Skip to content

Moggabloggið birtir IP tölur kommentara

Moggabloggið ergir mig enn og aftur. Í þetta skiptið þá er það vegna þess að þeir eru byrjaðir að birta IP tölur þeirra sem kommenta án þess að skrá sig inn. Þetta er bara fáránlegt. Það er engin ástæða til þess að gera þetta. Það er nauðsynlegt að skrá IP-tölur þannig að þeir sem eiga síðurnar geti séð hvaðan athugasemdirnar komi ef eitthvað óviðeigandi birtist.

Ég sendi núna áðan tölvupóst á blog.is þar sem ég heimtaði að öllum athugasemdum sem ég hef sent inn verði eytt eða að þeir hætti að birta IP-tölurnar. Ég sætti mig ekki við þetta kjaftæði.

4 Comments

  1. Vel mælt. Þetta er með því fáránlegast sem sést hefur í vefheimum. Það er enginn tilgangur með því að birta þetta. (en sjálfsagt mál að skrá)

    Posted on 20-apríl-07 at 22:32 | Permalink
  2. Jamm, þetta er algjörlega út í hött.

    Posted on 21-apríl-07 at 13:53 | Permalink
  3. Mér finnst þetta að vissu leyti eðlilegt að mótmæla því að ip-tölu birtingin sé afturvirk með þessum hætti, en fyrir nýjar athugsemdir þá sé ég nákvæmlega ekkert að því að þeir geri þetta svona.

    Posted on 22-apríl-07 at 20:28 | Permalink
  4. Fjölmargir bloggarar nota þetta með ágætum árangri til að fækka nafnlausum árásum og athugasemdum undir fölsku nafni. Dæmi: http://www.intertwingly.net/blog/2007/04/17/The-time-element#c1176923423 (músið yfir nafn þess sem skrifar athugasemdina)

    Posted on 22-apríl-07 at 20:32 | Permalink

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *
*
*