Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 31. maí 2007 klukkan 23:29

Lok Múrsins

Múrinn kveður. Það eru vissulega tímamót. Ég held að það megi með sanni segja að Múrinn hafi haft töluverð áhrif á það að ég tók nokkur skref til vinstri fyrir nokkrum árum.

Er það rétt sem Stebbi Páls segir að pólitísku vefritin séu að víkja fyrir bloggum? Ég held að það sé slæm þróun. Ég verð hins vegar að játa að heimsóknum mínum á Múrinn hafi fækkað síðustu árin. Með fullri virðingu fyrir þeim sem tóku við þá var gullöld Múrsins liðin. Sú breyting sem varð á Múrnum þegar þrír úr upphaflegu ritstjórninni yfirgáfu hana breytti eðli hans. Í kjölfarið varð Múrinn í raun að týpísku pólitísku vefriti. Snilldin fólst í því að áður var hann svo mikið meira.

Ég gerðist svo frægur að fara á tvo viðburði á vegum Múrsins. Ég fór á fyrirlestur með Mark Steel og ég fór á Skemmtikvöld Múrsins. Skemmtikvöldið var snilld, sérstaklega var Atómstöðin á 7 mínútum vel heppnuð. Ég held að þar hafi ég í fyrsta sinn lent í því að einhver hafi þekkt mig eingöngu af blogginu. Sverrir Guðmundsson, sem ég hafði haft óþol fyrir lengi sökum þess að hann vann alltaf Gettu Betur, spurði “Ert þú Gneistinn?”. Þetta var í raun hálfgert bloggpartí enda aðallega auglýst á bloggsíðum ef ég man rétt.

En ég þakka fyrir mig, þetta var skemmtilegt.

Fimmtudagur, 31. maí 2007 klukkan 14:28

Hver á fjall - firnindi?

Hann Trausti pabbi hennar Eyglóar. Úrskurður um þjóðlendur var honum í hag.  Trausta er óskað til hamingju með það.

Fimmtudagur, 31. maí 2007 klukkan 10:44

Góðar en ekkert sérstaklega góðar fréttir

Ég var að fá góðar fréttir sem eru í raun ekkert sérstaklega góðar. SIEF var að samþykkja að leyfa mér að flytja fyrirlestur á ráðstefnunni 2008. Það sem kemur í veg fyrir að ég hoppi af gleði eða leggist niður í kvíðakasti er það að ég hef ákveðið að skipta í Mastersritgerðarefni og mun því ekki vinna að þeirra rannsókn sem ég átti að tala um. Ég var á leiðinni að draga útdráttinn til baka en var aðeins of seinn. En þetta sýnir hins vegar að ég get skrifað svona umsókn ágætlega. Ég sæki þá bara um aftur í ágúst með nýja efnið þegar annað útkall verður.

Miðvikudagur, 30. maí 2007 klukkan 23:40

Gömul auglýsing

Það að búið sé að skanna inn Dag út árið 1980 er frábært. Ég er búinn að vera að dunda mér við að skoða blaðið og fann þessa dásamlegu auglýsingu.

sjonvarp.jpg

Þetta er semsagt (eins og) gamla sjónvarpið okkar. Auglýsingin er frá maí 1979.

Miðvikudagur, 30. maí 2007 klukkan 21:49

Argumentum ad Hitlerium

Ég hef undanfarið rekist á bloggara sem hafa verið að tala um það að Hitler hafi fyrstur farið í herferð gegn reykingum. Yfirleitt er þetta orðað á svona ónákvæman hátt. Það sem er aldrei minnst á er að þýskir vísindamenn voru í forystu í því að rannsaka skaðsemi reykinga áður en Hitler komst til valda. Það var því nokkuð eðlilegt að í Þýskalandi hafi fyrst farið fram herferð gegn reykingum. Það hefði alveg eins getað gerst án þess að nasistar hefðu komist til valda en við getum aldrei vitað slíkt fyrir víst.

Það sem er hins vegar ljóst er að það varð ekkert eðlilegt áframhald á rannsóknum á skaðsemi reykinga vegna arfleiðar Hitlers.  Vísindamenn vildu ekki byggja á því starfi sem var unnið af vísindamönnum sem störfuðu á tímum nasista, jafnvel þeim rannsóknum sem voru unnar áður en Hitler komst til valda. Þetta var reyndar til umræðu í kúrsinum sem ég var í síðustu viku, þeir sem vísa í rannsóknir þýskra fræðimanna frá þessum tíma eru litnir hornauga. Reyndar er undantekningin sú að Bandaríkjamenn voru alveg tilbúnir að nýta sér þá þekkingu sem varð til varðandi vopnatækni í Þýskalandi nasismans. Það er semsagt líklegt að rannsóknir á skaðsemi reykinga hefðu fyrr komist á það stig sem þurfti til að fá reykingabönn ef ekki hefði verið fyrir Hitler.

En grunnpunkturinn er augljóslega sá að það að draga Hitler inn í umræðu um reykingabönn segir ekkert til um gildi þeirra. Við getum alveg eins sagt að Hitler hafi verið mikið fyrir að leggja vegi og því séu vegir eitthvað verri fyrir vikið.  Hitler lét framleiða bíla og þar af leiðandi ætti ekki að framleiða bíla. Hitler var grænmetisæta og þess vegna eru grænmetisætur slæmar. Þetta hefur bara ekkert gildi í rökræðum.

Miðvikudagur, 30. maí 2007 klukkan 0:06

Sumarið er ljúft

Ég held ég hafi ekki verið jafn ánægður með komu sumarsins frá því árið 1996. Ég held að þetta verði gott sumar. Ég hef skilningsríkan yfirmann (sjálfan mig) sem mun alltaf leyfa mér að fara út í góða veðrinu og slappa af þegar ég þarf á því að halda.  Þessi indæli yfirmaður mun líka leyfa mér að spjalla við gesti sem líta við hjá mér í vinnunni. Ljúft.

Við tókum gönguferð um Elliðaárdalinn áðan. Notalegt í notalegu veðri. Síðan horfðum við á þátt tvö af My So-Called Life.  Við þurfum að taka tvo þætti í viðbót áður en við leggjum í The Godfather part II.

Þriðjudagur, 29. maí 2007 klukkan 20:49

Eigindlegar

Það er meiri gleði í dag. Ég fékk 8,5 fyrir Eigindlegar rannsóknaraðferðir.  Reyndar voru fleiri með 9 en það skekkir hins vegar tölfræðina að flestir skráðu sig úr kúrsinum.  Miðað við að ég var lengi að koma mér af stað í kúrsinum (Stúdentaráðskosningar og umsóknarvesen) og skilaði eiginlega öllu nema lokaskýrslunni of seint þá get ég verið ánægður. Þetta lækkaði meðaleinkunn mína örlítið, hún er semsagt rétt rúmlega 8,5 núna. Þessi tala breytist líklega ekki mikið þar sem flestir kúrsarnir sem ég á eftir að taka verða í erlendum skólum og þá skilst mér að ég fái bara “Staðið”.  Þar að auki held ég að skorin ætli að taka líka upp Staðið/Fallið fyrir MA-ritgerðir. Hákarlinn gæti hins vegar breytt þessu eitthvað.

Þriðjudagur, 29. maí 2007 klukkan 15:36

Ágætur í ensku

Jæja, ég er ágætur í ensku. Ég fékk útúr TOEFL prófinu. Ég skora hátt í öllu, annað hvort 29 eða 30 af 30 mögulegum nema í talmálinu þar sem ég fékk bara 26 af 30. Ég bjóst við að það hefði komið verst út enda leið mér frekar kjánalega að tala svona út í loftið í prófinu.

Samt er galli á gjöf Njarðar. Ég hef ekkert gagn að þessu. Cork biður ekki um TOEFL próf. Ég skráði mig í prófið um viku áður en kom í ljós að samningurinn milli Nýfundnalands og H.Í. hefði ekki verið endurnýjaður. Þar fóru um tíu þúsund krónur fyrir lítið. En ég get allavega bloggað um þetta.

Þriðjudagur, 29. maí 2007 klukkan 12:33

Í Odda í sumar

Ég er mættur í Odda í sumarvinnuna mína. Þeir sem eiga leið um svæðið í sumar ættu endilega að athuga hvort að ég er þar.

Mánudagur, 28. maí 2007 klukkan 18:43

Díll

Við Eygló vorum að semja.  Hún ætlar að horfa á Godfather myndirnar með mér og ég ætla að horfa á My So-Called Life með henni.  Þetta verður áhugavert.

Eldri færslur »