Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 3. október 2007 klukkan 21:33

Cork er falleg borg

Í gær kláraði ég að lesa bókina The Burning of Cork. Hún fjallar um þegar breskir hermenn/lögreglumenn/varaliðsmenn kveiktu skipulega í miðborg Cork og rændu um leið verslanirnar sem þeir voru að brenna. Þetta var skipulagt og þeir létu þá vera sem voru hlynntir áframhaldandi sambandi Bretlands og Írlands. Þetta var í desember 1920. Skemmdirnar voru slíkar að slökkviliðsstjóri Dublin sagði þær umfangsmeiri en þær sem urðu í borginni hans í Páskauppreisninni 1916.

Það er voðalega erfitt að sjá þessa litlu borg í rústum. Hún er ákaflega falleg, jafnvel þar sem hún er í niðurníðslu. Bæði byggingar og einnig er ég endalaust heillaður af ánni Lee. Hún er ákaflega svört og lygn. Virðist fela margt. Þessir eiginleikar hennar verða líka til þess að hún sýnir margt.

Ég er hérna með nokkrar myndir sem ég tók í dag og í gær. Það væri hægt að bæta við myndum frá háskólasvæðinu fyrir ykkur sem ekki hafið séð hinar myndirnar mínar en ekki í kvöld. Ég hef engan þrífót og nota því hina og þessa fleti til að stilla myndavélinni á. Sjá meira »

Miðvikudagur, 3. október 2007 klukkan 12:24

Frústreraður vegna skólaleysis

Ég er að verða svoltið frústreraður. Ég mætti í morgun á upphafsfund annarinnar hjá framhaldsnemum í þjóðfræði við UCC. Við erum víst þrjú. Carrie hin kanadíska og síðan Írinn John. Ég átti svolítið bágt með að skilja John á köflum. Þrír kennarar mættu á fundinn og við spjölluðum. Við fengum einfaldar lýsingar á áföngunum (sem eru alltaf með ný og ný nöfn) og almennt um fyrirkomulagið. Við ákváðum síðan stundaskrá í sameiningu. Góðu fréttirnar eru að það eru bara tímar á tveimur dögum. Miðvikudögum og fimmtudögum. Á fimmtudögum er ég frá 10-15 í tímum en þó með hádegishléi. Það þýðir að ég get auðveldlega ákveðið dag fyrir ritgerðarvinnu og síðan haft hina nokkuð frjálsa.

Það er hins vegar mjög frústrerandi að við byrjum ekki fyrr en í næstu viku. Ég hefði viljað byrja í síðustu viku. Aðeins of afslappað hérna.