lagi að hann leiki hermenn heima hjá sér (hvort sem það sé í breskum búningi eða nasista).  En ef hann vill í alvörunni láta koma fram við sig eins og almennan borgara þá ætti hann að byrja á því að berjast fyrir afnámi konungsríkisins.

Fimmtudagur, 26. apríl 2007 klukkan 21:48

Hvar ætlar norski herinn að kynnast staðháttum?

Ég hlustaði á Stefán Pálsson og Sigga Kára ræða um norska herinn áðan.  Eitt hefði mátt fara betur í. Það er búið að tala um að það eigi að halda heræfingar hérna svo að norski herinn þekki til staðhátta ef þeir þurfa að verja okkur fyrir einhverju. Ég hefði viljað spyrja hvar þessar heræfingar eiga að fara fram.  Ef þær eiga að fara fram út í óbyggðum þá skil ég ekki alveg hvern þeir ætla að verja þar ef eitthvað myndi koma upp á. Ef einhverjir ráðast á miðborg Reykjavíkur þá fatta ég ekki hvaða gagn er af því að norskir hermenn hafi æft sig í einhvers staðar út í rassgati. Ég tek fram að ég er ekki að hvetja til heræfinga í Reykjavík.

Fimmtudagur, 26. apríl 2007 klukkan 15:04

Næsta skref í átt að Cork

Góðar fréttir hrúgast inn. Fyrir viku beið ég eftir svörum varðandi þrjú mál sem varða framtíðina.  Núna er ég búinn að fá já við tveimur og í dag fékk ég grænt ljóst á hið þriðja.  Ég er semsagt að fara að ganga frá endanlegri umsókn til Cork en ég var áður búinn að ganga frá Erasmus umsókn þangað.  Það eru allar líkur á að ég fái inn og ég ætla að drífa mig í að ganga frá þessu.  Ég þarf samt að fara að spjalla við fólk sem hefur áður farið þangað í skiptinámi og spyrja það um húsnæðismál, ég veit nefnilega ekkert um þau.

Eldri færslur »