Mér þykir skrýtið að enginn sem fjallað hefur um Jesúauglýsinguna hefur bent á það sem er að mínu mati augljós galli á henni. Með auglýsingunni er verið að segja að sagan hefði getað breyst ef Jesús hefði haft svona myndsíma.
Látum nú vera að það eru ekkert sérstaklega margir Nýja testamentisfræðingar sem myndu halda því fram að síðasta kvöldmáltíðin hafi verið sögulegur atburður. Sagna er augljóslega fyrst og fremst táknræn.
Gallinn sem ég er að tala um er að guðspjöllunum þá er ljóst að Jesús veit að Júdas (eða allavega einhver) er að fara að svíkja hann. Það er bara hluti af stóra plottinu. Jesús vissi vel hvað Júdas var að gera.
Annars fannst mér þetta bara fyndið.

hvar getur maður séð þessa auglýsingu sem allir eru að tala um… I feel left out!
einmitt, þetta stakk mig líka.
Jamm, ég hélt að fórn Krists ætti að vera ein helsta undirstaða kristninnar. Ef Jesús hefði bara stungið af á flótta þá hefði plottið klikkað. Þ.a.l. má segja að Júdas sé í raun hetja, hann tekur á sig hlutverk blóraböggulsins en þetta hlutverk svikarans er alveg bráðnauðsynlegt í þessari tilteknu sögu.
Mér fannst auglýsingin líka fyndin. Hins vegar þykir mér nú meira áríðandi að Síminn bæti þjónustu sína en að hann haldi áfram að dæla út bröndurum í sjónvarp.