Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 1. október 2007 klukkan 23:20

Næsta helgarferð

Margfrestaður plottfundur fjölþjóðlegri erlendunema vinahóps míns var núna í kvöld. Marianne eldaði fyrir okkur kjúkling heima hjá sér. Reyndar voru kartöflurnar hennar mikið betri en kjúklingurinn sem var bara venjulegur.

Þegar við fórum að rökræða um hvert skyldi fara þá reyndi ég að beina fólki frá þeim svæðum sem ég heimsótti um helgina. Það gekk nokkurn veginn. Bara Mizen Head sem verður endurtekið. Við förum norðar og tökum meira af vesturströndinni.

Ég átti mitt lengsta spjall við Íra frá því ég kom hingað nú í kvöld. Marianne var að eignast nýjan sambýling sem heitir Efa þó ég hafi ekki náð stafsetningunni. Hún hjálpaði okkur líka aðeins við plönin. Allt í allt gott og skemmtilegt kvöld og ég hlakka til næstu ferðar.

Mánudagur, 1. október 2007 klukkan 16:05

Fyrir Facebook fælið myndaáhugafólk

Fyrir þá sem hafa ekki nennt að skrá sig á Facebook þá ákvað ég að láta myndir frá helginni fyrst inn á mína eigin myndasíðu og stefni á að fylla afturvirkt á hann fljótlega. Þið getið skráð ykkur þarna en látið mig þá vita. Ef þið eruð skráð en munið ekki notendanafn og lykilorð þá er best að spyrja mig. Ef þið munið notendanafn þá er hægt að fá lykilorðið sent í pósti.

Mánudagur, 1. október 2007 klukkan 12:50

Sjálfsmyndir

Note to self: hafa munninn lokaðan í sjálfsmyndatökum, ekki gapa eins og hálfviti.

Mánudagur, 1. október 2007 klukkan 12:10

Vestasti oddi Evrópu

Ég var að skoða vefsíðu um Kilarney þjóðgarðinn sem ég heimsæki eftir tvær vikur. Þar var því haldið fram að hann væri nálægt vestasta odda Evrópu. Ég þurfti að senda tölvupóst þar sem ég benti á að Ísland væri töluvert lengra í vestur en Írland í heild sinni.

Voðalega er maður þjóðernissinnaður í útlöndum.

Ég var annars að prufa sms sendingar í Facebook og þær virka. Þið sem viljið senda mér sms getið gert það ókeypis þar.