Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 30. júní 2007 klukkan 18:03

Fyndið

Mér finnst fyndið að Moggabloggarar telji kerfið sitt gott.

Fimmtudagur, 28. júní 2007 klukkan 11:04

Veikur maður læstur úti

Ég er veikur. Ekki góða tímasetning. Ég ákvað því að láta vera að fara út í Odda í dag og slaka frekar á. Veikindin eru samt ekkert mjög slæm, aðallega pirrandi.

Ég náði næstum að læsa mig úti í morgun. Ég var að ná í blöðin og áttaði mig ekki fyrren of seint að ég var ekki með lyklana. Sem betur fer var ég bara læstur í anddyrinu, hurðin að íbúðinni var opin. Ég gat því dinglað hjá nágranna mínum sem kom að bjarga mér. Það hefði verið leiðinlegt að dúsa þarna frammi.

Miðvikudagur, 27. júní 2007 klukkan 15:18

Dautt móðurborð

Eftir að hafa verið með tölvuna mína í nærri viku á hillu hjá sér þá var hringt í mig og mér tilkynnt að móðurborðið væri dautt. Það tekur einhverjar þrjár vikur að fá nýtt. Ég var ekki glaður.

Þriðjudagur, 26. júní 2007 klukkan 15:12

Sólin og vinnan

Ég mælti mér mót við Sigrúnu niðrí Iðu í hádeginu. Staðurinn var valinn af því að þau selja Kjörís. Eftir léttan hádegismat ætlaði ég að kaupa ís en þá var vélin biluð. Ég fór þar af leiðandi niður á Ingólfstorg og sætti mig við emmessís, ekkert sérstaklega góður.

Ég notaði Strætó fram og til baka, af Lækjartorgi yfir á Þjóðminjasafnsstoppistöðina. Strætókerfið virkar semsagt ef þú þarft bara að koma þér á milli þessara tveggja staða.

Fyrir hádegi gerði ég voðalega lítið. Ræddi aðeins um netþróunarstarf. Eftir hádegi hef ég síðan náð að skrifa upp um þrjátíu mínútur af viðtali. Stefni á að ná jafnvel öðru eins áður en ég fer heim. Ef ég hef orku.

Þriðjudagur, 26. júní 2007 klukkan 10:33

Sólin

Er kominn tími á færslu þar sem Óli vælir yfir veðrinu af því að hann er fastur inni? Kannski. Ég allavega að ég gæti alveg endað með að rölta niður í bæ eða eitthvað. En ég þarf líka að skrifa niður um hundrað mínútur af viðtali. Það gæti síðan gerst að einhver frelsi mig.

Mánudagur, 25. júní 2007 klukkan 17:29

Sjónvarpsgátt?

Eitt sem mér hefur alltaf þótt vanta og það er almennileg netþjónusta við sjónvarpsáhorfendur. Sjónvarp.is var ágæt hugmynd en hefur ekki þróast neitt og það dagskrár erlendu stöðvanna hafa dottið út. Aðalatriðið væri væntanlega samt að fá upplýsingar um íslensku stöðvarnar.

Ég nenni ekki að skoða dagskrárnar ítarlega til að reyna að finna það sem mig langar að horfa á. Ég nenni ekki heldur að muna hvenær þættir eru sýndir.

Það er margt sem mætti gera. Í fyrsta lagi væri það að geta valið út það sem maður vill horfa á. Augljóslega þyrfti maður að geta merkt við sjónvarpsþætti sem maður hefur áhuga á. Ég myndi sjálfur vilja hafa það þannig að maður gæti merkt við möguleika þannig að ég fengi að vita hvaða heimildarmyndir eru á dagskrá. Gaman væri að geta valið um að fá tilkynningu um það þegar eftirlætis leikstjóri eða leikari er með mynd.

Útfærslan á þessu gæti verið á ýmsan hátt. Sumir gætu viljað fá þetta í pósti en mér þætti þægilegast að geta tékkað á vefsíðu. Ég væri til dæmis hrifinn af því að fá þetta í svona hliðarrein eins og BloggGáttin mín er í. Ætlar ekki einhver að búa eitthvað svona til?

Mánudagur, 25. júní 2007 klukkan 9:38

Strætó og reykingar

Í morgun reyktu tveir náungar í Strætóskýlinu mínu. Pirrandi helvíti. Þegar ég kvartaði yfir þessu í fyrra til Strætó þá fékk ég þau svör að það hefði verið reynt að setja bannmerki í Strætóskýlin en þau hefðu bara verið rifin niður. Ég held að þeir ættu bara að prenta þetta á kortin sín í haust. Annars þá svöruðu þeir allavega kvörtun minni í fyrra, þeir hafa ekki ennþá svarað kvörtun minni um breytt leiðarkerfi.

Sunnudagur, 24. júní 2007 klukkan 13:30

Norður og umferðarvæl

Við fórum norður á fimmtudag og komum aftur í gær. Stutt ferð sem var meðal annars farin til að ná einu viðtali fyrir rannsóknina mína. Við náðum líka skemmtilegu spjalli við afa. Það var voðalega indælt veður á Akureyri þannig að við notuðum tækifærið til að fara í sund og rölta um Lystigarðinn.

Það er merkilegt hve ömurlegt fólk er í umferðinni. Mér er svo sem sama um að fólk taki framúr mér en á fimmtudaginn gerði það einn sem var með þrjá bíla á aftan í vagni. Þann menn hefði þurft að svipta á staðnum og gera bílinn upptækan.

Undarlegast var þó í gær þegar ég var að keyra suður. Við vorum búin að vera lengi á eftir tveimur stórum trukkum á Holtavörðuheiðinni. Þeir voru bara að keyra á sama hraða og ég þannig að ég sá enga ástæðu til að fara framúr þeim, hélt mig bara vel fyrir aftan þá. En þá koma tveir bílar og taka framúr mér og síðan trukkunum. Aftari trukkurinn hægði ferðina til að hleypa þeim framhjá. Þetta varð til þess að ég var allt í einu kominn rétt fyrir aftan hann. Ég gaf ekkert merki um að ég vildi komast fyrir framan hann en hann gaf mér merki um að ég vildi það. Ég gerði ekkert enda vissi ég að ég myndi þá einfaldlega enda á milli trukkanna sem voru augljóslega í samfloti. Bílstjórinn var hins vegar greinilega búinn að ákveða að hleypa mér framhjá og hægði ferðina alltaf meira og meira. Þegar hann var kominn niður í sextíu þá ákvað ég að taka bara framúr þó ég hefði lítinn áhuga á því. Þegar ég var kominn framhjá hélt ég bara áfram að keyra á þeim hraða sem ég hafði verið á áður sem var einmitt sami hraði og trukkarnir. Eftir smá tíma þá tók trukkurinn framúr mér, ekki til að komast hraðar en ég heldur til þess að vera nær fremri trukknum. Hann flautaði síðan á mig þegar hann var að fara framhjá mér, greinilega fúll við mig þó ég hefði í raun ekkert til saka unnið.

Hvalfjarðargöngin eru alltaf óendanlega pirrandi. Ég held mig á löglegum hraða en það eru alltaf einhverjir sem ekki sætta sig við það og keyra í rassgatinu á manni. Áttar þetta fólk sig ekki á að það væri meiri háttar mál ef árekstur yrði þarna inni? Er of erfitt að keyra á 70 þessa örstuttu vegalengd? Ef þið viljið fara hraðar getið keyrt fjörðinn.

Það var dálítið um vegaframkvæmdir á leiðinni en þar sem ég keyrði að kvöldi og á laugardegi þá var ekki verið að vinna á öllum stöðunum. Þrátt fyrir það voru oft öll merki þannig að maður gat ekki séð annað en það væru einhverjir beinlínis að vinna á veginum og maður hægði á ferðinni eftir því. Síðan var það þannig að aðstæður voru oft bara í besta lagi og engir að vinna. Ég held að það myndi auka virðingu fyrir öllum þessum vegavinnumerkjum ef þeir myndu skella svörum ruslapokum yfir þau þegar þau eru óþörf.

Sunnudagur, 24. júní 2007 klukkan 2:24

Ábyrgð á netinu

Hver ber ábyrgð á athugasemdum við bloggfærslur? Ég myndi halda að það sé bara svipað og á blöðunum, ef sá sem skrifar athugasemdina er nafngreindur þá ber hann ábyrgðina en ef þetta er nafnlaust þá er það bloggarinn (ígildi ritstjóra) sjálfur. Ég myndi þó segja að bloggarinn ætti að fá tíma til að fjarlægja athugasemdina ef hann er beðinn um það.

Málið er samt stundum flóknara. Sumir skrifa ekki athugasemdir undir fullu nafni þó augljóst sé um hvern sé að ræða eða þá að auðvelt sé að komast að því hver það sé. Þetta er til dæmis þannig á Moggablogginu að fólk er með dulnefni. Hins vegar væri auðvelt að fletta því upp um hvern hafi verið að ræða þar sem Moggabloggið krefst kennitölu þegar fólk skráir sig (hvort það sé manns eigin kennitala er annað mál). Flókið mál allavega. Ef við tökum þá reglu að dulnefni sé ígildi nafnleysis þá gæti það jafnvel orðið til þess að Mogginn sjálfur sé ábyrgur fyrir því sem birt er þannig.

Sumir bloggarar geta ekki eða kunna ekki að eyða athugasemdum. Er ábyrgð þeirra jafn mikil og þeirra sem ekki vilja eyða athugasemdum?

Mér þykir líka áhugavert að pæla í því hvernig lögsagnarumdæmi virkar í netheimum. Nú er þessi vefur hýstur í Bandaríkjunum, minnir mig, og ekki að neinu leyti skráður á Íslandi þó efnið á hann sé skrifað hér (að mestu). Hvar væri hægt að kæra mig? En ef ég skrifaði á ensku? En ef ég skrifa færslu í útlöndum? Skiptir máli hvort hún væri á ensku eða íslensku?

Tengt þessu eru spjallborð. Hver er ábyrgur fyrir efni á Barnalandi? Mogginn? Styrmir sjálfur?

Er engin ábyrgð fólgin í því að vísa á vefsíðu og segja að þar sé eitthvað vafasamt?

Þetta eru allt hlutir sem þyrftu að komast á hreint.

Sunnudagur, 24. júní 2007 klukkan 1:46

Eyjan og áhrif hennar

Eyjan hefur opnað. Það kemur mér eiginlega mest á óvart að sjá Frelsisfranskar þarna inni og ég er eiginlega á því að það sé áhugaverðasta bloggið sem þeir hafa náð þarna inn. Enginn annar sem er á BloggGáttinni minni. Reyndar les ég Gvend og Tomma reglulega. Annars eru fáar konur þarna. Ef ég hefði verið að sigta út aðalbloggarana á Moggablogginu þá hefði ég til dæmis pikkað upp Önnu Kristjáns. Síðan eru reyndar eðalkvenbloggarar á þessum sjálfstæðu bloggeyjum en þær eru væntanlega sáttar við sitt. Nanna Rögnvalds hefði að sjálfssögðu verið fín viðbót en kannski ekki á þeirra sviði.

Vefurinn sjálfur er ekki alveg nógu góður. Það birtist til dæmis scrollbar hérna að neðan hjá mér í Explorer (eitthvað undarlegt fokk bæði með Firefox og Opera). Síðan finnst mér þetta bara fullmikið af efni á forsíðunni. En ég er náttúrulega minímalisti í vefhönnun.

Annars þá finnst mér þetta undarleg tímasetning að setja svona netmiðil af stað að sumarlagi. Fólk er ekki að skoða netið á sumrin. Betra hefði verið að starta þessu að hausti til. Það verður áhugavert að sjá hvernig þetta þróast.

En ég er samt einfaldlega ekkert rosalega spenntur fyrir þessu en það segir væntanlega best um blogglestrarvenjur mínar. Ég hef gaman af fólki sem bloggar um allt og ekkert, uppáhalds teiknimyndasögurnar sínar, biluðu heimilistækin og fræga fólkið sem það hefur hitt.

Þetta virðist hins vegar verða blóðtaka fyrir Moggabloggið. Ég held að “gullöld” þess sé liðin. Ellý Ármanns hefur hrunið í lestri enda eru ljósbláu sögurnar hennar ekki spennandi til lengdar, ekki einu sinni þegar hún virðist gera tilraun til að hneyksla með smá unglingaklámi. Það líður ekki á löngu þar til það eina sem sést þar verður Jón Valur og hinir trúarnöttararnir, Stebbifr að endursegja fréttir, Gísli Valdórs að “verja fyrir frelsið” og Ómar Ragnarson að BLOGGA MEÐ FYRIRSAGNIR SEM ERU Í HÁSTÖFUM.

Það er reyndar áhugavert fólk þarna ennþá, femínistarnir hafa ekki flutt, brjálaður anarkisti er búinn að vekja athygli og Jens Guð er síðan skemmtilegur bloggari sem ég ætti að bæta við á BloggGáttina mína.

Það er kannski aðal sigurvegarinn í kjölfar þessar upplausnar MoggaBloggselítunnar, BloggGáttin. Skráið ykkur þar, búið til eigin lista eða bara fylgist með fyrirsögnum þar. Þeir munu líka bæta við nýjungum bráðlega.

Ég er latur að setja tengla inn í blogg en það tengist líka því að WYSIWYGið er ekki að virka í Explorer.

Eldri færslur »