Ég tók mig til og skrapp niður í Laugardalshöll og kíkti á tónlistar og kvikmyndaúrvalið þar. Margt ágætt. Ég keypti nokkrar myndir en ánægðastur var ég með að finna tónlistina úr Bram Stoker´s Dracula. Ég átti þann disk fyrir löngu síðan en hann endaði, ásamt Bang með Frankie goes to Hollywood, einhvern veginn hjá minni fyrrverandi fyrir átta og hálfu ári þegar sambandi okkar lauk.
Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er rétt að benda á að þetta er magnaðasta kvikmyndatónlist sem samin hefur verið. Höfundur heitir þessu þjála nafni sem ég nota sem fyrirsögn á þessa færslu.
Ég vann einu sinni með manni sem hét Wojciech, hann var flinkur rafsuðumaður. Var víst fyrrverandi samstarfsmaður Lech Walesa.
Endilega náðu þér í OSTinn úr the Ninth Gate eftir Kilar líka - ótrúlega mögnuð tónlist.